Maple Whisper Cardigan#maplewhispercardigan |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Lima eða DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, norrænu mynstri, tvöföldu hálsmáli og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 262-6 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 7 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. LEIÐBEININGAR KANTUR AÐ FRAMAN: Allur kanturinn að framan er prjónaður í litnum Kastanía / Kakóbaun, notið því sér dokku í litnum Kastanía / Kakóbaun fyrir sjálfan kantinn að framan (notið þráðinn innan í og utan með dokkunni fyrir hægri og vinstri kant að framan). Kantar að framan eru einungis prjónaðir með þessum þráðum að loka máli, en til að koma í veg fyrir gati í skiptingunni á milli kants að framan og stykkis, snúið þræðina utan um hvorn annan að innanverðu í kanti að framan í hverri umferð (frá réttu og frá röngu). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 120 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 14 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 14) = 7,6. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 7. og 8. hverja lykkju (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 6-6-6-7-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 7½-8-8-7-7½-7½-8 cm milli hnappagata. Neðsta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs á fram- og bakstykki. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þegar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir í eitt númer grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við og fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við. Kantur í hálsmáli er brotinn saman tvöfaldur að röngu og saumaður niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 108-108-112-116-120-124-128 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Lima í litnum Kastanía eða DROPS Karisma í litnum Kakóbaun. Skiptið yfir á hringprjón 3 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt og 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka. Þegar kantur í hálsmáli mælist 4-4-5-5-5-5-5 cm eru fitjaðar upp 6 nýjar í lok næstu 2 umferða = 120-120-124-128-132-136-140 lykkjur. Haldið áfram með stroff eins og áður, en ystu 7 lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar eins og KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Prjónið þar til kantur í hálsmáli mælist 8-8-9-9-9-9-9 cm – endið eftir umferð frá röngu. Síðar á að brjóta kant í hálsmáli tvöfaldan og við frágang þá verður kantur í hálsmáli ca 4-4-5-5-5-5-5 cm. Setjið eitt merki að innanverðu í kant að framan í aðra hliðina á stykki, stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið fyrstu umferð frá réttu með byrjun frá miðju að framan þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið 106-106-110-114-118-122-126 lykkjur sléttprjón jafnframt sem aukið er út um 14-16-18-18-21-21-23 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, prjónið kant að framan eins og áður – munið eftir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan = 134-136-142-146-153-157-163 lykkjur í umferð. Prjónið síðan í sléttprjóni og kant að framan. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar berustykkið mælist 4-4-4-4-4-4-4 cm frá merki, aukið út 27-31-36-37-44-42-45 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = 161-167-178-183-197-199-208 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og kant að framan þar til stykkið mælist 8-8-8-8-9-9-9 cm frá merki. Í næstu umferð frá réttu er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður í litnum Kastanía / Kakóbaun – lesið LEIÐBEININGAR KANTUR AÐ FRAMAN, prjónið A.1 yfir næstu 147-153-164-169-183-185-194 lykkjur JAFNFRAMT sem aukið er út um 40-46-53-54-58-62-65 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið fyrstu lykkju í A.1, prjónið kant að framan eins og áður í litnum Kastanía / Kakóbaun = 201-213-231-237-255-261-273 lykkjur. Lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN! Haldið svona áfram með mynstur – JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 á að auka út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan): Ör-1: Aukið út 40-56-52-60-56-64-66 lykkjur jafnt yfir = 241-269-283-297-311-325-339 lykkjur. Haldið áfram með A.1 og endið með fyrstu 3 lykkjur í A.1 á undan kanti að framan. Ör-2: Aukið út 42-46-56-56-60-64-68 lykkjur jafnt yfir = 283-315-339-353-371-389-407 lykkjur. Haldið áfram með A.1 og endið með fyrstu lykkju í A.1 á undan kanti að framan. Ör-3: Aukið út 49-53-53-51-57-63-69 lykkjur jafnt yfir = 332-368-392-404-428-452-476 lykkjur. Haldið áfram með A.1 og endið með fyrstu 6 lykkjur í A.1 á undan kanti að framan. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 22-22-23-24-25-27-29 cm merki mitt að framan, á að skipta stykkinu í fram- og bakstykki og ermar. Ef A.1 hefur ekki verið prjónað til loka á hæðina áður en stykkið mælist 22-22-23-24-25-27-29 cm, skiptist stykkið mitt í mynstri – þá heldur mynstrið áfram eftir skiptinguna, passið uppá að skipta fyrir miðju í mynsturbekk (en ekki í umferð með litnum Kastanía/Kakóbaun). ATH! Öll útaukning fyrir A.1 verður að vera lokið áður en stykkið skiptist upp. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 56-61-64-66-71-76-81 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 62-70-76-78-80-82-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 96-106-112-116-126-136-146 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 62-70-76-78-80-82-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 56-61-64-66-71-76-81 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 220-240-256-268-292-316-340 lykkjur. Ef A.1 hefur ekki verið prjónað til loka fyrir skiptinguna, heldur mynstrið áfram á fram- og bakstykki þar til það hefur verið prjónað til loka. Mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp í hlið undir ermum, en prjónið mynstrið þannig að það haldi áfram frá berustykki eins langt og hægt er að hlið fyrir miðju undir ermum. Þegar mynstrið hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður með litnum Kastanía/Kakóbaun þar til stykkið mælist 45-47-49-51-52-53-55 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT því sem aukið er út 20-20-24-24-28-28-28 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = 240-260-280-292-320-344-368 lykkjur prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið – munið eftir útaukningunni) þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af. Peysan mælist 49-51-53-55-57-58-60 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 54-56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 62-70-76-78-80-82-84 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-10-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 68-76-84-88-92-96-100 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-6-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Ef A.1 hefur ekki verið prjónað til loka fyrir skiptinguna, heldur mynstrið áfram þar til það hefur verið prjónað til loka. Mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp í hlið undir ermi, en prjónið mynstrið þannig að það haldi áfram frá berustykki eins langt og hægt er fyrir miðju undir ermi. Þegar mynstrið hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón hringinn með litnum Kastanía/Kakóbaun. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 8-8-5-5-5-5-5 cm alls 2-4-6-6-6-6-6 sinnum = 64-68-72-76-80-84-88 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-41-41-40-40-38-37 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 8-8-8-8-8-8-8 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 72-76-80-84-88-92-96 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af. Ermin mælist ca 44-45-45-44-45-43-42 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið kant í hálsmáli þannig að það verði tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman opið við miðju að framan í kanti að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #maplewhispercardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 35 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 262-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.