Forest Pocket Cardigan#forestpocketcardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu, rúllukanti, i-cord og vösum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 262-25 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 7 næstu hnappagötum með ca 6-6½-6½-7-7-7-7½ cm á milli hverra hnappagata. Passið uppá að neðsta hnappagatið sé staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs á fram- og bakstykki. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN MERKI: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR MERKI: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn frá réttu þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 8 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr fyrir miðju í þessum 8 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 109-115-117-121-121-125-133 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Brushed Alpaca Silk. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegri). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð brugðið frá röngu (= rúllukantur). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 7 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 7 kantlykkjur að framan með i-cord. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 3-3-3-4-4-5-5 cm. Setjið 1 merki innan við kant að framan í aðra hliðina á stykki (= miðja að framan), stykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 3,5. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, þessar lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Teljið 19-21-21-21-21-21-23 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1. merki í næstu lykkju, Teljið 21-21-21-23-23-25-25 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, Teljið 25-27-29-29-29-29-33 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, Teljið 21-21-21-23-23-25-25 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju. Það eru 19-21-21-21-21-21-23 lykkjur eftir í umferð fyrir hægra framstykki. Prjónið sléttprjón fram og til baka með kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið útskýringu að ofan með leiðbeiningum hvernig auka á út og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 5-8-5-15-20-18-13 sinnum (= 10-16-10-30-40-36-26 umferðir prjónaðar) = 149-179-157-241-281-269-237 lykkjur. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina). UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á framstykkjum og bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á undan 1. og 3. merki og á eftir 2. og 4. merki – lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 11-10-13-8-7-10-14 sinnum (= 44-40-52-32-28-40-56 umferðir prjónaðar = 11-10-13-8-7-10-14 sinnum útaukning á ermum og 22-20-26-16-14-20-28 sinnum útaukning á framstykkjum/bakstykki) = 281-299-313-337-365-389-405 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út alls 16-18-18-23-27-28-27 sinnum á ermum og 27-28-31-31-34-38-41 sinnum á framstykkjum/bakstykki. Prjónið sléttprjón og kanta að framan án þess að auka út, þar til stykkið mælist 20-21-23-23-25-28-30 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar þá koma laskalykkjurnar til með að vera staðsettar aðeins inn á framstykki/bakstykki í stærð S, L, XL, XXL og XXXL (í stærð XS og M skiptist stykkið við laskalykkjurnar), þ.e.a.s. jafnframt því sem næsta umferð er prjónuð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 47-51-53-56-60-65-69 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 53-55-57-63-69-71-71 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-18-20-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 81-87-93-99-107-117-125 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 53-55-57-63-69-71-71 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-18-20-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 47-51-53-56-60-65-69 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 195-213-227-243-263-287-311 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, fyrir miðju í 10-12-14-16-18-20-24 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki. Prjónið fram og til baka frá miðju að framan yfir allar lykkjur í sléttprjóni og kanta að framan eins og áður. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingunni, aukið út 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 6. hverjum cm alls 3 sinnum = 207-225-239-255-275-299-323 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 44-46-48-48-50-51-53 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 18-22-22-24-26-28-30 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 225-247-261-279-301-327-353 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningunni) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 3-3-3-4-4-5-5 cm fellið af með ítalskri affellingu eða fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 47-49-51-52-54-56-58 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 53-55-57-63-69-71-71 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 3,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-12-14-16-18-20-24 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 63-67-71-79-87-91-95 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 10-12-14-16-18-20-24 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2-2-2-1-1-1-1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi - lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 2-2-2-1½-1½-1-1 cm alls 5-6-7-10-13-14-15 sinnum = 53-55-57-59-61-63-65 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 45-44-43-43-42-39-37 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 5-5-5-5-5-5-5 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 58-60-62-64-66-68-70 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-4-4-5-5 cm fellið af með ítalskri affellingu eða fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 48-47-46-47-46-44-42 cm frá skiptingunni. VASAR: Fitjið upp 33-35-37-39-41-43-45 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til vasinn mælist 14-15-16-17-18-19-20 cm – næsta umferð er prjónuð frá réttu. Prjónið 3 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan 3 umferðir sléttprjón með rúllukanti (brugðið frá röng, slétt frá réttu, brugðið frá röngu). Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. Staðsetjið 1 vasa á hvort framstykki, í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs neðst á fram- og bakstykki og ca 5-5-6-6-7-8-9 cm frá kanti við miðju að framan. Saumið vasana niður með lykkjuspori. |
|
|
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #forestpocketcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 35 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 262-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.