Cookie Parade Sweater#cookieparadesweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og marglitu mynstri með piparkökum og hjörtum. Stærð 2 – 14 ára.
DROPS Children 50-2 |
|||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- UPPHÆKKUN: Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þú ætlar ekki að hafa upphækkun. Byrjið frá réttu og prjónið 11-12-13-14-15-16-17 lykkjur slétt fram hjá merkiþræði í byrjun umferðar (miðja að aftan), snúið og prjónið 22-24-26-28-30-32-34 lykkjur brugðið. Notið German Short Rows, svo ekki myndist gat – lesið leiðbeiningar að neðan. Snúið, herðið á þræði og prjónið 33-36-39-42-45-48-51 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 44-48-52-56-60-64-68 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 55-60-65-70-75-80-85 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 66-72-78-84-90-96-102 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka að merkiþræði að miðju að aftan. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er í uppskrift. GERMAN SHORT ROWS: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um fyrir miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 80-84-86-88-90-94-96 lykkjur á hringprjón 3 með litnum Nougat í DROPS Sky. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 3 cm. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar (mitt að aftan). Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 24-26-28-30-32-32-34 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 104-110-114-118-122-126-130 lykkjur. Setjið 1 merki fyrir miðju í umferð (mitt að framan), berustykkið er nú mælt frá þessu merki. Nú er prjónuð UPPHÆKKUN aftan í hnakka – lesið útskýringu að ofan. Prjónið sléttprjón hringinn. Munið að fylgja prjónfestunni. Þegar berustykkið mælist 2-2-3-3-3-3-3 cm frá merki fyrir miðju að framan, aukið út 26-30-26-32-38-44-50 lykkjur jafnt yfir = 130-140-140-150-160-170-180 lykkjur. Prjónið 0-0-0-0-1-1-2 cm í sléttprjóni og með litnum Nougat, stykkið mælist nú ca 2-2-3-3-4-4-5 cm frá merki fyrir miðju að framan. Prjónið síðan mynstur jafnframt því sem haldið er áfram með útaukningu eins og útskýrt er að neðan – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN og MYNSTUR í útskýringu að ofan. Prjónið A.1 hringinn á berustykki. JAFNFRAMT í hverri umferð með ör í mynsturteikningu er lykkjum aukið út eins og útskýrt er að neðan – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: ÖR-1: Aukið út 30-28-36-42-40-38-44 lykkjur jafnt yfir = 160-168-176-192-200-208-224 lykkjur. ÖR-2: Aukið út 24-32-32-32-40-40-40 lykkjur jafnt yfir = 184-200-208-224-240-248-264 lykkjur. ÖR-3: Aukið út 16-20-22-16-20-22-16 lykkjur jafnt yfir = 200-220-230-240-260-270-280 lykkjur. ÖR-4: Aukið út 8-4-10-8-4-2-8 lykkjur jafnt yfir = 208-224-240-248-264-272-288 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið síðan í sléttprjóni með litnum Nougat, JAFNFRAMT þegar berustykkið mælist 14-14-15-16-17-18-19 cm frá merki fyrir miðju að framan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. ATH! Ef A.1 er ekki lokið þegar stykkinu er skipt upp, þá er mynstrið prjónað til loka eftir skiptinguna! Allar útaukningar verða að vera búnar áður en stykkinu er skipt. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 31-34-37-38-41-42-45 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki), setjið næstu 42-44-46-48-50-52-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 62-68-74-76-82-84-90 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 42-44-46-48-50-52-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 31-34-37-38-41-42-45 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 140-152-164-168-180-184-196 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hlið á stykki – mitt í 8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Klippið þráðinn og byrjið umferðina við merkið, eða prjónið með litnum Nougat fram að merkii (= umferðin byrjar hér). Prjónið sléttprjón hringinn með litnum Nougat – ef A.1 hefur ekki verið prjónað til loka áður en stykkinu var skipt upp fyrir fram- og bakstykki og ermar, prjónið A.1 til loka, fækkið þá um 4-0-4-0-4-0-4 lykkjur jafnt yfir í umferð án mynsturs, þannig að mynstrið gangi jafnt upp hringinn á fram- og bakstykki. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, aukið út 4-0-4-0-4-0-4 lykkjur jafnt yfir. Ef A.1 hefur verið prjónað til loka á undan skiptingunni fyrir fram- og bakstykki og ermar, á ekki að jafna lykkjufjöldann út. Prjónið síðan sléttprjón með litnum Nougat. Prjónið þar til stykkið mælist 29-33-37-41-42-44-46 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-14-14-16-16-18-20 lykkjur jafnt yfir = 152-166-178-184-196-202-216 lykkjur. Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 3-3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 32-36-40-44-46-48-50 cm frá merki fyrir miðju að framan og 36-40-44-48-50-52-54 cm frá öxl. ERMI: Setjið 42-44-46-48-50-52-54 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi með litnum Nougat = 50-52-54-56-58-60-62 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi – þ.e.a.s. mitt í 8 nýju lykkjurnar. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu, það á að nota hann þegar fækka á lykkjum. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. ATH! Ef A.1 hefur ekki verið prjónað til loka, haldið áfram með mynstur, prjónið síðan með litnum Nougat. Mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp fyrir miðju undir ermi, en prjónið mynstrið þannig að það haldi áfram yfir mynstur frá berustykki og eins langt og hægt er að miðju undir ermi. Þegar ermin mælist 2-2-3-4-4-4-4 cm, fækkið um 2 lykkjur fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverjum 3-3½-4-4½-5-6-7 cm alls 6 sinnum = 38-40-42-44-46-48-50 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 21-24-28-33-36-39-43 cm frá skiptingunni. Það eru eftir ca 4 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-4-4-4-6-6-6 lykkjur jafnt yfir = 42-44-46-48-52-54-56 lykkjur. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 3-3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 24-27-31-36-40-43-47 cm frá skiptingunni. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cookieparadesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 50-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.