Anna Nieuwenhuis skrifaði:
I haven't started yet because I don't knit. I am currently looking for someone who does, and willing to do it for me. I just need to know how many balls/skeins of yarn I need for this project.
15.09.2026 - 17:23DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Nieuwenhuis, you will find the total amount of DROPS Fiesta required for this project under tab "Pattern" at the top of the page; so in XS you need for ex 350 g DROPS Fiesta/50 g a ball = 7 balls for XS- make sure to use the yarn converter if you choose another yarn. Happy knitting!
16.09.2026 - 07:23
Anna Pedersen skrifaði:
Hej Jeg forstår ikke rigtig fordelingen af maskerne ,når arbejdet skal deles i forstykke, ærmer og ryg? Skal maskerne på forkanten (de 8 masker) tælles med i de 48 masker, eller er det 8 masker for sig selv og så skal der strikkes 48 masker? Venlig hilsen
08.08.2026 - 14:33DROPS Design svaraði:
Hei Anna, Stolpemaskene telles med i de 48 maskene på forstykkene. Hilsen Drops Team.
09.08.2026 - 06:31
Heidi Hammes skrifaði:
Hallo, ich solle in der letzten Reihe vor dem Bündchen 68 maschen zunehmen Gibt es dafür eine Anlage? Weiß nicht recht, wie ich das machen soll Über eine Antwort würde ich mich freuen. Lg Heidi
22.05.2026 - 16:50DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Hammes, klicken Sie auf dem "Tools" -Icon an der unteren Ecke in der rechen Seite, so können Sie kalkulieren lassen, wie Sie zunehmen sollen. Viel Spaß beim Stricken!
26.05.2026 - 08:29
Heidi Hammes skrifaði:
Hallo, ich stricke xl Vor dem Rippenmuster soll ich 68 maschen zunehmen. Das erscheint mir so viel. Mein Strickstück ist jetzt schon sehr weit. Über eine Antwort würde ich mich freuen. LG Heidi
09.05.2026 - 15:23DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Hammes, man braucht mehr Maschen für das Bündchen mit der Nadel Nr 2,5 als fürs glatt rechts mit der Nadel 4 deshalb muss man vor dem Bündchen zunehmen, so wird die untere Kante auch nicht zusammenziehen. Viel Spaß beim Stricken!
11.05.2026 - 08:29
Heidi Hammes skrifaði:
Hallo, bin schon bei der länge bei 27 cm anstatt der vorgeschriebenen 24 cm. Es fehlen noch 2mal je 12 raglanzunahmen. Was soll ich tun? Bitte um baldige Hilfe. Vielen lieben Dank. Mfg Heidi
05.05.2026 - 16:01DROPS Design svaraði:
Liebe Heidi, stimmt Ihre Maschenprobe? In XL soll die Passe nach den letzen Raglanzunahmen ca 24 cm messen (50 +16 Reihen = 66 Reihen = ca 24 cm). Sollte Ihre Maschenprobe in der Höhe nicht stimmen, dann können Sie öfter zunehmen als in der Anleitung, kalkulieren Sie je nach Ihrer Maschenprobe wie oft damit die Raglanzunahmen nach 24 cm fertig sind (messen Sie aber nach dem Bündchen, nicht ab Anschlagskante). Viel Spaß beim Stricken!
05.05.2026 - 16:43
Heidi Hammes skrifaði:
Ich werde diese Jacke glatt rechts stricken mit blenden wie angegeben. Wie muss ich die Umschläge auf der Rückseite, alle maschen links, abstricken? Ich erkenne meim kraus rechts die Raglanmaschen nicht. Freue mich über eine Antwort
23.03.2026 - 17:27DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Hammes, diese Jacke wird glatt rechts mit den BlendenMaschen kraus rechts, so können Sie die Anleitung genauso stricken; die Umschläge fûr Raglenzunahmen stricken Sie wie unter RAGLAN erklärt und wie in diesem Video gezeigt. Viel Spaß beim Stricken!
24.03.2026 - 08:32
Heidi Hammes skrifaði:
Ich verstehe nicht, wie man vor der Raglanmasche umschlag neigt sich nach links, diesen abstricken soll SOS, bitte um eine Antwort
22.03.2026 - 23:22DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Hammes, vielleicht kann Ihnen damit dieses Video helfen? Viel Spaß beim Stricken!
23.03.2026 - 10:09
Heidi Hammes skrifaði:
Nach dem rippenmuster soll ich 1 markierer an der Innenseite der blende an der einen seite der Arbeit anbringen ,die Arbeit wird nun ab diesem Markierer gezählt. Ich verstehe gas nicht richtig? Bitte erklären Sie es mir. Vielen Dank Heidi Hammes
20.03.2026 - 19:02
Heidi Hammes skrifaði:
Nach dem rippenmuster soll ich 1 markierer an der Innenseite der blende an der einen seite der Arbeit anbringen ,die Arbeit wird nun ab diesem Markierer gezählt. Ich verstehe gas nicht richtig? Bitte erklären Sie es mir. Vielen Dank Heidi Hammes
20.03.2026 - 18:53DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Hammes, die Arbeit wird später ab diese Markierung gemessen, dh nich ab Anschlagskante, deshalb wird man hier eine Markierung anbringen = so wird man die Arbeit nach dem Bündchen an der Knopflochleiste gemessen. Viel Spaß beim Stricken!
