Annick skrifaði:
Bonjour, j'ai bien augmenté comme c'est prévu mais lorsque je relève le fil entre 2 mailles du tour précédent, sur le rang d'après on voit un fil horizontal et ça fait un trou. Je pense que je ne vais pas faire ce modèle. Dommage Cordialement
04.08.2026 - 18:58DROPS Design svaraði:
Bonjour Annick, vous pouvez changer la façon d'augmenter si vous n'aimez pas celle-ci, retrouvez ici différentes façons d'augmenter pour un raglan tricoté de haut en bas. Bon tricot!
05.08.2026 - 08:14
Annick skrifaði:
Bonjour, Concernant les augmentations pour le raglan au niveau des rangs raccourcis j'ai augmenté de chaque côté juste avant ou après le fil marqueur comme indiqué mais je me demande si j'ai bien compris car il y a des trous et je ne trouve pas très beau. Est-ce normal? Merci pour votre réponse
01.08.2026 - 18:17DROPS Design svaraði:
Bonjour Annick, lorsque l'on tricote l'encolure, on va augmenter à la fois sur l'endroit et sur l'envers en relevant le fil entre 2 mailles comme indiqué pour les augmentations du RAGLAN, soit de l'avant vers l'arrière soit de l'arrière vers l'avant et en tricotant soit le brin avant soit le brin arrière de la maille. On n'est pas censés avoir de trou à ce niveau là, retrouvez ici comment augmenter 1 m à gauche sur l'endroit (plus bas sur la même page, vous trouverez les autres techniques). Bon tricot!
04.08.2026 - 17:52
Noomi skrifaði:
Hej! Är tröjan på bilden en stl S eller M?
20.06.2026 - 10:31DROPS Design svaraði:
Hei Noomi. Det er nok en str. M. Men for å finne din riktig str. er det viktig å se på målskissen nederst på oppskriften. Se på målene som er oppgitt på målskissen, finn et plagg du allerede har og liker passformen på og sammenlign med målene i målskissen, da kan du enkelt finne den størrelsen du vil mene passe deg best. mvh DROPS Design
22.06.2026 - 08:26
Heidi skrifaði:
Guten Tag, werden die Rückreihen für de Halsausschnitt bei den verkürzten Reihen rechts gestrickt? Dann entsteht doch ein kraus rechts gestricktes Muster. Das sieht auf dem Bild nicht so aus.
03.06.2026 - 20:16DROPS Design svaraði:
Liebe Heidi, die verkürzten Reihen werden glattrechts gestrickt, dh die Hinreihen strickt man rechts und die Rückreihen strickt man links. Viel Spaß beim Stricken!
04.06.2026 - 10:01
Olga skrifaði:
I don't know, why can' we make the increases at the sametime. You make 4 in the first row and in the last and 8 in the rest rows.....why?
03.06.2026 - 16:20DROPS Design svaraði:
Hi Olga, This alternate method, increasing 8 and then 4 stitches, gives the shape of the jumper you see in the picture. You can increase 8 stitches each time if you wish but then need to have fewer increase-rounds so you don't get too many stitches. We have other jumper patterns with even raglan increases if you would find this easier. Regards, Drops Team.
04.06.2026 - 06:55
Jane R skrifaði:
I don't understand how the A1 pattern works. When first following the A1 pattern, do you K the first row, cable the 2nd, K the 3rd and then cable the 4th for 9cm?
02.04.2026 - 16:12DROPS Design svaraði:
Hi Jane, There are no cables or diagram A.1 in this pattern. Happy Easter! Regards, Drops Team.
03.04.2026 - 07:14
Britt-Marie skrifaði:
Allt klarnade när jag stickat de sju avkortade varven. Glöm min tidigare fråga.
07.12.2025 - 09:27DROPS Design svaraði:
Hei Britt-Marie. Kan ikke se at du har lagt noen tidligere spørsmål under denne modellen, men så flott at du fant det ut selv :) mvh DROPS Design
08.12.2025 - 13:58
Ann skrifaði:
Can you show photo of BACK side of sweater please ? all the increases in a short rows would be visible in a photo....? there are 48 stitches increased in a small size in 7 rounds, between back and sleeves? seems not logical...
12.11.2025 - 01:13
Sarah skrifaði:
Hallo, etwas blöd, dass es in der Anleitung bei den verkürzten Reihen keinen Hinweis darauf gibt, dass an den Wendestellen Doppelmaschen gearbeitet werden müssen… habe es natürlich auch einfach vergessen und mich im Nachhinein über die Löcher geärgert und alles nochmal neu gemacht… vielleicht kann die Anleitung dahingehend noch überarbeitet werden. Viele Grüße
16.10.2025 - 10:04
Janneke Den Nederlanden skrifaði:
Begint de naald bij de overgang hals en rechter mouw, of bij de overgang hals en linker mouw?
23.07.2025 - 16:25DROPS Design svaraði:
Dag Janneke,
Het begin van de naald zit, als het goed is, tussen het achterpand en de linker mouw. Na het plaatsen van de markeerdraden wordt een verhoging aan de achterkant van de hals gebreid.
31.07.2025 - 21:26
Hidden Seaside#hiddenseaside |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Soft Tweed. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, og röndum og rúllukanti. Stærð S - XXXL.
