Marlène skrifaði:
Bonjour , J'ai COMPRIS Il suffit de suivre vous explications dans l'ordre Mais vous pourriez préciser avant de commencer l'ouvrage qu'il ne faut pas suivre les diagrammes car des lignes se tricotent deux fois et mettre une astérisque pour le signaler dans les explications. Merci pour vos modèles qui sont magnifiques
06.03.2026 - 11:00DROPS Design svaraði:
Bonjour Marlène, tous les rangs des diagrammes sont représentés, c'est-à-dire ceux sur l'endroit aussi bien que ceux sur l'envers; sur l'endroit, on les lit de droite à gauche et sur l'envers de gauche à droite. Bon tricot!
06.03.2026 - 16:39
Marlène skrifaði:
Bonjour,Pourquoi ne suffit-il pas de suivre chaque ligne des diagrammes de 24 lignes en hauteur? les rangs compteraient-ils 4 lignes? Je m'y perds dans vos explications surtout après les 171 m en xxxl car il faudrait ne plus augmenter le raglan des manches au rang 4 ? Merci de m'aider.
05.03.2026 - 16:26
Gillian skrifaði:
When knitting the ws of the 1st row of the diagram do I repeat the rs again but from left to right?
28.02.2026 - 09:34DROPS Design svaraði:
Dear Gillian, from wrong side read diagrams from the left towards the right working the stitches as explained "from WS" under diagram text. Happy kntiting!
02.03.2026 - 08:34
Gillian skrifaði:
When knitting the ws of the 1st row of the diagram do I repeat the rs again but from left to right?
23.02.2026 - 16:42
Sylvie Letellier skrifaði:
Merci pour votre réponse, est-ce que je change de ligne à chaque rang ou juste après les 4 rangs que je dois faire 18 fois? Merci
19.02.2026 - 14:13DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Letellier, vous devez d'abord suivre les diagrammes A.1 (A.2) A.3, et augmenter avant A.1/après A.3 comme indiqué dans les explications, les diagrammes montrent comment tricoter les nouvelles mailles au début de A.1/à la fin de A.3. Quand vous avez terminé les diagrammes, reprenez les au 1er rang = A.1 sur les 4 premières mailles du A.1 précédent, A.2 sur les mailles suivantes, A.2 sur les premières mailles de A.3 jusqu'à ce qu'il reste 1 m et terminez par A.3. Tricotez ainsi jusqu'à ce que vous ayez augmenté le nombre de fois requis pour la taille tricotée. Bon tricot!
19.02.2026 - 17:21
Sylvie Letellier skrifaði:
Bonjour, lorsque j’ai terminé toutes les rangées du diagramme, que je dois continuer à faire des augmentations et retourner à la rangée 1 du diagramme. Comment faire, il y a trop de mailles pour les 1ere rangées. Merci pour l’aide, je ne sais plus quoi faire.
18.02.2026 - 21:37DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Letellier, lorsque vous avez terminé A.1 et A.3 en hauteur, reprenez les diagrammes au 1er rang (et répétez A.2 avant/après/entre ces mailles) jusqu'à ce que vous ayez augmenté le nombre de fois pour la taille tricotée; Bon tricot!
19.02.2026 - 09:01
Dolfin skrifaði:
Merci pour votre réponse. Je n'étais pas certaine que les jetés se situent avant et après les 2 mailles situées de chaque côté des marqueurs. Bon week-end à vous !
23.01.2026 - 20:07
Dolfin skrifaði:
Bonjour, je suis bloquée dans ce modèle parce que je n'obtiens pas de réponse à ma question. Merci de me faire retour s'il-vous-plaît.
22.01.2026 - 10:22
Dolfin skrifaði:
Bonjour, Je ne comprends pas pourquoi vous ne me répondez pas ? Je suis en attente afin de pouvoir continuer mon tricot. Merci
22.01.2026 - 07:53DROPS Design svaraði:
Vous trouverez la réponse ci-dessous, merci pour votre patience. Bon tricot!
23.01.2026 - 09:18
Dolfin skrifaði:
Taille M : compter 23 m pour le devant gauche, et devant droit... continuer 6 m de bordure devant et tricoter 16 mailles en augmentant 1m = 23m, du coup on a une maille en trop puisque 23m +1 augmentation = 24m, on fait quoi de la maille en plus ? Est-ce que les mailles indiquées "2 m envers" sont les mailles de chq côté des marqueurs ? De plus pour le raglan il n'y a aucune explication pour savoir comment augmenter ?
