Creamy Comfort Sweater#creamycomfortsweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr 2 þráðum DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, köðlum og rúllukanti. Stærð 2 – 14 ára.
DROPS Children 50-8 |
|||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð – byrjið við örina. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar prjónað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu (á við peysu með kanti fyrir tölur). HNAPPAGÖT (á við um peysu með tölukanti): Fellið af fyrir hnappagötum í kanti á framstykki. Fellið af frá réttu í byrjun umferðar þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman. UMFERÐ 2 (= ranga): Þegar eftir eru 4 lykkjur í umferð er kantur að framan prjónaður eins og áður og uppslátturinn er prjónaður slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að rúllukantur hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 2-2-2-3-3-4-4 næstu hnappagötum með ca 2½-2½-2½-2½-2½-3-3 cm á milli hverra hnappagata. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (þegar prjónað er fram og til baka): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (= ranga) er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er hér að neðan: Á EFTIR LASKALYKKJUM (= uppslátturinn er snúinn til hægri): Færið uppsláttinn frá vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn aftur á vinstri prjóninn með því að stinga vinstri prjóninum að aftan inn í uppsláttinn (uppslátturinn er nú snúinn). Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn - þannig að engin göt myndist. Nýju lykkjurnar eru prjónaðar í sléttprjóni eða smám saman inn í mynstrið. Á UNDAN LASKALYKKJUM (= uppslátturinn er snúinn til vinstri): Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – þannig að engin göt myndist. Nýju lykkjurnar eru prjónaðar í sléttprjóni eða smám saman inn í mynstrið. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (þegar prjónað er í hring): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er hér að neðan: Á EFTIR LASKALYKKJUM (= uppslátturinn er snúinn til vinstri): Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – þannig að engin göt myndist. Nýju lykkjurnar eru prjónaðar í sléttprjóni eða smám saman inn í mynstrið. Á UNDAN LASKALYKKJUM (= uppslátturinn er snúinn til hægri): Færið uppsláttinn frá vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn aftur á vinstri prjóninn með því að stinga vinstri prjóninum að aftan inn í uppsláttinn (uppslátturinn er nú snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn - þannig að engin göt myndist. Nýju lykkjurnar eru prjónaðar í sléttprjóni eða smám saman inn í mynstrið. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Öll peysan er prjónuð með 2 þráðum. Kaðlarnir eru einungis á framstykki. Stykkið er prjónað ofan frá og niður og hægt er að prjónað peysuna með eða án talna á framstykki. Í peysu með tölum að framan þá er kantur í hálsmáli og berustykki fyrst prjónað fram og til baka, síðan er berustykkið prjónað í hring. Í peysu án talna að framan þá er kantur í hálsmáli og berustykki prjónað í hring. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI OG BERUSTYKKI (valmöguleiki-1 með kanti fyrir tölum og hnappagötum): Ef þú vilt peysu án talna að framan, prjónaðu þá valkost-2 fyrir hálsmál og berustykki eins og útskýrt er hér að neðan. Fitjið upp 72-72-80-80-88-88-88 lykkjur á hringprjón 5 með 2 þráðum DROPS Alpaca. Skiptið yfir á hringprjón 4 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði ekki of stífur). Prjónið sléttprjón fram og til baka í 3-3-3-4-4-4-4 cm (= rúllukantur) – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Byrjun umferðar er við hægri öxl að framan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 16-16-18-18-20-20-20 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. Prjónið síðan með hringprjón 5. Nú eru sett 3 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett á milli 2 lykkja, þessar 2 lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Kantur fyrir tölur kemur í stað laskalykkja í lokin og í byrjun umferðar, þannig að aukið er út um 1 lykkju á eftir fyrstu 4 lykkjunum og 1 lykkju á undan síðustu 4 lykkjunum í umferð. Teljið 4 lykkjur (= kantur fyrir hnappagöt), teljið 24-24-28-28-32-32-32 lykkjur (= framstykki), setjið 1. merki á undan næstu lykkju, teljið 8 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki á undan næstu lykkju, teljið 25-25-29-29-33-33-33 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merki á undan næstu lykkju, teljið 7 lykkjur (= ermi), það eru eftir 4 lykkjur (= kantur fyrir tölur). Laskalykkjurnar eru prjónaðar í sléttprjóni, á meðan fyrstu og síðustu 4 lykkjurnar eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar í útskýringu að ofan (= kantur fyrir tölur og hnappagöt). Nú á að auka út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð samtímis sem MYNSTUR er prjónað. Kaðlarnir eru einungis á framstykki – þegar útaukningu í A.1a er lokið, er haldið áfram að prjóna A.1x yfir miðju 33 lykkjurnar á framstykki samtímis sem auka á út í sléttprjóni. Munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir á undan fyrsta merki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (= merkið situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan næsta merki (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (= merkið situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan næsta merki (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (= merkið situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, prjónið sléttprjón eins og áður fram að síðasta merki, prjónið 1 lykkju sléttprjón, prjónið mynstur eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 7-7-7-9-9-11-11 sinnum (= 14-14-14-18-18-22-22 umferðir prjónaðar) = 128-128-136-152-160-176-176 lykkjur í umferð. Nú á að vera búið að fella af fyrir öllum hnappagötum. Munið að fylgja prjónfestunni. Í næstu umferð er stykkið sett saman með því að lykkjurnar frá kanti fyrir hnappagöt og kanti fyrir tölur eru prjónaðar slétt saman eins og útskýrt er að neðan, síðan er berustykkið prjónað í hring. Prjónið þannig: Setjið inn síðustu 4 lykkjurnar í umferð á kaðlaprjón sem haldið er fyrir aftan stykkið, * setjið innstu lykkjuna af kaðlaprjóninum á vinstri prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja í garðaprjóni frá hvorum kanti að framan verður að 1 lykkju í garðaprjóni) *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum þar til einungis 4 lykkjur eru eftir í garðaprjóni í umferð (= 4 lykkjur færri), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir á undan fyrsta merki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (= merkið situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan næsta merki (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (= merkið situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan