Cinzia Sguario skrifaði:
Buongiorno, è possibile eseguire questo modello con i ferri diritti? Non mi trovo bene con quelli circolari. Grazie
12.05.2025 - 12:32DROPS Design svaraði:
Buonasera Cinzia, questo modello è un cardigan quindi può lavorarlo con i ferri dritti. Buon lavoro!
13.05.2025 - 23:06
Anna skrifaði:
Zojuist heb ik het vestje af gebreid. Maar ik heb er lange mouwen in gebreid èn het vestje ongeveer 5 cm langer gemaakt. Ik had van Baby Merino daarvoor genoeg aan 150 gram. Ik had 200 gram (volgens jullie aanwijzingen) gekocht. Ik zag dat jullie na mijn vorige opmerking de de hoeveelheid Safran verlaagd hebben naar 100 gram.... Het ging juist om Baby Merino. Dus 100 gr voor garen van 160 m per bol en 200 gr voor garen van 175 m per bol? Klopt echt niet.
07.05.2025 - 23:34
Brigitte Guillard-Berdet skrifaði:
Merci beaucoup pour votre réponse, votre aide, vos conseils !
07.05.2025 - 07:05
Brigitte Guillard-Berdet skrifaði:
Bonjour, je voudrais tricoter cet adorable cardigan, mais avec des manches longues. Pensez-vous que ce soit possible? Avez-vous des conseils? Merci !
01.05.2025 - 17:19DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Guillard-Berdet, tout à fait, vous pouvez ainsi vous inspirer d'un modèle de gilet manches longues avec la même tension, retrouvez-en ici des modèles avec une tension de 26-23 m. Bon tricot!
02.05.2025 - 08:25
Ank IJzelenberg skrifaði:
Waar boek te koop met patroon kindervestje
29.04.2025 - 21:05DROPS Design svaraði:
Dag Anke,
We geven helaas geen boeken meer uit. Al onze patronen zijn gratis te downloaden via de website.
04.05.2025 - 10:01
Anna skrifaði:
Safran =160 meter per bol en Baby Merino = 175 meter. Ik ging eerst uit van Saffran en wilde een bol meer, omdat ik lange mouwen wil breien in het vestje. Toch maar Baby Merino besteld en hetzelfde aantal bollen. Nu zie ik in het patroon, dat ik van Baby Merino meer nodig heb. Hoe kan dit? De looplengte van de bol is immers langer.
22.04.2025 - 16:14DROPS Design svaraði:
Dag Anna,
Als ik bij de garenvervanger 200 gram Safran invul, wordt er aangegeven dat je 183 gram Baby Merino nodig hebt. Dat is dus minder en dat klopt met de looplengte.
23.04.2025 - 21:20
Marshmallow Morning Cardigan#marshmallowmorningcardigan |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð stutt peysa fyrir börn úr DROPS Safran eða DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, i-cord, öldumynstri og stuttum ermum. Stærð 2 – 12 ára.
DROPS Children 49-2 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 3-3-4-4-4-4 næstu hnappagötum með ca 7-8-6½-7½-8-8½cm cm á milli hverra hnappagata. Nesta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 96-104-112-112-116-116 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Safran eða DROPS Baby Merino. Prjónið stroff frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan með I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 7 kantlykkjur að framan með I-cord. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 2½ til 3 cm, endið eftir umferð frá röngu. Setjið 1 merki að innanverðu við kant að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 2-1-0-0-3-3 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = 98-105-112-112-119-119 lykkjur. Síðan er prjónað í sléttprjóni fram og til baka með 7 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður – munið eftir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar berustykkið mælist 2 cm frá merki, prjónið MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan, þ.e.a.s. fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið A.1 12-13-14-14-15-15 endið með 7 kantlykkjur að framan. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, eru 242-261-280-280-299-299 lykkjur í umferð. Prjónið síðan 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið og endurtakið síðustu 6 umferðir í mynsturteikningu þar til stykkið mælist ca 12-13-14-15-16-17 cm frá merki. Síðan er prjónuð 1 umferð sléttprjón með 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður, í þessari umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út til 246-258-274-278-294-306 lykkjur. Prjónið síðan í sléttprjóni og kantlykkjur að framan eins og áður þar til stykkið mælist 13-14-15-16-17-18 cm frá merki fyrir miðju að framan. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 40-42-45-46-49-51 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 50-52-54-54-56-58 lykkjur á þráð fyrir ermar, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 66-70-76-78-84-88 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 50-52-54-54-56-58 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 40-42-45-46-49-51 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 158-166-178-186-198-206 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður, þar til stykkið mælist 22-25-26-30-33-35 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff jafnframt því sem aukið er út um 22-26-26-30-30-30 lykkjur jafnt yfir í umferð (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = 180-192-204-216-228-236 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 2,5, prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið – munið eftir útaukningu) þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 3 cm er fellt af. Peysan mælist ca 28-31-34-37-40-42 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 50-52-54-54-56-58 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á sokkaprjóna 3,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 56-58-60-62-64-66 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 2-2-4-5-5-6 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 0-2-0-2-0-2 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 =56-60-60-64-64-68. Þegar stroffið mælist 3 cm er fellt af. Ermin mælist ca 5-5-7-8-8-9 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #marshmallowmorningcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 49-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.