Queen of Cables Sweater#queenofcablessweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með skáhallandi öxl / evrópskri öxl, köðlum og rúllukanti. Stærð XS - XXXL.
DROPS 267-28 |
|||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð í A.4 og A.5. Mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar prjónað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breytið eftir þörfum. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjað er á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Síðan er prjónað niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða og framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 hlutum. Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, mynstrið er prjónað samtímis sem aukið er út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukning fyrir hálsmál hefur verið gerð til loka. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Síðan er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermarnar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 30 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði DROPS Air og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið A.1, jafnframt eru prjónaðar 2 lykkjur í fyrstu og síðustu lykkjuna í umferðinni (prjónið framan í og aftan í lykkjuna) = 2 lykkjur fleiri = 32 lykkjur. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur í fyrstu lykkjuna (prjónið lykkjuna eins og útskýrt er í A.2), A.1, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkjuna (prjónið lykkjuna eins og A.3) = 2 lykkjur fleiri = 34 lykkjur. UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið A.3, A.1, A.2, jafnframt eru prjónið 2 lykkjur í fyrstu og síðustu lykkjuna í umferðinni (prjónið framan í og aftan í lykkjuna) = 2 lykkjur fleiri = 36 lykkjur. UMFERÐ 5 (= ranga): Prjónið A.2, A.1, A.3, jafnframt eru prjónaðar 2 lykkjur í fyrstu og síðustu lykkjuna í umferðinni (prjónið framan í og aftan í lykkjuna) = 2 lykkjur fleiri = 38 lykkjur. Á EFTIR UMFERÐ 5: Haldið áfram að prjóna eins og útskýrt er í A.1, A.2 og A.3 og prjónið 2 lykkjur í fyrstu og síðustu lykkjuna í hverri umferð. Þegar mynsturteikningin hefur verið prjónuð upp að ör í þeirri stærð sem óskað er eftir eru 102-102-102-102-124-124-124 lykkjur í umferð. Setjið eitt merki í hliðina. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið nú áfram með mynstri sem þegar er byrjað (án útaukninga), haldið áfram að snúa köðlum í 6. hverri umferð (köðlum er snúið í annað hvert skipti í annarri hverri einingu sem prjónuð er í A.1, A.2 og A.3, þ.e.a.s. það eru 11 umferðir á milli hverra kaðla á hæðina). Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 8-9-4½-5½-9-4½-5½ cm frá merki og næsta umferð á að vera prjónuð frá réttu. Athugið hvaða umferð er næsta umferð í mynstrinu, það er mikilvægt að útaukningar fyrir handveg á framstykki byrji á sömu umferð og á bakstykki, þannig að mynstrið verði rétt þegar það er sett saman. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið mynstur sem þegar er byrjað, jafnframt sem prjónaðar eru 2 lykkjur í fyrstu og síðustu lykkju í umferð (prjónið framan í og aftan í lykkjuna) = 2 lykkjur fleiri = 104-104-104-104-126-126 lykkjur, nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstrið. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið mynstur sem þegar er byrjað, jafnframt sem prjónaðar eru 2 lykkjur í fyrstu og síðustu lykkju í umferð (prjónið framan í og aftan í lykkjuna) = 2 lykkjur fleiri = 106-106-106-106-128-128 lykkjur, nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstrið. Prjónið umferð 1 og 2 alls 4-4-9-9-4-9-9 sinnum, prjónið síðan 1. umferð 0-0-1-1-0-1-1 sinnum til viðbótar = 118-118-140-140-140-162-162 lykkjur í umferð. Stykkið á að mælast ca 12-13-14-15-13-14-15 cm frá merki í hlið, endið á með umferð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón, prjónið nú vinstra framstykkið meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er hér að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykkinu þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjurnar frá þræði / hjálparprjóni snúi að þér, vinstri hlið stykkisins = vinstri öxl. Nú eru prjónaðar upp lykkjur meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl - byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að öxl þannig: Prjónið upp 1 lykkju alveg innst við hálsmál, prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkjuna = 37-37-37-37-48-48-48 