Old Friend Cardigan#oldfriendcardigan |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með áferðamynstri og v-hálsmáli. Stærð XS - XXXL.
DROPS 260-37 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig (= 10 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 8 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig (= 10 lykkjur): Prjónið þar til 10 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 8 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar prjónað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan frá réttu (kantur að framan = 10 lykkjur): UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 5. Og 6. Lykkju frá kanti fyrir miðju að framan slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, síðan halda lykkjurnar á framstykki áfram eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist 4-4-3-4-5-6-4½ cm, fellið síðan af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: XS: 13-22-31 og 41 cm. S: 13½-23-32½ og 42 cm. M: 13-23-33 og 43 cm. L: 14-24-34 og 44 cm. XL: 13-21-29-37 og 45 cm. XXL: 14-22-30-38 og 46 cm. XXXL: 13-21½-30-38½-og 47 cm. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (á við um v-hálsmál): FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR MERKI ÞANNIG: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN MERKI ÞANNIG: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með merki í þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan lykkju með merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 3 lykkjur slétt (merkið situr í miðju af þessum 3 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breytið eftir þörfum. Stykkið er prjónað fram og til baka, neðan frá og upp. Framstykkin og bakstykkið er prjónað í eitt upp að handvegi. Síðan eru framstykkin og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Axlirnar eru saumaðar saman. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan er ermin prjónuð í hring. Það eru prjónaðir 2 listar að framan í framhaldi á kanti að framan í hvorri hlið. Listar að framan eru saumaðir saman (saumur = miðja að aftan), síðan eru listarnir að framan saumaðir við hálsmál aftan í hnakka. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 258-290-290-322-354-386-418 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Karisma. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 10 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið A.1 þar til 16 lykkjur eru eftir, prjónið A.2 og 10 kantlykkjur að framan með i-cord. Haldið áfram svona fram og til baka – endurtakið 4 fyrstu umferðir í A.1/A.2. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – lesið leiðbeiningar að ofan. Prjónið þar til stykkið mælist ca 4½-4½-4½-5½-5½-5½-5½ cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 10 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið umferð 5 í A.1 þar til 16 lykkjur eru eftir, prjónið umferð 5 í A.2 og endið með 10 kantlykkjum að framan eins og áður = 228-256-256-284-312-340-368 lykkjur. Prjónið síðustu umferð í A.2/A.1 frá röngu með 10 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður. Stykkið mælist ca 5-5-5-6-6-6-6 cm. Setjið 1 merki í hvora hlið á fram- og bakstykki – merkin eru sett í 62-69-69-76-83-90-97 lykkju inn frá hvorri hlið (= 104-118-118-132-146-160-174 lykkjur á milli lykkja með merki á bakstykki). Látið merkin fylgja áfram með í stykkinu. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 10 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið A.3 þar til 15 lykkjur eru eftir, prjónið A.4 og 10 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka – merkin sitja í miðju af 5 lykkjum í sléttprjóni í hvorri hlið á fram- og bakstykki. Munið að fylgja prjónfestunni! Þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47-48 cm frá uppfitjunarkanti og næsta umferð er prjónuð frá réttu, fellið af lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið, þ.e.a.s. prjónið eins og áður þar til 1-1-1-2-3-4-4 lykkjur eru eftir á undan fyrstu lykkju með merki í, fellið af 3-3-3-5-7-9-9 lykkjur fyrir handveg (= lykkja með merki í + 1-1-1-2-3-4-4 lykkjur hvoru megin við hana), prjónið á sama hátt og áður þar til eftir eru 1-1-1-2-3-4-4 lykkjur á undan næstu lykkju með merki í, fellið af 3-3-3-5-7-9-9 lykkjur fyrir handveg og prjónið eins og áður út umferðina. Framstykkin og bakstykkið er síðan prjónað hvert fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 60-67-67-73-79-85-92 lykkjur. Setjið 1 merki innan við ystu 11 lykkjur við miðju að framan (= 10 kantlykkjur að framan + 1 lykkja sléttprjón). Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður – JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir handvegi og lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli eins og útskýrt er að neðan – lestu því báða næstu kafla að neðan áður en prjónað er áfram. HANDVEGUR: Í hlið eru lykkjur felldar af fyrir handveg í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 0-2-0-2-3-3-3 sinnum og 1 lykkja 2-5-2-4-8-7-7 sinnum. V-HÁLSMÁL: Í fyrstu umferð frá réttu á eftir skiptingu er lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli á UNDAN merki – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1. Fækkið svona um 1 lykkju í 4. hverri umferð 2-2-3-3-3-3-3 sinnum, síðan er lykkjum fækkað í annarri hverri umferð 5-5-6-6-6-10-10 sinnum og í lokin í 4. hverri umferð 6-6-7-7-7-7-7 sinnum. Nú hefur verið fækkað um alls 13-13-16-16-16-20-20 lykkjur fyrir v-hálsmáli. Eftir alla úrtöku fyrir handveg og v-hálsmáli eru 45-45-49-49-49-52-59 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 62-64-66-68-70-72-74 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umferð frá réttu eru felldar af fyrstu 35-35-39-39-39-42-49 lykkjur fyrir öxl = 10 kantlykkjur að framan eftir í umferð. Prjónið síðan kant að framan eins og áður þar til kantur að framan mælist 8-8-9-9-9-11-11 cm frá öxl. Fellið af. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 60-67-67-73-79-85-92 lykkjur. Setjið 1 merki innan við ystu 11 lykkjurnar við miðju að framan (= 10 kantlykkjur að framan + 1 lykkja sléttprjón). Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður – JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir handvegi og lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli eins og útskýrt er að neðan – lestu því báða næstu kafla að neðan áður en prjónað er áfram. HANDVEGUR: Í hlið eru lykkjur felldar af fyrir handveg í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 0-2-0-2-3-3-3 sinnum og 1 lykkja 2-5-2-4-8-7-7 sinnum. V-HÁLSMÁL: Í fyrstu umferð frá réttu á eftir skiptingu er lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli á EFTIR merki – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1. Fækkið svona um 1 lykkju í 4. hverri umferð 2-2-3-3-3-3-3 sinnum, síðan er lykkjum fækkað í annarri hverri umferð 5-5-6-6-6-10-10 sinnum og í lokin í 4. hverri umferð 6-6-7-7-7-7-7 sinnum. Nú hefur verið fækkað um alls 13-13-16-16-16-20-20 lykkjur fyrir v-hálsmáli. Eftir alla úrtöku fyrir handveg og v-hálsmáli eru 45-45-49-49-49-52-59 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 62-64-66-68-70-72-74 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umferð frá röngu eru felldar af fyrstu 35-35-39-39-39-42-49 lykkjur fyrir öxl = 10 kantlykkjur að framan eftir í umferð. Prjónið síðan kant að framan eins og áður þar til kantur að framan mælist 8-8-9-9-9-11-11 cm frá öxl. Fellið af. BAKSTYKKI: = 102-116-116-128-140-152-166 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður. Í hvorri hlið eru lykkjur felldar af fyrir handveg í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 0-2-0-2-3-3-3 sinnum í hvorri hlið og 1 lykkja 2-5-2-4-8-7-7 sinnum í hvorri hlið = 98-98-112-112-112-126-140 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70-72 cm frá uppfitjunarkanti. Nú eru felldar af miðju 24-24-30-30-30-38-38 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. ÖXL: = 37-37-41-41-41-44-51 lykkjur. Nú eru felldar af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli = 35-35-39-39-39-42-49 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72-74 cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið saman lista í kanti að framan (saumur = miðja að aftan og saumurinn á að snúa inn að röngu á stykki. Saumið lista í kanti að framan við hálsmál aftan í hnakka. Saumið tölur í vinstri kant að framan. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handveg og niður. Setjið 1 merki efst í handveg = miðja ofan á öxl. Notið hringprjón 4 og prjónið upp lykkjur þétt þannig: Byrjið í lykkju með merki frá fram- og bakstykki fyrir miðju undir ermi – prjónið upp 74-80-85-91-95-100-104 lykkjur – stillið af þannig að það séu prjónaðar upp jafnmargar lykkjur hvoru megin við merki fyrir miðju ofan á öxl – merkið færist síðan þannig að í stærð XS, S, XXL og XXXL sé merkið staðsett í lykkju ofan á öxl og í stærð M, L og XL sé merkið staðsett á milli 2 miðjulykkja mitt ofan á öxl. Í fyrstu umferð er mynstrið staðsett og prjónað er frá miðju undir ermi þannig: Prjónið 12-15-14-17-19-18-20 lykkjur sléttprjón, prjónið A.5 alls 7-7-8-8-8-9-9 sinnum, prjónið fyrstu 2 lykkjur í A.5 (þannig að mynstrið byrjar og endar á sama hátt) og prjónið síðustu 11-14-13-16-18-17-19 lykkjur í sléttprjóni. ERMAKÚPA: Til að ermin passi betur og fái fallegt form er mynstrið prjónað með stuttum umferðum fram og til baka yfir ermakúpu, umferðin byrjar fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið mynstur sem þegar er byrjað þar til prjónaðar hafa verið 9-9-13-13-13-14-16 lykkjur fram hjá lykkju með merki fyrir miðju ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 19-19-26-26-26-29-33 lykkjur, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 3-2-3-2-2-2-2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 3-2-3-2-2-2-2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4. Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 16-22-14-22-30-28-28 sinnum (= 8-11-7-11-15-14-14 sinnum í hvorri hlið og síðasta prjónaða umferðin er frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð þá endar umferðin með að snúa stykkinu, prjónið síðan frá réttu að byrjun umferðar (miðja undir ermi). Setjið 1 merki fyrir miðju undir ermi, merkið er notað síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Látið merkið fylgja áfram með í stykkinu. SÍÐAN ERMINA NIÐUR: Haldið áfram með mynstur sem þegar er byrjað hringinn með A.5 yfir miðju 51-51-58-58-58-65-65 lykkjur og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eru eftir JAFNFRAMT sem lykkjum er fækkað undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 og fækkið lykkjum þannig: Þegar ermin mælist 1 cm mælt fyrir miðju undir ermi er fækkað um 2 lykkjur 2-2-2-3-3-3-3 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur 7-10-9-11-13-12-14 sinnum í hverjum 6-4-5-3½-3-3-2 cm = 56-56-63-63-63-70-70 lykkjur í umferð. Á eftir síðustu úrtöku gengur A.5 jafnt upp hringinn á allri erminni. Prjónið síðan þar til ermin mælist 51-52-50-50-51-49-46 cm frá miðju ofan á öxl. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 8-8-9-9-9-10-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 með því að auka út 1 lykkju fyrir miðju í hverri einingu með sléttprjóni (stroffið á að passa yfir mynstur með 2 lykkjur brugðið yfir hverja einingu með 2 lykkjur í garðaprjóni í A.5) = 64-64-72-72-72-80-80 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7-7 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 57-58-56-57-58-56-53 cm frá miðju ofan á öxl. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #oldfriendcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 260-37
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.