næsta merki (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (= merkið situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón að 4 lykkjum í garðaprjóni (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 8 lykkjur fleiri og 4 lykkjur færri) = 132-132-140-156-164-180-180 lykkjur. Setjið 1 merki í umferð á undan 4 lykkjum í garðaprjóni, þetta er byrjun umferðar. Prjónið síðan berustykkið í hring. LESIÐ LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón, A.1 og 4 lykkjur í garðaprjóni eins og áður án þess að auka út (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2). UMFERÐ 2: Prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir á undan fyrsta merki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (= merkið situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan næsta merki (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (= merkið situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan næsta merki (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (= merkið situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón þar til 2 lykkjur eru eftir í garðaprjóni í umferð (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 8 lykkjur fleiri). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 6-7-8-7-8-7-9 sinnum (= 12-14-16-14-16-14-18 umferðir prjónaðar) = 180-188-204-212-228-238-250 lykkjur í umferð. Aukið hefur verið út alls 14-15-16-17-18-19-21 sinnum fyrir laskalínu (= 28-30-32-34-36-38-42 umferðir prjónaðar). Í næstu umferð eru fyrstu 4 lykkjur slétt prjónaðar slétt saman 2 og 2 (= 2 lykkjur færri), setjið 1 merki fyrir miðju í þessar 2 lykkjur (= byrjun umferðar), síðan eru þessar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni = 178-186-202-210-226-234-250 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón og mynstur án þess að auka út, þar til stykkið mælist 13-14-15-16-17-18-20 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. KANTUR Í HÁLSMÁLI OG BERUSTYKKI (valmöguleiki-1 án kants fyrir tölur og hnappagötum): Ef þú vilt peysu með tölum að framan, prjónaðu þá valkost-1 fyrir hálsmál og berustykki eins og útskýrt er hér að ofan. Fitjið upp 64-66-72-74-80-80-82 lykkjur á hringprjón 5 með 2 þráðum DROPS Alpaca. Skiptið yfir á hringprjón 4 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði ekki of stífur). Prjónið sléttprjón í hring í 3-3-3-4-4-4-4 cm (= rúllukantur) jafnframt sem í síðustu umferð er aukið út um 2-0-2-0-2-2-0 lykkjur jafnt yfir = 66-66-74-74-82-82-82 lykkjur. Byrjun umferðar er við hægri öxl að framan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 3-13-15-15-17-17-17 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett á milli 2 lykkja, þessar 2 lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Laskalykkjurnar eru prjónaðar í sléttprjóni. Setjið 1. merki á undan fyrstu lykkju, teljið 25-25-29-29-33-33-33 lykkjur (= framstykki), Setjið 2. merki á undan næstu lykkju, teljið 8 lykkjur (= ermi), Setjið 3. merki á undan næstu lykkju, teljið 25-25-29-29-33-33-33 lykkjur (= bakstykki), Setjið 4. merki á undan næstu lykkju, það eru eftir 8 lykkjur á eftir síðasta merki (= ermi). Prjónið sléttprjón og mynstur hringinn og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið fyrstu umferð með byrjun frá hægri öxl að framan þannig – athugið að umferðin byrjar fyrir miðju í 2 laskalykkjunum. Nú á að auka út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð samtímis sem MYNSTUR er prjónað, kaðlarnir eru einungis á framstykki. Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón með A.1 yfir framstykki og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). ATH: Í byrjun umferðar er aukið út á eftir fyrstu lykkju og í lok umferðar er aukið út á undan síðustu lykkju. Þegar útaukning í A.1a hefur verið gerð til loka, er haldið áfram að prjóna A.1x yfir miðju 33 lykkjurnar á framstykki sem auka á út í sléttprjóni. UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður, uppslátturinn er prjónaður snúinn eins og útskýrt er í LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 14-15-16-17-18-19-21 sinnum (= 28-30-32-34-36-38-42 umferðir prjónaðar) = 178-186-202-210-226-234-250 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan sléttprjón og mynstur án þess að auka út, þar til stykkið mælist 13-14-15-16-17-18-20 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar berustykki að eigin vali hefur verið prjónað til loka, heldur mynstrið áfram á sama hátt fyrir báða valmöguleikana héðan. JAFNFRAMT sem í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 53-55-61-63-69-71-75 lykkjur sléttprjón og mynstur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 36-38-40-42-44-46-50 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 53-55-61-63-69-71-75 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki), setjið næstu 36-38-40-42-44-46-50 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 4 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 114-118-130-134-146-150-158 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= fyrir miðju í 4 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Byrjið umferð við merki og prjónið í hring. Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 28-31-35-38-42-44-46 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 4, prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt / 3 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 0-2-2-4-4-6-4 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 114-120-132-138-150-156-162 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-4-4-4-4 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 31-34-38-42-46-48-50 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 33-36-40-44-48-50-52 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 36-38-40-42-44-46-50 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 4 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 40-42-44-46-48-50-54 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 4 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 3-3-3-4-4-4-5 sinnum í hverjum 7-9-10-8-9-10-9 cm = 34-36-38-38-40-42-44 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 18-23-26-29-32-36-39 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt / 3 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 2-0-4-4-2-0-4 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 36-36-42-42-42-42-48 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-4-4-4-4 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 21-26-29-33-36-40-43 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR (á við um valmöguleika-1 með tölum): Saumið tölur í aftari kantinn þannig að tölurnar passi í hnappagötin. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #creamycomfortsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 50-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.