21.01.2026 - 17:03DROPS Design svaraði:
Vous trouverez la réponse ci-dessous :)
23.01.2026 - 09:17
Arctic Horizon Cardigan#arctichorizoncardigan |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Soft Tweed. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, tvöföldum kanti í hálsmáli og áferðamynstri. Stærð XS - XXXL.
DROPS 251-21 |
|||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni á ermum og A.1 til A.4 á framstykkjum og bakstykki. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 3 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr í miðju á þessum 3 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 4 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 7 næstu hnappagötum með ca 7½-7½-8-8-8½-8½-9 cm á milli hverra hnappagata. Stillið af að neðsta hnappagatið verði staðsett í skiptingunni á milli áferðamynsturs og stroffs. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfalt að röngu og saumaður niður. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 104-116-116-120-120-132-132 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Soft Tweed. Skiptið yfir á hringprjón 3 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er frá réttu og er prjónuð þannig: Prjónið 1 lykkju í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið), þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til kantur í hálsmáli mælist 6-6-6-6-7-7-7 cm (= ca hæð á kanti í hálsmáli þegar búið er að brjóta uppá hann tvöfalt). Í lok hvorra af næstu 2 umferðum eru fitjaðar upp 5 lykkjur fyrir kant að framan = 114-126-126-130-130-142-142 lykkjur í umferð. Haldið áfram með stroff, en ystu 6 lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar eins og KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan. Prjónið síðan þar til kantur í hálsmáli mælist 13-13-13-13-15-15-15 cm – endið með umferð frá réttu. Setjið 1 merki að innanverðu í kanti að framan í annarri hlið á stykki, stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett á milli 2 lykkja, þessar 2 lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur. Laskalykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Teljið 19-23-23-23-23-27-27 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1. merki á undan næstu lykkju, teljið 24-24-24-24-24-24-24 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki á undan næstu lykkju, teljið 28-32-32-36-36-40-40 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merki á undan næstu lykkju, teljið 24-24-24-24-24-24-24 lykkjur (= ermi), setjið 4. Merki á undan næstu lykkju. Það eru 19-23-23-23-23-27-27 lykkjur eftir á prjóni fyrir hægra framstykkki. Prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan með i-cord, prjónið brugðið yfir næstu 12-16-16-16-16-20-20 lykkjur og aukið jafnframt út 1 lykkju yfir þessar lykkjur (= framstykki), 2 lykkjur brugðið, prjónið brugðið yfir næstu 22-22-22-22-22-22-22 lykkjur og aukið jafnframt út 0-0-0-0-2-2-2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= ermi), 2 lykkjur brugðið, prjónið brugðið yfir næstu 26-30-30-34-34-38-38 lykkjur og aukið jafnframt út 3-3-3-3-3-7-7 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= bakstykki), 2 lykkjur brugðið, prjónið brugðið yfir næstu 22-22-22-22-22-22-22 lykkjur og aukið jafnframt út 0-0-0-0-2-2-2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= ermi), 2 lykkjur brugðið, prjónið brugðið yfir næstu 12-16-16-16-16-20-20 lykkjur og aukið jafnframt út 1 lykkju yfir þessar lykkjur, endið með 6 kantlykkjur að framan með i-cord = 119-131-131-135-139-155-155 lykkjur. Prjónið síðan MYNSTUR á framstykkjum og bakstykki (kantar að framan eru prjónaðir eins og áður), sléttprjón á ermum og aukið er út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjur – lesið leiðbeiningar að ofan fyrir mynstur og hvernig auka á út. Munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið A.2 alls 3-4-4-4-4-5-5 sinnum, A.3 (= vinstra framstykki), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur, prjónið 22-22-22-22-24-24-24 lykkjur sléttprjón (= ermi), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur, prjónið A.1, prjónið A.2 alls 6-7-7-8-8-10-10 sinnum, prjónið A.3 (= bakstykki), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur, prjónið 22-22-22-22-24-24-24 lykkjur sléttprjón (= ermi), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur, prjónið A.1, prjónið A.2 alls 1-2-2-2-2-3-3 sinnum, prjónið A.4, endið með 6 kantlykkjur að framan eins og áður (= hægra framstykki). Nú hefur verið aukið út um 8 lykkjur fyrir laskalínu. UMFERÐ 2 (= ranga): Haldið áfram að prjóna mynstur, kant að framan og sléttprjón – munið eftir að mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu og að uppslátturinn er prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur á framstykkjum / bakstykki og sléttprjón á ermum Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-2-6-2-2-2 sinnum (= 4-4-4-12-4-4-4 umferðir prjónaðar) = 135-147-147-183-155-171-171 lykkjur í umferð. