Soft Daffodil Cardigan#softdaffodilcardigan |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS BabyMerino og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með evrópsku berustykki, rúllukanti, i-cord og gatamynstri. Stærð XS - XXXL.
DROPS 268-13 |
|||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar prjónað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu. Í hverri mynstureiningu af A.1 á hæðina, prjónið 5-5-5-5-6-6-6 cm í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að allar lykkjur fyrir hálsmáli hafa verið fitjaðar upp á hægra framstykki. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-5-5-5 hnappagötum með ca 9½-10-8½-9-9-9-9½ cm milli hnappagata. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar fyrir lykkjufjölda og breyttu eftir þörfum. Stykkið er prjónað samkvæmt útskýringu 1-5. 1 BAKSTYKKI: Fitjaðar eru upp lykkjur aftan í hnakka og bakstykkið er prjónað fram og til baka niður á við jafnframt því sem lykkjum er aukið út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. 2 FRAMSTYKKI: Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, framstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni. 3 BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar á sama hringprjón – prjónað er þannig: Prjónið annað framstykkið, prjónið upp lykkjur fyrir ermi meðfram hlið á framstykki, prjónið lykkjur frá bakstykki, prjónið upp lykkjur fyrir ermi meðfram hlið á hinu framstykkinu og prjónið síðustu lykkjur frá framstykki = síðan er berustykkið prjónað yfir allar lykkjur fram og til baka frá miðju að framan. 4 ÚTAUKNING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt því sem berustykkið er prjónað, á að auka út lykkjur fyrir fram- og bakstykki og ermar, fyrst eru lykkjur einungis auknar út fyrir ermar og síðan eru lykkjur auknar út bæði á fram- og bakstykki og ermum. 5 FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar allar lykkjur hafa verið auknar út og berustykkið hefur verið prjónað að tilgreindu máli, á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 32-32-34-36-38-40-40 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði DROPS Baby Merino og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju til hægri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri, 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 10-10-10-10-10-11-11 sinnum (= 20-20-20-20-20-22-22 umferðir prjónaðar), eftir síðustu útaukningu eru = 72-72-74-76-78-84-84 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. HÆGRA FRAMSTYKKI: Finnið hægri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, hægri hlið á stykki = hægri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Byrjið á að prjóna upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 20-20-20-20-20-22-22 lykkjur. Setjið 1 merki í stykkið inn að hálsmáli. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 6-6-7-7-7-8-9 cm, aukið út lykkjur inn við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 6-6-6-6-6-6-6 sinnum (= 12-12-12-12-12-12-12 umferðir prjónaðar) = 26-26-26-26-26-28-28 lykkjur. Í lok næstu umferð frá réttu eru fitjaðar upp 17-17-18-19-20-21-21 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 43-43-44-45-46-49-49 lykkjur. Útaukningu fyrir hálsmáli er nú lokið. Stykkið mælist ca 11-11-12-12-12-13-14 cm frá merki. Smá hluti af dýpt á hálsmáli nær að teygja sig yfir á bakstykkið. Dýpt hálsmáls að framan = 9-9-9-9-9-10-11 cm. Dýpt hálsmáls að aftan = 2-2-3-3-3-3-3 cm. Prjónið sléttprjón með 7 kantlykkjum að framan með I-CORD við miðju að framan – lesið leiðbeiningar að ofan – þar til framstykkið mælist 11-12-13-13-14-14-15 cm frá merki – endið umferðina frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju = 20-20-20-20-20-22-22 lykkjur. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 6-6-7-7-7-8-9 cm, aukið út lykkjur fyrir hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 6-6-6-6-6-6-6 sinnum (= 12-12-12-12-12-12-12 umferðir prjónaðar) = 26-26-26-26-26-28-28 lykkjur. Í lok næstu umferð frá röngu eru fitjaðar upp 17-17-18-19-20-21-21 nýjar lykkjur í lok umferðar = 43-43-44-45-46-49-49 lykkjur. Útaukningu fyrir hálsmáli er nú lokið. Stykkið mælist ca 11-11-12-12-12-13-14 cm frá merki. Smá hluti af dýpt á hálsmáli nær að teygja sig yfir á bakstykkið. Dýpt hálsmáls að framan = 9-9-9-9-9-10-11 cm. Dýpt hálsmáls að aftan = 2-2-3-3-3-3-3 cm. Prjónið sléttprjón með 7 kantlykkjur að framan með i-cord við miðju að framan þar til framstykkið mælist 11-12-13-13-14-14-15 cm frá merki – endið umferð frá röngu, ekki klippa þráðinn. Síðan eru framstykkin og bakstykkið sett saman og lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermi eins og útskýrt er að neðan. Það á einnig að prjóna MYNSTUR, þannig að lesið kaflann að neðan áður en prjónað er áfram og aukið út eins og útskýrt er í BERUSTYKKI. MYNSTUR: Mynstrið byrjar þegar prjónaðir hafa verið 1½ cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir ermar. Byrjið frá réttu og prjónið þannig: 7 kantlykkjur að framan eins og áður, A.1 þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt (þessi lykkja er prjónuð brugðið þegar prjónuð er frá röngu) og endið með 7 kantlykkjur að framan eins og áður (munið eftir útaukningu fyrir berustykki). Á milli hverra mynstureininga með A.1 á hæðina, prjónið 5-5-5-5-6-6-6 cm í sléttprjóni. Passið uppá að enda stykkið með minnst 3 cm sléttprjón á undan stroffi. BERUSTYKKI: UMFERÐ 1 (= rétta): Byrjið frá réttu með lykkjur frá vinstra framstykki: Prjónið eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki hér, prjónið upp 22-22-24-24-26-26-28 lykkjur meðfram hlið á vinstra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjur eru prjónaðar upp á undan ystu lykkju), setjið 1 merki, prjónið fyrstu 2 lykkjur frá bakstykki slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki, prjónið upp 22-22-24-24-26-26-28 lykkjur meðfram hlið á hægra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjurnar eru prjónaðar upp á undan ystu lykkju), setjið 1 merki, setjið til baka lykkjur frá hægra framstykki á prjóninn, prjónið fyrstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið yfir lykkjur frá hægra framstykki eins og áður = 198-198-206-210-218-230-234 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið eins og áður og brugðið fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið brugðið fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið út umferðina eins og áður = 202-202-210-214-222-234-238 lykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið eins og áður fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið út umferðina eins og áður = 206-206-214-218-226-238-242 lykkjur. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið kantlykkjur að framan eins og áður og brugðið fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið brugðið fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið út umferðina eins og áður = 210-210-218-222-230-242-246 lykkjur. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið eins og áður fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið út umferðina eins og áður = 214-214-222-226-234-246-250 lykkjur. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið brugðið með 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður án þess að auka út. Á EFTIR UMFERÐ 6: Prjónið umferð 5 og 6 7-5-5-6-3-2-0 sinnum til viðbótar (= 14-10-10-12-6-4-0 umferðir prjónaðar). Aukið hefur verið út alls 11-9-9-10-7-6-4 sinnum fyrir ermar = 44-40-42-44-40-38-36 lykkjur á hvorri ermi, 42-42-43-44-45-48-48 lykkjur á hvoru framstykki og 70-70-72-74-76-82-82 lykkjur á bakstykki = 242-234-242-250-246-254-250 lykkjur. Síðan á að auka út bæði á ermum og á fram- og bakstykki, aukið er út á fram- og bakstykki 2 lykkjum á undan merki þannig að það eru 2 lykkjur á milli útaukninga fyrir fram- og bakstykki og útaukningu fyrir ermar – næsta umferð er prjónuð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið eins og áður þar til til 2 lykkjur eru eftir á undan fyrsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki á undan næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkju slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið út umferðina eins og áður (= 8 lykkjur fleiri og aukið hefur verið út í hvorri hlið um 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykki og erma). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið kant að framan í hvorri hlið. Endurtakið þessar 2 umferðir þar til aukið hefur verið út alls 6-10-11-13-16-19-22 sinnum á fram- og bakstykki og ermar. Aukið hefur verið út alls 17-19-20-23-23-25-26 sinnum á ermum = 56-60-64-70-72-76-80 lykkjur á hvorri ermi, 48-52-54-57-61-67-70 lykkjur á hvoru framstykki og 82-90-94-100-108-120-126 lykkjur á bakstykki = 290-314-330-354-374-406-426 lykkjur. Ermin mælist ca 13-14-15-17-17-19-20 cm – þegar peysan er brotinn saman tvöföld við öxlina, á stykkið að mælast ca 19-20-22-24-24-26-28 cm frá yst á öxl og niður meðfram handvegi. Ef stykkið mælist minna en þetta er prjónað áfram að réttu máli án útaukningar. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 48-52-54-57-61-67-70 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 56-60-64-70-72-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-10-12-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 82-90-94-100-108-120-126 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 56-60-64-70-72-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-10-12-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 48-52-54-57-61-67-70 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 190-206-218-234-254-278-294 lykkjur. Prjónið sléttprjón, mynstur og kant að framan eins og áður í hvorri hlið þar til stykkið mælist 46-48-49-51-52-54-56 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan – stillið af að það séu minnst 3 cm í sléttprjóni á undan stroffi. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroffið JAFNFRAMT sem aukið er út um 27-29-33-35-37-39-45 lykkjur jafnt yfir í umferð (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan), prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 2,5, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) – munið eftir útaukningunni þar til 8 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og kantlykkjur að framan eins og áður = 217-235-251-269-291-317-339 lykkjur. Prjónið stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 50-52-53-55-57-59-61 cm frá miðju að aftan og 52-54-56-58-60-62-64 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 56-60-64-70-72-76-80 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-10-12-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 62-66-72-80-84-88-94 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-6-8-10-12-12-14 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón og mynstur hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 8-6-4½-3-2½-2-1½ cm alls 4-6-8-11-12-13-15 sinnum = 54-54-56-58-60-62-64 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 37-38-39-37-35-33-32 cm frá skiptingunni – passið uppá að það séu minnst 3 cm sléttprjón á undan stroffi. Skiptið yfir á hringprjón 2,5, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 8-8-8-8-10-10-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 62-62-64-66-70-72-74 lykkjur. Prjónið þar til stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm, fellið að með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist alls 41-42-43-41-39-38-37 cm frá skiptingunni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 2,5. Byrjið frá réttu við miðju að framan og prjónið upp ca 109 til 131 lykkjur í kringum hálsmál, lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2+1. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og kant að framan eins og áður. Prjónið 1 umferð stroff frá réttu. Prjónið 3 umferðir sléttprjón með kant að framan eins og áður (= rúllukantur), notið hringprjón 5 og fellið af frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #softdaffodilcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 54 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 268-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.