DROPS 259-29 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út 1 lykkju á undan / eftir 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli framstykkis / bakstykkis og erma, merkiþræðirnir sitja á milli þessa 2 lykkja. Lykkjum er aukið út eins og útskýrt er að neðan: Frá réttu: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI Á UNDAN MERKIÞRÆÐI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI Á EFTIR MERKIÞRÆÐI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. Frá röngu: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI Á UNDAN MERKIÞRÆÐI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI Á EFTIR MERKIÞRÆÐI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. RENDUR: Þegar stykkið mælist 6-7-8-8-8-8 cm eftir stroff (mælt fyrir miðju að framan), prjónið rendur þannig: * 2 cm með litnum gallabuxnablár, 3½ cm með litnum marsipan *, prjónið frá *-* þar til prjónaðar hafa verið alls 5-6-6-6-7-7 rendur með litnum gallabuxnablár á fram- og bakstykki. Síðan er prjónað áfram eins og útskýrt er í mynstri. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 104-104-112-112-120-128 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5 með litnum DROPS Soft Tweed. Prjónið 3 umferðir slétt (= rúllukantur). Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið 4 umferðir stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Setjið 4 merkiþræði í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna umferðina). Merkiþræðirnir eru settir á milli 2 lykkja og eru notaðir þegar auka á út fyrir laskalínu. Teljið 1 lykkja og setjið 1. merkiþráðinn hér, teljið 20 lykkjur og setjið 2. merkiþráðinn hér (= ermi), teljið 32-32-36-36-40-44 lykkjur og setjið 3. merkiþráðinn hér, teljið 20 lykkjur og setjið 4. merkiþráðinn hér (= ermi), það eru 32-32-36-36-40-44 lykkjur á milli 4. og 1. merkiþráða. HÁLSMÁL: Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Nú er prjónað hálsmál með stuttum umferðum eins og útskýrt er að neðan. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, hvoru megin við fyrstu 2 merkiþræðina (= 4 lykkjur fleiri), snúið við þegar prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá öðrum merkiþræðinum. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við alla merkiþræðina (= 8 lykkjur fleiri), snúið við þegar prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá síðasta merkiþræði. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir lasaklínu hvoru megin við alla merkiþræðina (= 8 lykkjur fleiri), snúið við þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við alla merkiþræðina (= 8 lykkjur fleiri), snúið við þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við alla merkiþræðina (= 8 lykkjur fleiri), snúið við þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við alla merkiþræðina (= 8 lykkjur fleiri), snúið við þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við fyrstu 2 merkiþræðina (= 4 lykkjur fleiri), prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan 1. merkiþræði (byrjun á umferð). Stuttar umferðir hafa nú verið prjónaðar til loka og prjónað hefur verið 6 sinnum fyrir laskalínu við hvern merkiþráð = 152-152-160-160-168-176 lykkjur í umferð. Prjónið síðan hringinn yfir allar lykkjur. BERUSTYKKI: Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu og lesið RENDUR! Prjónið sléttprjón og haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu þannig: Nú er aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út með þessum hætti alls 7-11-12-12-10-10 sinnum á fram- og bakstykki og ermar. Það eru 208-240-256-256-248-256 lykkjur í umferð. Haldið áfram að auka út í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki / bakstykki. Þ.e.a.s. aukið er út á framstykki / bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð, aukið er út til skiptist 4 og 8 lykkjur. Aukið út með þessum hætti 16-16-16-20-26-30 sinnum á fram- og bakstykki (= 8-8-8-10-13-15 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 29-33-34-38-42-46 sinnum á fram- og bakstykki og 21-25-26-28-29-31 sinnum á ermum (ásamt útaukningu í stuttum umferðum í hálsmáli). Á eftir síðustu útaukningu eru 304-336-352-376-404-436 lykkjur í umferð (90-98-104-112-124-136 lykkjur á milli merkiþráða á framstykki / bakstykki og 62-70-72-76-78-82 lykkjur á merkiþráða á ermum). Prjónið síðan án útaukninga þar til stykkið mælist 21-23-24-25-28-31 cm, mælt frá miðju að framan á eftir stroffi í hálsmáli. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Prjónið fram að 1. merkiþræði og byrjið umferðina hér, setjið fyrstu 62-70-72-76-78-82 lykkjur á þráð án þess að prjóna þær (= ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið undir ermi), prjónið 90-98-104-112-124-136 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 62-70-72-76-78-82 lykkjur á þráð án þess að prjóna þær (= ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið undir ermi), prjónið 90-98-104-112-124-136 lykkjur (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 200-216-232-248-276-300 lykkjur. Prjónið fyrstu 5-5-6-6-7-7 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi, umferðin byrjar hér. Haldið áfram í sléttprjóni og röndum eins og áður, þegar rendurnar hafa verið prjónaðar til loka er prjónað áfram með litnum marsipan. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 37-39-41-43-45-47 cm mælt fyrir miðju að framan (mælt eftir stroff). Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) jafnframt sem aukið er út um 30-32-34-38-42-46 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 230-248-266-286-318-346 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4 cm er fellt af. Peysan mælist 41-43-45-47-49-51 cm frá miðju að framan og ca 46-48-50-52-54-56 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 62-70-72-76-78-82 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 72-80-84-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur undir ermi. Byrjið umferðina við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón og rendur eins og áður, JAFNFRAMT þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingunni, fækkið um 2 lykkjur fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverjum 4-3-2½-2½-2-1½ cm alls 4 sinnum = 64-72-76-80-84-88 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 18-16-15-15-12-9 cm frá skiptingunni, passið uppá að endað sé með minnst 3½ cm með litnum marsipan. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið 4 umferðir með stroffi (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið 3 umferðir slétt. Fellið af. Ermin mælist ca 20-18-17-17-14-11 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #hiddenseaside eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 259-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.