23.03.2026 - 07:31
Sandra skrifaði:
Bonjour, au décompte de la division des manches et du corps, je tombe sur le même calcul que le commentaire précédent. Il semble que vous ayez oublié de compter les mailles de la bordure. Car il me manque également 14 m, soit 2 fois 7 mailles. Donc ça donnerait "après les mailles bordures, tricoter 52 m, puis mettre en attente les 75 m pour la manche.." etc Pour ma part je vais tricoter comme cela. Bonne journée !
19.03.2026 - 13:15
Fairytale Summer Cardigan#fairytalesummercardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Fiesta. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, sléttprjóni, i-cord og stuttum ermum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 267-22 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 6-6-6-6-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 6-6½-7-7-6-6½-7 cm á milli hverra hnappagata. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið til baka uppsláttinn yfir á vinstri prjóninn með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING – í skiptingu yfir í stroff: Þegar lykkjum er aukið út jafnt yfir í skiptingunni yfir í stroff, er mikilvægt að auka út þar sem lykkjurnar eru síðar prjónaðar brugðið, sléttprjóns lykkjurnar koma þá til með að halda fallega áfram yfir í stroffið. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 121-129-129-137-143-145-153 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Fiesta. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 7 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 7 kantlykkjur að framan með i-cord. Haldið svona áfram með stroff í 2-2-3-3-3-4-4 cm, setjið 1 merki í innanverðar kantlykkjur að framan í annarri hlið á stykki (= miðja að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4. Nú eru settir 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju, þessar lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. Teljið 23-25-25-25-27-27-27 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1. merki í næstu lykkju, teljið 19-19-19-23-23-23-27 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 33-37-37-37-39-41-41 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 19-19-19-23-23-23-27 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju. Það eru 23-25-25-25-27-27-27 lykkjur eftir á prjóni fyrir hægra framstykki. Prjónið sléttprjón fram og til baka með kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar - lesið leiðbeiningar að ofan með útskýringu hvernig auka á út. Munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón og framkanta eins og áður, jafnframt er aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). Aukið að auki út um 0-0-0-0-0-2-3 lykkjur jafnt yfir á hvoru framstykki og 0-0-0-0-0-4-6 lykkjur jafnt yfir á bakstykki = 129-137-137-145-151-161-173 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður – munið að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er undir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri fyrir laskalínu). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður – munið að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er undir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Prjónið UMFERÐ 3 og 4 alls 19-25-27-21-24-30-29 sinnum (= aukið hefur verið út alls 20-26-28-22-25-31-30 sinnum fyrir laskalínu og prjónaðar hafa verið 40-52-56-44-50-62-60 umferðir) = 281-337-353-313-343-401-405 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið og aukið út þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður, uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA að ofan. UMFERÐ 3 (= rétta) : Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður, aukið út fyrir laskalínu á framstykkjum og bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á undan 1. og 3. merki og á eftir 2. og 4. merki – lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður – uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA að ofan. Prjónið umferð 1 til 4 alls 3-1-1-5-4-2-3 sinnum (= 12-4-4-20-16-8-12 umferðir prjónaðar = 3-1-1-5-4-2-3 sinnum útaukning á ermum og 6-2-2-10-8-4-6 sinnum útaukning á framstykkjum/bakstykki) = 317-349-365-373-391-425-441 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu hefur nú verið gerð til loka, aukið hefur verið út alls 26-28-30-32-33-35-36 sinnum á framstykkjum/bakstykki og 23-27-29-27-29-33-33 sinnum á ermum. Prjónið síðan sléttprjón án þess að auka út, þar til stykkið mælist 21-22-23-23-24-25-26 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar þá koma laskalykkjurnar til með að vera staðsettar aðeins inn á framstykkin/bakstykki, þ.e.a.s. JAFNFRAMT því sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið 44-48-50-52-57-62-66 lykkjur eins og áður, setjið næstu 63-71-75-75-75-81-81 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-16-20-20-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 89-97-101-105-113-125-133 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 63-71-75-75-75-81-81 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-16-20-20-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið 44-48-50-52-57-62-66 lykkjur sléttprjón og prjónið kant að framan eins og áður. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 207-223-239-255-281-303-327 lykkjur. Prjónið kanta að framan og sléttprjón þar til stykkið mælist 38-40-42-42-44-46-48 cm frá merki við miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 48-52-56-60-70-72-76 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan) – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 255-275-295-315-349-375-403 lykkjur. Prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningunni) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og prjónið kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5-5 cm, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 42-44-46-47-49-51-52 cm frá merki við miðju að framan og ca 46-48-50-52-54-56-58 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 63-71-75-75-75-81-81 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-12-16-20-20-24 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 71-79-87-91-95-101-105 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 13-12-11-12-12-10-10 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 5-5-7-7-7-9-9 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 76-84-94-98-102-110-114 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2-2-3-3-3-4-4 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 15-14-14-15-15-14-14 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #fairytalesummercardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 267-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.