Manuela skrifaði:
Sollen die Maschen für die Ärmel wirklich mit Nadelstärke Nr. 4 aufgenommen werden oder mit Nr. 6 wie der restliche Pullover?
02.04.2026 - 20:19
Elisabeth skrifaði:
Ich bin mir bei der Maschenprobe nicht sicher, ob ich mit einem Faden der Wolle die 10cm schaffen sollte oder mit allen 3 zusammen. Das steht nicht ganz klar verständlich. Ich stricke normalerweise immer genau mit der angegebenen Nadelstärke und habe mich gerade gewundert, weil ich bei 14 Maschen und Nadelstärke 6 mit der Zuckersteuselwolle nicht mal auf 8cm komme.
31.03.2026 - 18:22DROPS Design svaraði:
Liebe Elisabeth, die Maschenprobe wird mit 1 Faden Fiesta + 1 Faden Brushed Alpaca Silk gestrickt = 2 Fäden. Viel Spaß beim Stricken!
07.04.2026 - 15:40
Bubu skrifaði:
Empiècement: 1 maille 1 marqueur,12 mailles 1marqueur,24 mailles1marqueur, 12 mailles 1marqueur,puis 24 mailles. Ça fait 73mailles et non pas 72. Est ce une erreur? De plus,On augmente de chaque côté du marqueur pour les raglans? C’est pas clair…
18.03.2026 - 08:02DROPS Design svaraði:
Bonjour Bubu, les marqueurs sont ici placés entre les mailles, pas dans les mailles, vous aurez ainsi: le 1er marqueur après la 1ère maille puis 12 m pour chaque manche et 24 m pour le devant + 24 mailles entre le 4ème marqueur et le 1er marqueur (il vous restera effectivement 23 m avant la fin du tour + la maille après le 1er marqueur = vous avez bien 24 m pour le dos). Bo tricot!
18.03.2026 - 16:01
Bubu skrifaði:
Bonjour. Comment fait on pour augmenter pour le raglan, ce n’est pas precisé
14.03.2026 - 08:07DROPS Design svaraði:
Bonjour Bubu, les augmentations du raglan sont indiquées sous le paragraphe RAGLAN au début des explications - retrouvez cette technique ici, en vidéo. Bon tricot!
16.03.2026 - 08:02
Sweet Sprinkles Sweater#sweetsprinklessweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð stór / oversize peysa úr DROPS Fiesta og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og röndum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 267-7 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- RENDUR: Rendur eru prjónaðar yfir 8 umferðir þannig: UMFERÐ 1-6: Prjónið sléttprjón með 1 þræði DROPS Fiesta í litnum Natur og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir í litnum Natur). UMFERÐ 7: 1 umferð sléttprjón með 2 þráðum DROPS Fiesta í litnum Regnbogaskraut. UMFERÐ 8: 1 umferð brugðið með 2 þráðum DROPS Fiesta í litnum Regnbogaskraut. Endurtakið þessar 8 umferðir niður að stroffi bæði á fram- og bakstykki og ermum. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Ef umferðin er prjónuð með litnum Regnbogaskraut, prjónið alla uppslætti snúna brugðið. Ef umferðin er prjónuð með litnum Natur, prjónið uppsláttinn eins og útskýrt er að neðan: Á EFTIR MERKI (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Á UNDAN MERKI (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið til baka uppsláttinn yfir á vinstri prjóninn með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 72-72-72-80-80-88-88 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði DROPS Fiesta í litnum Natur og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 4-4-4-4-5-5-5 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 25-25-25-25-25-32-32 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 6. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett á milli 2 lykkja, þessar 2 lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Setjið 1. merki á eftir fyrstu lykkju, teljið 12-12-12-16-16-16-16 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki á undan næstu lykkju, teljið 24-24-24-24-24-28-28 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki á undan næstu lykkju, teljið 12-12-12-16-16-16-16 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki á undan næstu lykkju, það eru 24-24-24-24-24-28-28 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Prjónið núna hringinn með RENDUR – lesið leiðbeiningar að ofan og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið leiðbeiningar að ofan með útskýringu hvernig auka á út. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 17-19-21-22-24-25-27 sinnum = 208-224-240-256-272-288-304 lykkjur. ATH: Í byrjun umferðar er aukið út á eftir 1. merki og í lok umferðar er aukið út á undan 1. merki. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið eins og áður án þess að auka út þar til stykkið mælist ca 20-22-25-26-28-29-32 cm frá merki við miðju að framan – stillið af að hægt sé að skipta stykkinu í rönd með litnum Natur. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar stykkinu er skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar þá koma laskalykkjurnar til með að vera aðeins staðsettar inn á framstykki/bakstykki, þ.e.a.s. JAFNFRAMT því sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 3-3-3-5-5-6-8 lykkjur eins og áður fram hjá 1. merki, setjið næstu 40-44-48-50-54-54-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-10-12-14-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 64-68-72-78-82-90-98 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 40-44-48-50-54-54-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-10-12-14-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið eins og áður fram að 1. merki = 64-68-72-78-82-90-98 lykkjur (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 140-152-164-176-188-208-224 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= fyrir miðju í 6-8-10-10-12-14-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið hringinn eins og áður þar til stykkið mælist 45-48-50-51-52-54-56 cm frá merki við miðju að framan – stillið af að prjónaðar séu minnst 2 umferðir með litnum Natur fyrir stroff. Skiptið yfir á hringprjóna 4,5 og haldið áfram með litnum Natur og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 32-32-36-36-40-44-48 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 172-184-200-212-228-248-268 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 49-52-54-55-57-59-61 cm frá merki við miðju að framan og ca 53-56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 40-44-48-50-54-54-54 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 6 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-8-10-10-12-14-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 46-52-58-60-66-68-68 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-8-10-10-12-14-14 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið hringinn í röndum eins og áður – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð eftir skiptinguna, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 1-2-4-3-5-4-3 sinnum með 0-12-6-9-4-8-8 cm millibili (lykkjum er einungis fækkað 1 sinni í stærð XS) = 44-48-50-54-56-60-62 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist ca 39-39-37-37-35-33-31 cm frá skiptingunni – stillið af að prjónaðar séu minnst 2 umferðir í litnum Natur fyrir stroff. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og haldið áfram með litinn Natur og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 12-12-10-10-12-12-14 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 56-60-60-64-68-72-76 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 43-43-41-41-40-38-36 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetsprinklessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 267-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.