Laura Rocha Martinez skrifaði:
Buenas tardes. Logre la muestra con aguja 2.5milímetros con Drops Safran. El patrón dice que la orilla el escote se debe tejer con aguja No 2.5m y el canesú y resto del jersey con aguja 3.5. La muestra que hice con aguja No 3.5 me dieron menos de 24 puntos en 10 cm y la puntada muy floja y desigual, igualmente con agujas No 3 ml PREGUNTA: Entonces cuáles agujas debería usar para la orilla dl escote y cuáles para el resto del jersey? Gracias por su atención
27.08.2026 - 21:50DROPS Design svaraði:
Hola Laura, si la tensión con agujas de 3.5mm no salía bien entonces tienes que trabajar con un número más pequeño. ¿ Tampoco conseguías la tensión indicada con agujas de 3mm? Si las de 3mm tampoco sirven puedes probar a usar la de 2.5mm para el jersey. En principio puedes trabajar la cenefa del escote y el jersey con las mismas agujas, de 2.5mm; si ves que la cenefa no queda bien podrías probar a usar las de 2mm. Pero esto dependerá de tu tensión al trabajar el elástico.
30.08.2026 - 20:16
Karin skrifaði:
Hei igjen! Takk for raskt svar! Da står det feil i diagramteksten (der kastet beskrives). Mvh Karin
10.07.2026 - 07:31
Karin skrifaði:
Hei! Er det riktig at kastene i mønsteret skal strikkes vrange på neste pinne for å lage hull? Blir det finere hull av det enn av å strikke kastene rett på neste pinne? Jeg gjorde det ved en feil og det ble jo hull 😅 Mvh Karin
09.07.2026 - 20:44DROPS Design svaraði:
Hei Karin, Du strikker rundt når du begynner mønsteret, slik at kastene i mønsteret er strikket rett på neste omgangen, og det blir hull. Hilsen Drops Team.
10.07.2026 - 06:12
Sigrid skrifaði:
Her må det være feil i oppskriften? Strikkefasthet til begge garn er 24 masker på pinne nr 3, men i oppskriften står det at den strikkes på pinne nr 3,5. Da kan man ikke opprettholde strikkefastheten og størrelsene på plagget vil da bli feil
03.06.2026 - 13:09DROPS Design svaraði:
Hei Sigrid. Nei, ingen feil. Selv om det er oppgitt en strikkefasthet på garnets etikett, kan det brukes en annen strikkefasthet og pinne str på et plagg. Det som er viktig at man bruker den pinne str. som gir den strikkefasthet som er oppgitt i den oppskriften man skal strikke. Derfor er det viktig å strikke en prøvelapp. mvh DROPS Design
12.06.2026 - 07:57
Maria Cristina skrifaði:
Sarebbe possibile avere questo modello con misure per adulti? Grazie
18.05.2026 - 23:18DROPS Design svaraði:
Buongiorno Maria Cristina, purtroppo in questa sede non ci è possibile adattare i modelli alle doversd richieste, ma sul nostro sito può sicuramente trovare dei modelli simili per adulti. Buon lavoro!
20.05.2026 - 16:24
Sam skrifaði:
For 2y size first round of chart A.1, I am not evenly getting the 7 stitch repeats across the entire round. Any suggestions on what I’m doing wrong?
12.05.2026 - 03:05DROPS Design svaraði:
Hi Sam, In your size you should have 84 stitches on the needle after joining the piece so you can continue in the round. A.1 is worked across 7 stitches and these 7 stitches are repeated 12 times on the round = 84 stitches. Regards, Drops Team.
12.05.2026 - 06:36
Elke skrifaði:
Ik zie al wat er mis is: in de Nederlandse versie staan andere hoeveelheden voor Baby Merino dan in de andere talen. Dit klopt dus niet.
27.04.2026 - 17:36
Elke skrifaði:
Hoe kan het dat er zo veel meer Baby Merino nodig is dan Safran? Voor maat 134/140 scheelt het 100 gram, terwijl de lengte ongeveer gelijk is.
26.04.2026 - 15:00DROPS Design svaraði:
Dag Elke,
Dat heeft te maken met de looplengte van het garen en misschien ook met de afronding op een hele bol.
