Mònica skrifaði:
Buenos días, quisiera tejer esta chaqueta pero empezando por abajo: ¿Dónde puedo encontrar instrucciones/indicaciones que me puedan ayudas en este sentido? Tanto para el cuerpo como para las mangas y los remates. Muchas gracias!
12.02.2026 - 13:28DROPS Design svaraði:
Hola Mònica, está es la única versión del patrón disponible, trabajada de arriba abajo. Puedes trabajar la chaqueta al contrario adaptando las instrucciones escritas y comenzando desde el final de la sección cuerpo y mangas hacia arriba, pero tendrías que calcular todos los cambios y cambiar los aumentos del canesú a disminuciones.
16.02.2026 - 13:54
Fairy Lights Cardigan#fairylightscardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Fiesta og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópsku berustykki, röndum, garðaprjóni og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 266-6 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 7 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 7 lykkjur): Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 9½-10-8½-9-9-9-9½ cm á milli hverra hnappagata. Stillið af að neðsta hnappagatið sé staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs á fram- og bakstykki. RENDUR: Rendurnar eru prjónaðar í sléttprjóni og garðaprjóni yfir 8 umferðir þannig: UMFERÐ 1-6: Prjónið sléttprjón með 1 þræði DROPS Fiesta í litnum Ljós Beige og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). UMFERÐ 7: Prjónið slétt með 1 þræði DROPS Fiesta í litnum Ljós Beige og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). ATH: Þegar rendurnar eru prjónaðar á berustykki og fram- og bakstykki, skiptið um lit eftir 7 kantlykkjur að framan (þ.e.a.s. rendurnar eru ekki prjónaðar yfir kanta að framan). UMFERÐ 8: Prjónið slétt frá röngu / brugðið frá réttu með 1 þræði DROPS Fiesta í litnum Ljós Beige og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Munið eftir að rendurnar eru ekki prjónaðar yfir kanta að framan. Endurtakið UMFERÐ 1-8 með röndum svona bæði á fram- og bakstykki og ermum. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Passið uppá að fækka lykkjum í einingu með sléttprjóni þegar rendurnar eru prjónaðar. Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ----------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. Stykkið er prjónað samkvæmt útskýringu 1-5. 1. BAKSTYKKI: Fitjaðar eru upp lykkjur aftan í hnakka og bakstykkið er prjónað fram og til baka niður á við jafnframt því sem lykkjum er aukið út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. 2. FRAMSTYKKI: Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, framstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni. 3. BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar á sama hringprjón – prjónað er þannig: Prjónið lykkjur frá öðru framstykkinu, prjónið upp lykkjur fyrir ermi meðfram hlið á framstykki, prjónið lykkjur frá bakstykki, prjónið upp lykkjur fyrir ermi meðfram hlið á hinu framstykkinu og prjónið síðustu lykkjur frá framstykki = síðan er berustykkið prjónað yfir allar lykkjur fram og til baka frá miðju að framan. 4. ÚTAUKNING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt því sem berustykkið er prjónað, á að auka út lykkjur fyrir ermar, fyrst er aukið út fyrir ermar og síðan er aukið út bæði fyrir fram- og bakstykki og ermar. 5. FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar allar lykkjur hafa verið auknar út og berustykkið hefur verið prjónað að tilgreindu máli, á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Fitjið upp 28-30-30-32-32-34-34 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði DROPS Fiesta í litnum Ljós Beige og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju til hægri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 9-9-9-9-10-10-10 sinnum, prjónið síðan UMFERÐ 2 0-0-1-1-0-0-1 sinni til viðbótar (= 18-18-19-19-20-20-21 umferðir prjónaðar), eftir síðustu útaukningu eru = 64-66-68-70-72-74-76 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Klippið frá, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón. HÆGRA FRAMSTYKKI: Finnið hægri öxlina á bakstykkinu þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjurnar frá þræði / hjálparprjóni snúi að þér, hægri hlið stykkisins = hægri öxl. Prjónið nú upp lykkjur meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl - byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Byrjið á að prjóna upp 1 lykkju alveg yst í horni á öxlinni (= kantlykkja), prjónið síðan upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkjuna (= 18-18-19-19-20-20-21 lykkja) = 19-19-20-20-21-21-22 lykkjur fyrir öxl. Setjið eitt merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í prjónstefnu. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 5-5-6-6-6-7-8 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt - munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-4-4-4-5-5-5 sinnum (= 8-8-8-8-10-10-10 umferðir prjónaðar) = 23-23-24-24-26-26-27 lykkjur. Í lok næstu umferðar frá réttu eru fitjaðar upp 16-17-17-18-17-18-18 nýjar lykkjur = 39-40-41-42-43-44-45 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu, fyrstu 7 lykkjurnar eru prjónaðar eins og KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD - sjá útskýringu að ofan. Útaukningu fyrir hálsmáli er nú lokið. Stykkið mælist ca 9-9-10-10-11-12-13 cm frá merki. Ca 2 cm af dýpt á hálsmáli mun teygja sig yfir á bakstykkið. Munið að fella af fyrir HNAPPAGAT í lok næstu umferðar frá réttu - sjá útskýringu að ofan. Prjónið sléttprjón með framkant eins og útskýrt er að ofan þar til hægra framstykki mælist 12-12-13-13-13-13-14 cm frá merki. Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón, prjónið nú vinstri öxl meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið upp lykkjur meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl - byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkjuna (= 18-18-19-19-20-20-21 lykkjur), endið með því að prjóna upp 1 lykkju alveg yst í hornið á öxlinni (= kantlykkja) = 19-19-20-20-21-21-22 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn að hálsmáli. Öll mál á lengdina eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 5-5-6-6-6-7-8 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-4-4-4-5-5-5 sinnum (= 8-8-8-8-10-10-10 umferðir prjónaðar) = 23-23-24-24-26-26-27 lykkjur. Í lok næstu umferðar frá röngu, fitjið upp 16-17-17-18-17-18-18 nýjar lykkjur = 39-40-41-42-43-44-45 lykkjur. Prjónið sléttprjón og framkant með i-cord (= 7 lykkjur) eins og útskýrt er að ofan þar til vinstra framstykkið mælist 12-12-13-13-13-13-14 cm frá merki, endið með umferð frá röngu. Nú eru framstykkin og bakstykkið sett saman og fitja á upp lykkjur fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Prjónið upp lykkjur í næstu umferð frá réttu þannig: Byrjið frá réttu með lykkjur frá vinstra framstykki: Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki í umferðina, prjónið upp 20-20-22-22-22-22-24 lykkjur meðfram hlið vinstra framstykki (= lykkjur fyrir ermi - lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkjuna), setjið 1 merki í umferð, prjónið fyrstu 2 lykkjurnar af bakstykkinu slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykkinu, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki, prjónið 20-20-22-22-22-22-24 lykkjur slétt meðfram hlið hægra framstykkis (= lykkjur fyrir ermi - lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkjuna), setjið 1 merki, setjið lykkjurnar frá hægra framstykki aftur á prjóninn, prjónið fyrstu 2 lykkjurnar slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið slétt þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið kant að framan eins og áður = 178-182-190-194-198-202-210 lykkjur. Í næstu umferð frá röngu, aukið aðeins út fyrir ermar, prjónið þannig: Prjónið kant að framan og prjónið brugðið að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið brugðið að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið kant að framan (= 4 lykkjur fleiri) = 182-186-194-198-202-206-214 lykkjur. Þú hefur aukið út 1 sinni fyrir ermar. Prjónið síðan RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Nú er einungis aukið út fyrir ermar og aðeins út frá réttu (ATH: á ekki við um stærð XXXL – þ.e. í XXXL er síðan prjónað frá næsta kafla þar sem aukið er út bæði á ermum og fram- og bakstykki), prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið eins og áður fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið eins og áður fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið eins og áður fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið eins og áður fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið eins og áður út umferðina (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið eins og áður með 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 6-6-6-5-3-1-0 sinnum (= 12-12-12-10-6-2-0 umferðir prjónaðar). Aukið hefur verið út alls 7-7-7-6-4-2-1 sinnum fyrir ermar = 34-34-36-34-30-26-26 lykkjur á hvorri ermi, 38-39-40-41-42-43-44 lykkjur á hvoru framstykki og 62-64-66-68-70-72-74 lykkjur á bakstykki = 206-210-218-218-214-210-214 lykkjur. Aukið síðan út bæði á ermum og fram- og bakstykki, aukið út á fram- og bakstykki 2 lykkjur innan við merkið þannig að það verða 2 lykkjur á milli útaukninga fyrir fram- og bakstykki og útaukningu fyrir ermi – munið eftir röndum og hnappagötum. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykki á undan fyrsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki á undan næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki á undan næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur, færið merkið á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið framkantinn eins og áður (= 8 lykkjur fleiri, þ.e.a.s. aukið hefur verið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið eins og áður með 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 8-10-12-14-17-20-23 sinnum (= 16-20-24-28-34-40-46 umferðir prjónaðar). Aukið hefur verið út alls 15-17-19-20-21-22-24 sinnum á ermum og 8-10-12-14-17-20-23 sinnum á fram- og bakstykki = 50-54-60-62-64-66-72 lykkjur á hvorri ermi, 46-49-52-55-59-63-67 lykkjur á hvoru framstykki og 78-84-90-96-104-112-120 lykkjur á bakstykki = 270-290-314-330-350-370-398 lykkjur. Ermin mælist ca 14-15-17-18-19-20-22 cm - þegar peysan er brotin tvöföld við öxlina á stykkið að mælast ca 20-21-24-25-26-27-29 cm frá yst á öxl og niður meðfram handveg. Stillið af þannig að stykkið skiptist ekki þegar prjóna á rönd. Skiptið nú berstykkinu í fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 46-49-52-55-59-63-67 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 50-54-60-62-64-66-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 78-84-90-96-104-112-120 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 50-54-60-62-64-66-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 46-49-52-55-59-63-67 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykkið og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 182-198-210-226-242-262-282 lykkjur. Prjónið sléttprjón, rendur og kant að framan eins og áður þar til stykkið mælist 42-44-46-48-49-51-53 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan. Prjónið síðan sléttprjón og kant að framan eins og áður án randa í 2 cm þar til stykkið mælist 44-46-48-50-51-53-55 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan. Í næstu umferð frá réttu, byrjar stroff, JAFNFRAMT og aukið er út um 47-53-59-59-67-73-79 lykkjur jafnt yfir í umferð (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan), prjónið þannig: Skipið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) – munið eftir útaukningunni þar til 7 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður = 229-251-269-285-309-335-361 lykkjur. Þegar stroffið mælist 7-7-7-7-8-8-8 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 51-53-55-57-59-61-63 cm frá miðju að aftan og 53-55-57-59-61-63-65 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 50-54-60-62-64-66-72 lykkjur af erminni af öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir erminni - sjá LEIÐBEININGAR ERMI = 56-62-68-72-74-78-86 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur undir erminni - umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón með RENDUR eins og áður í hring á prjóninum, munið að stilla mynstrið af frá berustykkinu - JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir erminni - lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur með 10-7-4½-4-3½-3-2 cm millibili alls 3-5-7-8-8-9-12 sinnum = 50-52-54-56-58-60-62 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 33-33-31-31-29-29-27 cm frá skiptingunni. Prjónið síðan sléttprjón eins og áður án randa í 2 cm þar til stykkið mælist 35-35-33-33-31-31-29 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr. 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 14-16-16-16-16-16-16 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 64-68-70-72-74-76-78 lykkjur. Þegar stroffið mælist 7-7-7-7-8-8-8 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 42-42-40-40-39-39-37 cm frá skiptingunni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón nr. 3,5 og 1 þráð DROPS Fiesta í litnum Ljós Beige og 1 þráð DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Byrjið frá réttu við miðju að framan og prjónið upp ca 89-93-95-101-103-109-111 lykkjur í kringum hálsmál (passið uppá að prjóna upp 1 lykkju í hverja kantlykkju að framan). Prjónið upp lykkjur innan við 1 lykkju, og fjöldi lykkja á að vera deilanlegur með 2 + 1. Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið áfram með hálsmál svona í 4-4-4-4½-4½-5-5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Saumið í tölur í vinstra framstykki. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #fairylightscardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 54 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 266-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.