Wabotlhe skrifaði:
Hello, after increasing for armholes, i am supposed to knit without increases until the piece reaches the recommended length right, the thing is where do i measure from? From where i started increasing for arm holes or from the marker i placed when i stopped increasing from making the back piece
16.04.2025 - 17:50DROPS Design svaraði:
Dear Wabotlhe, "Continue working until the piece measures 14-15-16-17-17-18-19 cm, from the marker,". This marker is the measuring marker inserted after the increases of the back piece. So you work in stocking stitch, the work the 2 rows of armhole increases as indicated for your size and, if you still haven't reached the indicated measurements (it should be approx. 2-3-4 cm of armhole increases, depending on the size worked) work in stocking stitch without increases until you reach them. Happy knitting!
19.04.2025 - 19:55
Elaine skrifaði:
Bonjour , j’aimerais savoir si il y a une erreur dans le numéro de la couleur car 602 ce n’est vraiment pas dans les teintes de bleu
05.04.2025 - 16:10DROPS Design svaraði:
Bonjour Elaine, la couleur de ce pull est bien le coloris 602, mais notez simplement que la couleur peut apparaître avec des nuances différentes en fonction de la luminosité de chaque écran, de celle le jour de la prise de photo etc... Bon tricot!
07.04.2025 - 08:07
Northern Crest#northerncrestsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir herra úr 2 þráðum DROPS Fabel. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með evrópskri öxl / skáhallandi öxl og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð XS - XXXL.
DROPS 251-8 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjað er á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til lykkjufjöldi fyrir axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið smá skáhallandi öxl. Síðan er prjónað niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða á meðan framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 stykkjum. Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni, síðan er prjónað sléttprjón jafnframt því sem aukið er út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukningu er lokið fyrir hálsmáli. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Framstykkið og bakstykkið er sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 28-30-30-32-34-34-36 lykkjur á hringprjón 5 með 2 þráðum DROPS Fabel. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til eftir eru 3 lykkjur, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur brugðið. EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 11-12-13-15-16-17-18 sinnum (= 22-24-26-30-32-34-36 prjónaðar umferðir), á eftir síðustu útaukningu eru = 72-78-82-92-98-102-108 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt frá! Prjónið síðan í sléttprjóni þar til stykkið mælist 12-13-14-15-15-15-15 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi. munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-2-2-2-3-4 sinnum (= 4-4-4-4-4-6-8 prjónaðar umferðir) = 76-82-86-96-102-108-116 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 14-15-16-17-17-18-19 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi, endið með eina umferð frá röngu. Klippið þræðina, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykki prjónað meðfram vinstri öxl – lesið útskýringu að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að öxl þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 22-24-26-30-32-34-36 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum uppfitjunarkanti. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 9 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4 sinnum (= 8 prjónaðar umferðir) = 26-28-30-34-36-38-40 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Klippið þræðina, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykkið prjónað meðfram hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 22-24-26-30-32-34-36 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 9 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4 sinnum (= 8 prjónaðar umferðir) = 26-28-30-34-36-38-40 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Setjið síðan framstykkin saman eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI (hægra og vinstra stykki sett saman): Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 26-28-30-34-36-38-40 lykkjur frá hægra framstykki eins og áður, fitjið upp 20-22-22-24-26-26-28 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið 26-28-30-34-36-38-40 lykkjur frá vinstra framstykki eins og áður = 72-78-82-92-98-102-108 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 22-23-24-25-27-27-27 cm. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-2-2-2-3-4 sinnum (= 4-4-4-4-4-6-8 prjónaðar umferðir) = 76-82-86-96-102-108-116 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 24-25-26-27-29-30-31 cm, endið með umferð frá röngu. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Stykkið er nú mælt héðan! FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 76-82-86-96-102-108-116 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 4-4-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 76-82-86-96-102-108-116 lykkjur frá bakstykki og fitjið upp 4-4-6-6-6-8-8 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) = 160-172-184-204-216-232-248 lykkjur í umferð. Nú er prjónað í hring. Prjónið þar til stykkið mælist ca 37-38-39-40-40-41-42 cm frá handveg. Skiptið yfir á hringprjón 4, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 20-20-20-24-24-28-28 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 180-192-204-228-240-260-276 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-5-5-6-6-6 cm fellið af. Framstykkið mælist 64-66-68-70-72-74-76 cm mælt framan á peysu frá hæsta punkti á öxl. Axlalínan liggur ca 2 cm niður á bakstykki. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handveg og niður á við. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = mitt ofan á öxl (ATH! Mitt ofan á öxl er ekki á sama stað og lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur ca 5-6 cm niður á framstykki). Prjónið upp lykkjur í kringum handveg, notið hringprjón 4 og fyrir miðju í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi - prjónið upp 68-70-76-80-84-88-92 lykkjur – stillið af að prjónaðar sé upp jafnmargar lykkjur hvoru megin við merki. Skiptið yfir á hringprjón 5. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu svo að ermin passi betur og fái betra form, umferðin byrjar mitt undir ermi þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 6 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 6 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu . UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 6 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 6 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. Prjónið UMFERÐ 3 og 4. Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 8-8-8-8-8-10-10 sinnum (= 4-4-4-4-4-5-5 sinnum í hvorri hlið og síðasta prjónaða umferðin sé frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð þá endar umferðin með að snúa stykkinu, síðan er prjónað frá réttu að byrjun umferðar (mitt undir ermi). Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi, það á að nota hann þegar fækka á lykkjum undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. Nú er prjónað í hring í sléttprjóni yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er lykkjum fækkað undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar ermin mælist 1-1-1-1-1-1-1 cm (mælt mitt undir ermi), fækkið um 2 lykkjur 2-2-3-3-3-4-4 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 3-3-2½-2½-2-2-1½ cm alls 11-11-12-13-14-14-15 sinnum = 42-44-46-48-50-52-54 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 55-54-53-51-49-49-48 cm frá miðju ofan á öxl. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT því sem aukið er út um 8-6-8-6-8-6 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 48-52-52-56-56-60-60 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-5-5-6-6-6 cm fellið af. Ermin mælist ca 60-59-58-56-55-55-54 cm frá miðju ofan á öxl. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra axlalínuna og prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju ca 86 til 106 lykkjur á stuttan hringprjón 4. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 9 cm. Fellið af aðeins laust. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki og festið með nokkrum sporum. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #northerncrestsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 251-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.