Ivory Whisper Sweater#ivorywhispersweater |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl og köðlum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 264-18 |
||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Byrjið við ör í réttri stærð (á við um A.1, A.2, A.3, A.6 og A.7). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar prjónað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Kaðlarnir eru einungis á framstykki. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til lykkjufjöldi fyrir axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið smá skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er bakstykkið sett á bið á meðan framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 stykkjum. Byrjið á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, prjónið mynstur samtímis sem aukið er út við hálsmál. Endurtakið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukningu fyrir hálsmáli er lokið. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Hægra og vinstra framstykki er síðan sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermarnar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 27-29-29-29-31-31-31 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Air. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri, 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 13-13-14-15-15-16-17 sinnum (= 26-26-28-30-30-32-34 umferðir prjónaðar), á eftir síðustu útaukningu eru = 79-81-85-89-91-95-99 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt frá! Prjónið síðan í sléttprjóni - Munið að fylgja prjónfestunni - þar til stykkið mælist 9-9-8-9-9-8-7 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi. Nú er lykkjum aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-3-4-4-5-7-9 sinnum (= 4-6-8-8-10-14-18 umferðir prjónaðar) = 83-87-93-97-101-109-117 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 11-12-12-13-14-14-15 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi, endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju = 26-26-28-30-30-32-34 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: Prjónið 6-6-8-10-10-12-14 lykkjur brugðið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 4 lykkjur brugðið jafnframt því sem aukið er út um 2 lykkjur jafnt yfir þessar, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 13 lykkjur brugðið = 28-28-30-32-32-34-36 lykkjur. Prjónið síðan MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): A.1, A.2, A.3, A.4, 6-6-8-10-10-12-14 lykkjur sléttprjón. UMFERÐ 2 (= ranga): 6-6-8-10-10-12-14 lykkjur sléttprjón, A.4, prjónið A.3, A.2, A.1 – frá röngu er alltaf prjónaðar sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Endurtakið UMFERÐ 1 og 2 þar til A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina 1 sinni, stykkið mælist nú ca 11-11-13-13-15-15-15 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. = 41-41-43-45-45-47-49 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykkið prjónað meðfram hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru prjónaðar upp lykkjur meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkjur í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 26-26-28-30-30-32-34 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: Prjónið 13 lykkjur brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur brugðið jafnframt því sem aukið er út um 2 lykkjur jafnt yfir þessar, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 6-6-8-10-10-12-14 lykkjur brugðið = 28-28-30-32-32-34-36 lykkjur. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): 6-6-8-10-10-12-14 lykkjur sléttprjón, A.5, A.6, A.2, A.7. UMFERÐ 2 (= ranga): A.7, A.2, A.6, A.5, 2-2-4-6-6-8-10 lykkjur sléttprjón – frá röngu er alltaf prjónaðar sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Endurtakið UMFERÐ 1 og 2 þar til A.7 hefur verið prjónað til loka á hæðina 1 sinni, stykkið mælist nú ca 11-11-13-13-15-15-15 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. = 41-41-43-45-45-47-49 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Ekki klippa þráðinn, nú eru framstykkin sett saman eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI (hægra og vinstra stykki sett saman): Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 41-41-43-45-45-47-49 lykkjur frá hægra framstykki þannig: 6-6-8-10-10-12-14 lykkjur sléttprjón, A.5, A.6, A.2, A.2, A.3, fitjið upp 13 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli (= A.8) í lok umferðar, prjónið 41-41-43-45-45-47-49 lykkjur frá vinstra framstykki þannig: Prjónið A.6, A.2, A.2, A.3, A.4, 6-6-8-10-10-12-14 lykkjur sléttprjón = 95-95-99-103-103-107-111 lykkjur í umferð. Nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli eru prjónaðar í A.8 – stillið af að A.8 er snúið í kaðli í sömu umferð og A.4 og A.5. Prjónið mynstur fram og til baka þar til stykkið mælist 27-26-27-28-28-28-27 cm. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt – útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-4-5-5-7-9-11 sinnum (= 4-8-10-10-14-18-22 umferðir prjónaðar) = 99-103-109-113-117-125-133 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 29-30-32-33-34-36-37 cm, endið á umferð frá röngu. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Stykkið er nú mælt héðan! FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 99-103-109-113-117-125-133 lykkjur frá framstykki eins og áður, fitjið upp 2-4-6-8-12-14-16 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið síðan 83-87-93-97-101-109-117 lykkjur frá bakstykki eins og áður og fitjið upp 2-4-6-8-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) = 186-198-214-226-242-262-282 lykkjur í umferð. Nú er prjónað í hring í mynstri eins og áður – nýjar lykkjur undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist ca 22-23-23-23-24-24-25 cm frá handvegi – stillið af að síðasta umferðin sé prjónuð án þess að snúa í kaðli. Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 14-18-18-22-22-26-30 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 (ekki er aukið út yfir kaðla) = 200-216-232-248-264-288-312 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7-7 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Vestið mælist ca 54-56-58-60-62-64-66 cm, mælt innst við hálsmál. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handveg og niður. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = mitt ofan á öxl (ATH! Miðja ofan á öxl er ekki á sama stað og lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur ca 9 til 11 cm niður á framstykki). Prjónið upp lykkjur í kringum handveg, notið hringprjón 3,5. Byrjið fyrir miðju í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 64-70-78-82-90-96-102 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafnmargar lykkjur hvoru megin við merki. Skiptið yfir á hringprjón 5. Til að flíkin passi betur er prjónað sléttprjón með stuttum umferðum fram og til baka yfir ermakúpuna, umferðin byrjar fyrir miðju undir ermi þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 5 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 5 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skiptið, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 3 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skiptið, snúið stykkinu. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4. Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 12-14-14-16-18-20-24 sinnum (= 6-7-7-8-9-10-12 sinnum í hvorri hlið og síðasta umferð er frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er endurtekin, endið umferð með að snúa stykkinu, prjónið síðan frá réttu að byrjun á umferð (fyrir miðju undir ermi). Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, það á að nota hann þegar fækka á lykkjum undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Nú er prjónað í hring í sléttprjón yfir allar lykkjur JAFNFRAMT því sem fækka á lykkjum undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar ermin mælist 1 cm mælt fyrir miðju undir ermi er fækkað um 2 lykkjur 6-5-3½-3-2-2-1½ sinnum alls 6-8-12-13-17-19-22 sinnum = 52-54-54-56-56-58-58 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 47-48-48-47-47-47-47 cm frá miðju ofan á öxl. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), JAFNFRAMT sem aukið er út um 10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 62-64-64-66-66-68-68 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7-7 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 53-54-54-54-54-54-54 cm frá miðju ofan á öxl. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3,5. Byrjið frá réttu við annan kantinn þar sem lykkjur voru prjónaðar upp og prjónið upp ca 78-82-86-86-94-94-94 lykkjur innan við 1 lykkju – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4-4-4½-4½-4½-5-5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #ivorywhispersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 264-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.