lykkjur. ATH! Lykkjur eru ekki prjónaðar upp í ysta lykkjubogann á lykkjunni, heldur innan við heila lykkju, þannig að kanturinn sem lykkjur eru prjónaðar upp verði jafn og fallegur. Allar lengdarmælingar á framstykkinu eru gerðar frá þessum uppprjónaða kant. Prjónið mynstur þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): A.4 (sjá mynstur fyrir óskaða stærð), prjónið 3 lykkjur brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): 3 lykkjur slétt, A.4. Haldið áfram með þetta mynstur áfram, þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið efstu 12 umferðirnar í mynstrinu (sjá stjörnu í mynsturteikningu). Þegar stykkið mælist 7-8-9-10-11-12-13 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, A.4. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið A.4, 1 lykkja slétt (= útaukin lykkja frá fyrri umferð), 3 lykkjur brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4 sinnum, útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstrið, þ.e.a.s. frá röngu er prjónað þannig: slétt lykkja, slétt lykkja, brugðin lykkja, brugðin lykkja (= 8 umferðir prjónaðar) = 41-41-41-41-52-52-52 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón, prjónið nú hægra framstykki meðfram hægri öxl eins og útskýrt er hér að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkju inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju og prjónið upp 1 lykkju inn að hálsmáli = 37-37-37-37-48-48-48 lykkjur. ATH! Lykkjur eru ekki prjónaðar upp í ysta lykkjubogann á lykkjunni, heldur innan við heila lykkju, þannig að kanturinn sem lykkjur eru prjónaðar upp verði jafn og fallegur. Allar lengdarmælingar á framstykkinu eru gerðar frá þessum uppprjónaða kant. Prjónið mynstur þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): 3 lykkjur brugðið, A.5 (sjá mynsturteikningu fyrir óskaða stærð). UMFERÐ 2 (= rétta): A.5, 3 lykkjur slétt. Haldið áfram með þetta mynstur áfram, þegar A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið efstu 12 umferðir í mynstrinu. Þegar stykkið mælist 7-8-9-10-11-12-13 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og prjónið A.5, aukið út til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 3 lykkjur brugðið, prjónið 1 lykkju slétt (= útaukin lykkja frá fyrri umferð), A.5. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4 sinnum, útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstrið, þ.e.a.s. frá röngu er prjónað þannig: slétt lykkja, slétt lykkja, brugðin lykkja, brugðin lykkja (= 8 umferðir prjónaðar) = 41-41-41-41-52-52-52 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Síðan eru framstykkin sett saman eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI (hægra og vinstra stykki sett saman): Prjónið 41-41-41-41-52-52-52 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 20 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið 41-41-41-41-52-52-52 lykkjur frá vinstra framstykki = 102-102-102-102-124-124-124 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur sem þegar er byrjað þar til stykkið mælist 26-27-22½-23½-33-28½-29½ cm, passið uppá að næsta umferð sé sama umferð og merkt er á bakstykki. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið mynstur sem þegar er byrjað, jafnframt eru prjónaðar 2 lykkjur í fyrstu og síðustu lykkju í umferð (prjónið framan í og aftan í lykkjuna) = 2 lykkjur fleiri = 104-104-104-104-126-126-126 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið mynstur sem þegar er byrjað, jafnframt eru prjónaðar 2 lykkjur í fyrstu og síðustu lykkju í umferð (prjónið framan í og aftan í lykkjuna) = 2 lykkjur fleiri = 106-106-106-106-128-128-128 lykkjur. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-4-9-9-4-9-9 sinnum, prjónið síðan 1. umferð 0-0-1-1-0-1-1 sinnum til viðbótar = 118-118-140-140-140-162-162 lykkjur í umferð. Endið með umferð frá röngu. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 118-118-140-140-140-162-162 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 14 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar, prjónið síðan 118-118-140-140-140-162-162 lykkjur af bakstykki og fitjið upp 14 nýjar lykkjur í umferð = 264-264-308-308-308-352-352 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstrið og passið að snúningur í köðlum haldi áfram í 6. hverri umferð (köðlum er snúið í annað hvert skipti í annarri hverri einingu). Haldið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64-66 cm, mælt frá innsta punkti efst á öxl. Skiptið yfir á hringprjón 4, prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), jafnframt er aukið út um 1 lykkju í hverjum kaðli í fyrstu umferð, prjónið stroff þannig að það verði 1 lykkja brugðin, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðin yfir 3 lykkjur brugðið og stroffið endar og byrjar með 1 lykkju slétt yfir 9 lykkjur sem nú eru frá hverjum kaðli = 288-288-336-336-336-384-384 lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handvegi og niður. Leggið stykkið flatt og setjið eitt merki efst í handveginn = miðjan efst á öxl – ATH: Miðjan efst á öxl er ekki á sama stað og þar sem lykkjurnar voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur nokkra cm niður á framstykkið. Notið hringprjón 5 og prjónið upp lykkjurnar frekar fast (notið e.t.v. fínni prjón). PRJÓNIÐ UPP LYKKJUR ÞANNIG: Byrjið fyrir miðju í nýjum lykkjum fitjaðar upp undir erminni – prjónið upp 94-98-102-106-110-114-118 lykkjur – stillið af þannig að jafnmargar lykkjur séu hvoru megin við merkið. ERMAKÚPA: Til að ermin fái betra form er mynstrið prjónað með stuttum umferðum fram og til baka yfir ermakúpuna, umferðin byrjar fyrir miðju undir ermi og prjónað er þannig: 7-9-11-13-15-6-8 lykkjur sléttprjón, A.6 yfir næstu 66-66-66-66-66-88-88 lykkjur, prjónið síðan fyrstu 14 lykkjur í A.6, 7-9-11-13-15-6-8 lykkjur sléttprjón. Það eru 7-7-7-7-7-9-9 kaðlar á ermi, miðjan af þessum köðlum er fyrir miðju ofan á öxl. Jafnframt sem prjónaðar eru 10 umferðir yfir miðju 3 kaðlaeiningarnar ofan á erminni, byrjar snúningur í miðju kaðlinum. Passið uppá að snúningur í kaðli sé í réttri umferð eins og útskýrt er í A.6, þ.e.a.s. snúningur í kaðli er í annarri hverri einingu. Prjónið stuttar umferðir þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 18 lykkjur fram hjá merkinu efst á öxlinni, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 36 lykkjur, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 3-3-2-2-2-2-2-2 lykkjur fram hjá þar sem stykkinu var snúið við síðast, snúið stykkinu við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 3-3-2-2-2-2-2-2 lykkjur fram hjá þar sem stykkinu var snúið við síðast, snúið stykkinu við. Endurtakið UMFERÐ 3 og 4 þar til stykkið hefur verið snúið við alls 14-14-24-24-24-24-24 sinnum (= 7-7-12-12-12-12-12 sinnum í hvorri hlið og síðasta umferðin er prjónuð frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ VAR VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð, endið umferðina með því að snúa stykkinu við, prjónið síðan frá réttu að byrjun umferðarinnar (= miðja undir ermi). Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, merkiþráðurinn verður notað þegar lykkjum er fækkað undir erminni. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. ERMIN ÁFRAM NIÐUR: Nú er prjónað í hring með mynstri sem þegar er byrjað, haldið áfram að snúa köðlum í 6. Hverri umferð (köðlum er snúið í annað hvert skipti í annarri hverri einingu), JAFNFRAMT sem lykkjum er fækkað undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar ermin mælist 3 cm mælt í miðjunni undir erminni, fækkið um 2 lykkjur á með 4 cm millibili alls 8 sinnum = 78-82-86-90-94-98-102 lykkjur í umferð.Prjónið síðan þar til ermin mælist 49-50-51-52-47-48-49 cm frá miðju ofan á öxl. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 1 lykkju jafnt yfir í hverjum kaðli í umferð 1 – prjónið stroff þannig að það verði 1 lykkja brugðin, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðin yfir 3 lykkjur brugðið og stroffið endar og byrjar með 1 lykkju slétt yfir 9 lykkjur sem nú eru frá hverjum kaðli, að auki er aukið út um 1 lykkju fyrir miðju undir erminni = 86-90-94-98-102-108-112 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist u.þ.b. 52-53-54-55-51-52-53 cm frá miðju ofan á öxl. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 4. Byrjið frá réttu við aðra axlarlínuna og prjónið upp 84 til 94 lykkjur innan við 1 lykkju - fjöldi lykkja verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff í hring (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2 cm. Skiptið yfir í hringprjón 5,5. Prjónið 3 umferðir sléttprjón og fellið laust af með sléttum lykkjum (= rúllukantur). |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #queenofcablessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 44 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 267-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.