Chilly Charm Sweater#chillycharmsweater |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Karisma. Peysan er prjónuð ofan frá og niður með evrópskri / skáhallandi öxl og köðlum. Stærð 2 – 14 ára.
DROPS Children 50-16 |
|||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til lykkjufjöldi fyrir axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið smá skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða á meðan framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 stykkjum. Byrjið á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, samtímis sem aukið er út við hálsmál. Endurtakið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukningu er lokið fyrir hálsmáli. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 25-29-29-33-33-33-37 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Karisma. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri, 3 lykkjur brugðið. Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 7-7-8-8-9-10-10 sinnum (= 14-14-16-16-18-20-20 umferðir prjónaðar), á eftir síðustu útaukningu eru = 53-57-61-65-69-73-77 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið síðan í sléttprjóni - Munið að fylgja prjónfestunni – þar til stykkið mælist 3-4-5-6-7-7-8 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 6 sinnum (= 12 umferðir prjónaðar) = 65-69-73-77-81-85-89 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 7-8-9-10-11-11-12 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi. Klippið þráðinn og setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju (= 14-14-16-16-18-20-20 lykkjur), endið með að prjóna upp 1 lykkju yst að öxlinni = 15-15-17-17-19-21-21 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið fyrstu umferð frá röngu samtímis sem aukið er út með uppslætti þannig: Prjónið 3-3-5-5-7-9-9 lykkjur brugðið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 4 lykkjur brugðið samtímis sem aukið er út um 2 lykkjur jafnt yfir þessar (= 6 lykkjur), prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur brugðið jafnframt því sem aukið er út um 2 lykkjur jafnt yfir (= 7 lykkjur) = 19-19-21-21-23-25-25 lykkjur – uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð svo ekki myndist gat. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): A.1, A.2, 3-3-5-5-7-9-9 lykkjur sléttprjón. UMFERÐ 2 (= ranga): 3-3-5-5-7-9-9 lykkjur sléttprjón, A.2, A.1 – frá röngu er alltaf prjónaðar sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Endurtakið UMFERÐ 1 og 2 þar til A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina 1 sinni (= 24-24-24-30-30-30-30 umferðir prjónaðar) – síðasta umferð er prjónuð frá röngu, stykkið mælist nú ca 9-9-9-11-11-11-11 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp = 26-26-28-28-30-32-32 lykkjur. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á hjálparprjón og prjónið hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Finnið hægri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, hægri hlið á stykki = hægri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inna að hálsmáli þannig: Byrjið á að prjóna upp 1 lykkju alveg yst í horni á öxlinni, prjónið síðan upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (= 14-14-16-16-18-20-20 lykkjur) = 15-15-17-17-19-21-21 lykkjur fyrir öxl. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið fyrstu umferð frá röngu samtímis sem aukið er út með uppslætti þannig: Prjónið 5 lykkjur brugðið samtímis sem aukið er út um 2 lykkjur jafnt yfir (= 7 lykkjur), prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur brugðið jafnframt því sem aukið er út um 2 lykkjur jafnt yfir (= 6 lykkjur), prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 3-3-5-5-7-9-9 lykkjur brugðið = 19-19-21-21-23-25-25 lykkjur – uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð svo ekki myndist gat. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): 3-3-5-5-7-9-9 lykkjur sléttprjón, A.3, A.4. UMFERÐ 2 (= ranga): A.4, A.3, 3-3-5-5-7-9-9 lykkjur sléttprjón – frá röngu er alltaf prjónaðar sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Endurtakið UMFERÐ 1 og 2 þar til A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina 1 sinni (= 24-24-24-30-30-30-30 umferðir prjónaðar) – síðasta umferð er prjónuð frá röngu, stykkið mælist nú ca 9-9-9-11-11-11-11 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp = 26-26-28-28-30-32-32 lykkjur. Síðan eru framstykkin sett saman eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI (hægra og vinstra stykki sett saman): Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 26-26-28-28-30-32-32 lykkjur frá hægra framstykki þannig: Prjónið 3-3-5-5-7-9-9 lykkjur sléttprjón, prjónið A.3 (= 7 lykkjur), A.5 (= 8 lykkjur), A.6 (= 6 lykkjur), 2 lykkjur slétt, fitjið upp 14-20-20-20-20-20-26 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið 26-26-28-28-30-32-32 lykkjur frá vinstra framstykki þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, A.6 (= 6 lykkjur), A.7 (= 8 lykkjur), A.2 (= 7 lykkjur), endið með 3-3-5-5-7-9-9 lykkjur sléttprjón = 66-72-76-76-80-84-90 lykkjur í umferð. Prjónið síðan mynstur þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir allar lykkjur, nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli eru prjónaðar brugðið í umferð 1. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 3-3-5-5-7-9-9 lykkjur sléttprjón, prjónið A.3, prjónið A.5, prjónið A.6 alls 5-6-6-6-6-6-7 sinnum, prjónið A.7, prjónið A.2, endið með 3-3-5-5-7-9-9 lykkjur sléttprjón. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið mynstur eins og áður – frá röngu er alltaf prjónaðar sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Prjónið UMFERÐ 2 og 3 þar til framstykkið mælist 15-16-17-18-19-21-22 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið mynstur eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið mynstur eins og áður – frá röngu eru alltaf prjónaðar sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 6 sinnum (= 12 umferðir prjónaðar) = 78-84-88-88-92-96-102 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 19-20-21-22-23-25-26 cm, endið með umferð frá röngu. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Framstykkið er lengra en bakstykkið, ca 3 cm af hálsmálinu kemur til með að vera á bakhlið á stykkinu. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 78-84-88-88-92-96-102 lykkjur frá framstykki eins og áður, fitjið upp 4 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 65-69-73-77-81-85-89 lykkjur frá bakstykki eins og áður, fitjið upp 4 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) = 151-161-169-173-181-189-199 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður hringinn þar til stykkið mælist 26-29-33-37-40-42-44 cm, mælt frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 15-17-19-23-23-23-23 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 (lykkjur eru ekki auknar út yfir mynstur) = 166-178-188-196-204-212-222 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 30-33-37-41-45-47-49 cm frá miðju að aftan og 33-36-40-44-48-50-52 cm frá öxl. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handveg og niður. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = fyrir miðju ofan á öxl – ATH: Miðja ofan á öxl er ekki á sama stað og lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur nokkrum cm niður á framstykki. Notið hringprjón 4 og prjónið upp lykkjur aðeins fast (notið e.t.v. fínni prjón). PRJÓNIÐ UPP LYKKJUR ÞANNIG: Byrjið fyrir miðju í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 56-60-64-68-72-76-80 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur hvoru megin við merkið. ERMAKÚPA: Til að ermin passi betur er prjónað sléttprjón með stuttum umferðum fram og til baka yfir ermkúpuna, byrjun umferðar er við miðju undir ermi og prjónað er þannig. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 3 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4. Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 20 sinnum (= 10 sinnum í hvorri hlið og síðasta prjónaða umferðin er frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð endar umferðin með að snúa stykkinu, síðan er prjónað frá réttu að byrjun umferðar (fyrir miðju undir ermi). Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, merkiþráðurinn er notaður þegar fækka á lykkjum undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. SÍÐAN ERMIN NIÐUR: Nú er prjónað í hring í sléttprjóni yfir allar lykkjur JAFNFRAMT sem lykkjum er fækkað undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar prjónuð hefur verið 1 umferð byrjar úrtaka fyrir miðju undir ermi. Fækkað er um 2 lykkjur í hverjum 2-2½-2½-2½-2½-2½-3 cm alls 8-9-10-11-12-13-14 sinnum = 40-42-44-46-48-50-52 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 26-31-35-39-42-46-50 cm frá miðju ofan á öxl. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 8-8-8-10-10-10-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 48-50-52-56-58-60-62 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 30-35-39-43-47-51-55 cm frá miðju ofan á öxl. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3. Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 74-84-84-98-98-98-108 lykkjur í kringum hálsmál innan við 1 lykkju – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið 1 umferð brugðið, síðan 1 umferð slétt (= 2 umferðir garðaprjón). Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4-4-4-5-5-5-5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #chillycharmsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 46 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 50-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.