Paula skrifaði:
Schönen Guten Morgen! Ich stricke gerade den Cardigan in Größe S und verstehe die Absteckungen nicht:) 118 machen werden zum Abstecken benötigt. Aber die Blende ist 7 Maschen, rechts und links, groß. Aber man hat nur 122 Maschen auf der Nadel. Muss ich den Markieren nach 2 Maschen schon setzten? Habe ich mich verzählt? Ich würde die Markierer sonst umrechnen, das sie Proportional passen, weiß aber nicht, ob er dann zu klein wird. Vielen Dank für die Hilfe:)
13.05.2025 - 09:43DROPS Design svaraði:
Liebe Paula, beachten Sie, daß die Markierer in jeweils eine Masche (und nicht zwischen Maschen) eingesetzt sind, so haben Sie: 23+1+20+1+32+1+20+1+23=122 Maschen (wie bei der letzten Reihe der Halsblende). Viel Spaß beim Stricken!
13.05.2025 - 20:43
Emily McAfee skrifaði:
For size XL, I am missing 4 stitches when I divide for raglan increases. There are 142 stitches on and markers at 26+24+38+24+26 = 138. Where are the other 4 stitches? Hoping to separate correctly for increases. Thank you!
19.04.2025 - 11:22DROPS Design svaraði:
Hi Emily, You insert the markers into the next stitch after counting the correct number of stitches - insert markers into the 27th, 52nd, 91st, 116th stitch, leaving 26 stitches after the 4th marker for the right front piece = 142 stitches. Happy Easter
19.04.2025 - 17:03
Emma skrifaði:
Hallo aus Brandenburg, muss es nicht heißen, dass in den Rückreihen links gestrickt werden muss. Jedenfalls sieht es auf dem Bild so aus. Danke für eure Antwort 😊.
15.02.2025 - 17:22
Lavender Dust Cardigan#lavenderdustcardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og i-cord. Stærð S - XXXL.
DROPS 257-10 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5 næstu hnappagötum með ca 7½-8-8-8-8½-9 cm á milli hverra hnappagata. Nesta hnappagatið er staðsett ca í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eins og útskýrt er að neðan: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI Á UNDAN MERKI: Gerið uppslátt um hægri prjón með því að leggja þráðinn yfir hægri prjón aftan frá og fram, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið í fremri lykkjubogann. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI Á EFTIR MERKI: Gerið uppslátt um hægri prjón með því að leggja þráðinn framan við prjóninn og síðan að draga þráðinn til baka aftur á bak, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið í aftari lykkjubogann. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við og fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 123-127-135-143-147-151 lykkjur á hringprjón 3 með 1 þræði DROPS Sky. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 7 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 7 kantlykkjur að framan með i-cord. Haldið svona áfram með stroff í 2-2-3-3-4-4 cm – jafnframt í síðustu umferð er fækkað um 1 lykkju ca fyrir miðju í umferð = 122-126-134-142-146-150 lykkjur. Setjið 1 merki að innanverðu í kantlykkjur að framan í annarri hlið á stykki (= miðja að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju og þessar lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni. Teljið 23-24-26-26-27-28 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 20-20-20-24-24-24 lykkjur (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 32-34-38-38-40-42 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 20-20-20-24-24-24 lykkjur (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju, það eru 23-24-26-26-27-28 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merki (= hægra framstykki). Skiptið yfir á hringprjón 4, prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig – ATH: Fellt er af fyrir hnappagötum í fyrstu umferð – lesið útskýringu að ofan. UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við hverja laskalykkju (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-5-8-14-13 sinnum (= 4-4-10-16-28-26 prjónaðar umferðir) = 138-142-174-206-258-254 lykkjur í umferð. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við hverja laskalykkju (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður. UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á framstykkjum og á bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á eftir 1. og 3. merki og á undan 2. og 4. merki – lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 14-15-14-13-11-13 sinnum (= 56-60-56-52-44-52 umferðir prjónaðar = 14-15-14-13-11-13 sinnum fleiri á ermum, 28-30-28-26-22-26 sinnum fleiri á framstykki/bakstykki) = 306-322-342-362-390-410 lykkjur í umferð. Þegar öll útaukning fyrir laskalínu er lokið, hefur verið aukið út alls 30-32-33-34-36-39 sinnum á framstykkjum/bakstykki og 16-17-19-21-25-26 sinnum á ermum. Prjónið síðan sléttprjón og kanta að framan eins og áður án þess að auka út, þar til stykkið mælist ca 21-23-24-24-26-28 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Í stærð S, M og L skiptist stykkið fyrir miðju í laskalínu, í stærð XL, XXL og XXXL skiptist stykkið þannig að laskalínur eru staðsettar aðeins inn á framstykki/bakstykki. Prjónið þannig: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 53-56-59-62-67-72 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 54-56-60-64-68-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-14-16-20-22-26 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 92-98-104-110-120-130 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 54-56-60-64-68-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-14-16-20-22-26 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 53-56-59-62-67-72 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 218-238-254-274-298-326 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður þar til stykkið mælist 37-39-40-41-42-44 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT því sem aukið er út um 43-45-49-53-61-63 lykkjur jafnt yfir í umferð (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan) = 261-283-303-327-359-389 lykkjur, prjónað er þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukning) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 4-4-5-5-6-6 cm er fellt af. Peysan mælist 41-43-45-46-48-50 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 46-48-50-52-54-56 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 54-56-60-64-68-68 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-14-16-20-22-26 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 64-70-76-84-90-94 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 13-11-9-11-8-7 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 6-6-6-8-8-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 70-76-82-92-98-104 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2-2-3-3-4-4 cm er fellt af aðeins laust. Ermin mælist ca 15-13-12-14-12-11 cm frá skiptingu. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lavenderdustcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 257-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.