Tempest Tide Cardigan#tempesttidecardigan |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu, köðlum og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 263-12 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALÍNU: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALÍNU: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Umferðir í mynsturteikningu eru sýndar frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8½-9-9-8-8-8½-9 cm milli hverra hnappagata. Stillið af að neðsta hnappagatið sé staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs á fram- og bakstykki. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjurnar eru prjónaðar upp í miðjunni undir erminni getur myndast lítið gat í opinu milli lykkjunnar frá fram- og bakstykki og erminni. Þú getur lokað þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli lykkjanna tveggja - þráðurinn er snúinn saman við fyrstu lykkjuna á milli fram- og bakstykkis og ermarinnar, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 121-129-129-137-137-145-145 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Lima. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 7 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 7 kantlykkjur að framan með i-cord. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Setjið 1 merki innan við kant að framan í aðra hliðina á stykki (= miðja að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju, þessar lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og það á að auka út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Teljið 19-21-21-23-23-25-25 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1. merki í næstu lykkju, teljið 27 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 25-29-29-33-33-37-37 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 27 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju. Það eru 19-21-21-23-23-25-25 lykkjur eftir á prjóni fyrir hægra framstykki. Nú er prjónað áfram með mynstri, í fyrstu umferð byrjar einnig útaukning fyrir laskalínu – lestu því báða næstu kafla áður en þú prjónar áfram MYNSTUR. Byrjið frá réttu, prjónið kant að framan og sléttprjón á hvoru framstykki, A.1 yfir lykkjur á milli 1. og 2. merkis (= vinstri ermi), sléttprjón á bakstykki og A.2 yfir lykkjur á milli 3. og 4. merkis (= hægri ermi). Laskalykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið þá efstu 8 umferðir í mynstri (merktar með x í mynsturteikningu), aukið er út um 3 lykkjur í A.1/ A.2 í fyrstu umferð. LASKALÍNA: Prjónið sléttprjón, kanta að framan og mynstur eins og útskýrt er að ofan – og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið útskýringu að ofan með leiðbeiningum hvernig auka á út og prjónið þannig: Munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón, kanta að framan og mynstur eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón, kanta að framan og mynstur eins og áður. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 1-5-6-10-10-9-6 sinnum (= 2-10-12-20-20-18-12 umferðir prjónaðar) = 135-175-183-223-223-223-199 lykkjur. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón, kanta að framan og mynstur eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón, kanta að framan og mynstur eins og áður. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttprjón, kanta að framan og mynstur eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á framstykkjum og bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á undan 1. og 3. merki og á eftir 2. og 4. merki – lykkjur eru ekki lengur auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttprjón, kanta að framan og mynstur eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 15-14-15-14-16-18-22 sinnum (= 60-56-60-56-64-72-88 umferðir prjónaðar = 15-14-15-14-16-18-22 sinnum útaukning á ermum og 30-28-30-28-32-36-44 sinnum útaukning á framstykkjum/bakstykki) = 315-343-363-391-415-439-463 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út alls 16-19-21-24-26-27-28 sinnum á ermum og 31-33-36-38-42-45-50 sinnum á framstykkjum/bakstykki. Stykkið mælist ca 22-24-26-28-30-32-36 cm frá merki fyrir miðju að framan, prjónið e.t.v. áfram án útaukninga að loka máli. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 51-55-58-62-66-71-76 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 62-68-72-78-82-84-86 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-12-14-16-18-20-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 89-97-103-111-119-129-139 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 62-68-72-78-82-84-86 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-12-14-16-18-20-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 51-55-58-62-66-71-76 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 215-231-247-267-287-311-335 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður þar til stykkið mælist 42-44-46-48-49-51-53 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 20-22-24-24-26-30-34 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 235-253-271-291-313-341-369 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið kanta að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningunni) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kanta að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af. Peysan mælist 46-48-50-52-54-56-58 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 62-68-72-78-82-84-86 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 12-12-14-16-18-20-22 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 74-80-86-94-100-104-108 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 12-12-14-16-18-20-22 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón og mynstur hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig. Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 5-4-4-3-2½-2½-2 cm alls 8-9-9-11-12-12-12 sinnum = 58-62-68-72-76-80-84 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 43-41-40-38-36-34-31 cm frá skiptingunni. Fækkið um 1 lykkju í hverjum kaðli og 1 lykkju fyrir miðju undir ermi = 54-58-64-68-72-76-80 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), passið uppá að stroffið passi yfir lykkjur í köðlum (yfir 5 lykkjur í kaðli er prjónuð 1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt). Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af. Ermin mælist ca 47-45-44-42-41-39-36 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kanti að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #tempesttidecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 263-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.