Lilian Tennung skrifaði:
Når jeg var ferdig med mønsterstrikken hadde jeg 258 masker, men det står 285 i oppskriften Jeg forstår ikke hvor feilen er, jeg ser at jeg skal justere til 290 masker Jeg er ikke erfaren med hullstrikk, men det ser bra ut
03.06.2025 - 12:38DROPS Design svaraði:
Hei Lilian. Usikker på hvor du har maskeantallet 290 fra, tipper det skal være 292 og at du strikker str. 11-12 år? Om det er den str. skal du ha 105 masker på pinnen når du skal begynne på diagrammet / mønster. Du skal da strikke diagrammet 15 ganger = 7 masker i begynnelsen x 15 ganger = 105 masker. Når du har strikket diagrammet 1 gang i høyden er det økt 12 masker pr gang diagrammet strikkes = 19 masker x 15 ganger = 285 masker. Så skal maskeantaller justeres til 292 masker ( det økes 7 masker jevnt fordelt). Har du bare 258 masker har du ikke nok masker til å fortsette når du skal dele til bol og erme. mvh DROPS Design
10.06.2025 - 10:45
Anna skrifaði:
Bij patroon 49/8 Coral Charm staat bij het eind van de mouw en voor dat het boordje gebreid wordt, dat er geminderd moet worden. Dit moet gemeerderd zijn. Het stekenaantal dat vermeld wordt, is wel goed.
05.05.2025 - 19:14
Solveig skrifaði:
Jeg undrer mig over, at der ved omslag i mønster stå, at på næste pind strikkes omslaget vrang, for blusen strikkes på retsiden men cardiganen strikkes jo skiftevis på vrang og residen. Jeg tror,at jeg vælger at strikke omslaget ret.
01.05.2025 - 20:12
Åse Marie skrifaði:
Det er feil beskrivelse i mønsteret på denne genseren og cardigan i samme mønster. Det er ulik beskrivelse på de.
13.04.2025 - 10:19DROPS Design svaraði:
Hej Åse, vi forstår ikke rigtig hvad du mener, vi har ikke beskrevet en cardigan i denne oppskrift. Vil du skrive hvad der er galt, så skal vi se på det med det samme :)
24.04.2025 - 10:31
Coral Charm#coralcharmsweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og öldumynstri. Stærð 2 – 12 ára.
DROPS Children 49-8 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í byrjun umferðar frá réttu. Prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist hnappagat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Fyrst er prjónaður kantur í hálsmáli og efsti hluti á berustykki ofan frá og niður, fram og til baka á hringprjóna, svo það myndist klauf fyrir miðju að aftan. Síðan er berustykkið prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-96-104-104-108-108 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Safran. Prjónið stroff frá réttu þannig: 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 3 lykkjur í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 1½ cm fellið af fyrir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 2½ til 3 cm, endið eftir umferð frá röngu. Setjið 1 merki eftir fyrstu 44-48-52-52-54-54 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið fram og til baka með 3 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið, þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið svona í 2 cm (mælt eftir kant í hálsmáli), endið með umferð frá réttu og endið þegar eftir eru 3 lykkjur í umferð, setjið þessar lykkjur á hjálparprjón. Nú er stykkið sett saman í báðum hliðum þannig að hægt sé að prjóna í hring, það er gert þannig: Setjið 3 lykkjur af hjálparprjóni aftan við 3 lykkjur slétt í byrjun umferðar frá réttu, prjónið fyrstu lykkju slétt saman með fyrstu lykkju af hjálparprjóni, aðra lykkju slétt saman með annarri lykkju af hjálpaprjóni og þriðju lykkju slétt saman með þriðju lykkju af hjálparprjóni, prjónið síðan slétt út umferðina. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 1-2-3-3-0-0 lykkjur jafnt yfir = 84-91-98-98-105-105 lykkjur í umferð. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu! Nú er prjónað MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan, þ.e.a.s. prjónið A.1 alls 12-13-14-14-15-15 sinnum hringinn á berustykki. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, eru 228-247-266-266-285-285 lykkjur í umferð. Endurtakið síðustu 6 umferðir í mynsturteikningu þar til stykkið mælist ca 12-13-14-15-16-17 cm frá merki. Prjónið 1 umferð slétt og jafnið lykkjufjöldann út til 232-244-260-264-280-292 lykkjur. Prjónið síðan í sléttprjóni þar til stykkið mælist 13-14-15-16-17-18 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 33-35-38-39-42-44 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki), setjið næstu 50-52-54-54-56-58 lykkjur á þráð fyrir ermar, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 66-70-76-78-84-88 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 50-52-54-54-56-58 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 33-35-38-39-42-44 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 144-152-164-172-184-192 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn, þar til stykkið mælist 24-27-28-32-35-37 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 2,5, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 20-24-24-28-28-28 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 164-176-188-200-212-220 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3 cm er fellt af. Peysan mælist ca 30-33-35-39-42-44 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 50-52-54-54-56-58 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á sokkaprjóna 3,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 56-58-60-62-64-66 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn jafnframt þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 4-5-5½-6½-10-11 cm alls 5-5-5-5-4-4 sinnum = 46-48-50-52-56-58 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 20-24-27-31-35-39 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á hringprjón 2,5, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 6-8-10-8-8-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 52-56-60-60-64-68 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3 cm er fellt af. Ermin mælist ca 23-27-30-34-38-42 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölu í opið að aftan við hnakka. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #coralcharmsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 49-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.