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Prjónið síðan og aukið út fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Haldið áfram að prjóna mynstur, kant að framan og sléttprjón eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Haldið áfram að prjóna mynstur, kant að framan og sléttprjón eins og áður, munið eftir hvernig útauknu lykkjurnar eru prjónaðar. UMFERÐ 3 (= rétta): Haldið áfram að prjóna mynstur, kant að framan og sléttprjón eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á framstykkjum og bakstykki, þ.e.a.s. aukið út eftir 2. og 4. merki og á undan 3. og 1. merki – lykkjum er ekki aukið út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Haldið áfram að prjóna mynstur, kant að framan og sléttprjón eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 16-16-18-17-22-22-22 sinnum (= 64-64-72-68-88-88-88 umferðir prjónaðar = 16-16-18-17-22-22-22 sinnum útaukning á ermum og 32-32-36-34-44-44-44 sinnum útaukning á framstykkjum / bakstykki) = 327-339-363-387-419-435-435 lykkjur í umferð. Útaukning er nú lokið á ermum í öllum stærðum. Að auki er útaukningu lokið á framstykkjum / bakstykki í stærð M, L, XL og XXL – farðu síðan í ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ XS, S og XXXL. Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Haldið áfram að prjóna mynstur, kant að framan og sléttprjón eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á eftir 2. og 4. merki og á undan 3. og 1. merki – lykkjum er ekki aukið út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Haldið áfram að prjóna mynstur, kant að framan og sléttprjón eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2 2-2-8 sinnum (= 4-4-16 umferðir prjónaðar). Farðu síðan í ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: Öll útaukning er nú lokið, stykkið mælist ca 23-23-24-25-29-29-34 cm frá merki, nú hefur verið aukið út alls 18-18-20-23-24-24-24 sinnum á ermum og 36-36-38-40-46-46-54 sinnum á framstykkjum / bakstykki = 335-347-363-387-419-435-467 lykkjur á prjóni. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 57-61-63-65-71-75-83 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 58-58-62-68-72-72-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-11-15-19-19-23-27 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 105-109-113-121-133-141-157 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 58-58-62-68-72-72-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-11-15-19-19-23-27 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 57-61-63-65-71-75-83 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 233-253-269-289-313-337-377 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka yfir allar lykkjur (einnig yfir nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi) og 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður. Prjónið þar til stykkið mælist ca 52-54-55-57-59-61-62 cm frá merki fyrir miðju að framan – endið eftir umferð brugðið frá röngu. Í næstu umferð frá réttu byrjar strott JAFNFRAMT sem fækkað er um 3 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 (lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan = 230-250-266-286-310-334-374 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið – munið eftir úrtöku) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og prjónið kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 6-6-7-7-7-7-8 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 58-60-62-64-66-68-70 cm frá merki við miðju að framan og ca 64-66-68-70-72-74-76 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 58-58-62-68-72-72-72 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 7-11-15-19-19-23-27 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 65-69-77-87-91-95-99 lykkjur. Setjið 1 merki í miðju af 7-11-15-19-19-23-27 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkið. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð alls 3 sinnum, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 10-8-5-3½-3-2½-2 cm alls 3-4-7-11-12-14-15 sinnum = 53-55-57-59-61-61-63 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 46-45-44-44-41-40-35 cm frá skiptingunni – ATH. Ef óskað er eftir að brjóta uppá ermarnar eins og á myndinni, er prjónað sléttprjón þar til ermin mælist 51-51-51-48-47-43 cm. Nú er prjónað stroff. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 7-5-7-9-7-11-9 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 60-60-64-68-68-72-72 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-7-7-7-7-8 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 52-51-51-51-48-47-43 cm frá skiptingunni ef ekki er prjónað með uppábroti og 58-57-58-58-55-54-51 cm frá skiptingunni ef prjónað er með uppábroti. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan í kanti að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. Brjótið uppá stroff neðst á ermum ef ermin er prjónuð með uppábroti. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #arctichorizoncardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 251-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.