27.04.2026 - 16:46
Jannicke skrifaði:
Hei. Hvorfor er det ikke en omgang med vrang mellom tredje og fjerde mønsterstrikk? Tenker å strikke den i Baby merino, blir det fint å strikke den på pinne 3,5 slik oppskriften sier? Håper på snarlig svar. Mvh Jannicke
09.04.2026 - 11:11DROPS Design svaraði:
Hej Jannicke, det er overgangen mellem de 4 huller i bølgemønsteret og de 6 huller, men du bestemmer jo selv. Ja du kan strikke i DROPS BabyMerino men sørg for at få 24 masker på 10 cm, så målene stemmer med måleskitsen i opskriften :)
09.04.2026 - 13:23
Volpi skrifaði:
Au debut pour l’ empiècement je ne comprend pas comment tricoter ensemble mes 3 mailles en attente avec les mailles de l’aiguille gauche Merci
12.02.2026 - 07:32DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Volpi, tricotez le dernier rang sur l'endroit jusqu'à ce qu'il reste 3 mailles, mettez ces mailles en attente sur un arrêt de mailles, puis joignez l'ouvrage en rond = les 3 premières mailles du tour sont les 3 premières mailles auparavant sur l'endroit (la bordure point mousse); mettez l'arrêt de mailles derrière l'ouvrage et tricotez la 1ère m du tour avec la 1ère des 3 m en attente, puis la 2ème m du tour avec la 2ème des m en attente et enfin la 3ème m du tour avec la 3ème des mailles en attente = la fente est fermée, et les 3 m de bordure se chevauchent au milieu du dos. Continuez en rond. Bon tricot!
12.02.2026 - 18:06
Marshmallow Morning#marshmallowmorningsweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð stutt peysa fyrir börn úr DROPS Safran eða DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og öldumynstri. Stærð 2 – 12 ára.
DROPS Children 49-1 |
|||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í byrjun umferðar frá réttu. Prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist hnappagat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Fyrst er prjónaður kantur í hálsmáli og efsti hluti á berustykki ofan frá og niður, fram og til baka á hringprjóna, svo það myndist klauf fyrir miðju að aftan. Síðan er berustykkið prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-96-104-104-108-108 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Safran eða DROPS Baby Merino. Prjónið stroff frá réttu þannig: 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 3 lykkjur í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 1½ cm fellið af fyrir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 2½ til 3 cm, endið eftir umferð frá röngu. Setjið 1 merki eftir fyrstu 44-48-52-52-54-54 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið fram og til baka með 3 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið, þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið svona í 2 cm (mælt eftir kant í hálsmáli), endið með umferð frá réttu og endið þegar eftir eru 3 lykkjur í umferð, setjið þessar lykkjur á hjálparprjón. Nú er stykkið sett saman í báðum hliðum þannig að hægt sé að prjóna í hring, það er gert þannig: Setjið 3 lykkjur af hjálparprjóni aftan við 3 lykkjur slétt í byrjun umferðar frá réttu, prjónið fyrstu lykkju slétt saman með fyrstu lykkju af hjálparprjóni, aðra lykkju slétt saman með annarri lykkju af hjálpaprjóni og þriðju lykkju slétt saman með þriðju lykkju af hjálparprjóni, prjónið síðan slétt út umferðina. Síðan er stykkið prjónað í hring. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 1-2-3-3-0-0 lykkjur jafnt yfir = 84-91-98-98-105-105 lykkjur í umferð. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu! Nú er prjónað MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan, þ.e.a.s. prjónið A.1 alls 12-13-14-14-15-15 sinnum hringinn á berustykki. Haldið svona áfram. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, eru 228-247-266-266-285-285 lykkjur í umferð. Endurtakið síðustu 6 umferðir í mynsturteikningu þar til stykkið mælist ca 12-13-14-15-16-17 cm frá merki. Prjónið 1 umferð slétt og jafnið lykkjufjöldann út til 232-244-260-264-280-292 lykkjur. Prjónið síðan í sléttprjóni þar til stykkið mælist 13-14-15-16-17-18 cm frá merki fyrir miðju að framan. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 33-35-38-39-42-44 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki), setjið næstu 50-52-54-54-56-58 lykkjur á þráð fyrir ermar, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 66-70-76-78-84-88 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 50-52-54-54-56-58 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 33-35-38-39-42-44 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 144-152-164-172-184-192 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn, þar til stykkið mælist 22-25-26-30-33-35 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 2,5, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 20-24-24-28-28-28 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 164-176-188-200-212-220 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3 cm er fellt af. Peysan mælist ca 28-31-34-37-40-42 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 50-52-54-54-56-58 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á sokkaprjóna 3,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 56-58-60-62-64-66 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 2-2-4-5-5-6 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 0-2-0-2-0-2 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 =56-60-60-64-64-68. Þegar stroffið mælist 3 cm er fellt af. Ermin mælist ca 5-5-7-8-8-9 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölu í opið að aftan við hnakka. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #marshmallowmorningsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 49-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.