Gabi skrifaði:
Wenn ich die Einteilung für die Passe mache komme ich auf 105 Maschen Ich habe aber doch 109 Maschen (Größe M)angeschlagen . Was mache ich verkehrt. Danke für baldige Antwort
07.07.2026 - 16:08DROPS Design svaraði:
Siehe unten :)
08.07.2026 - 07:55
Gabi skrifaði:
Wenn ich die Einteilung für die Passe mache komme ich auf 105 Maschen Ich habe aber doch 109 Maschen (Größe M)angeschlagen . Was mache ich verkehrt. Danke für baldige Antwort
07.07.2026 - 16:06DROPS Design svaraði:
Liebe Gabi, beachten Sie, daß die Markierung für Raglanzunahmen in je einer Masche eingesetzt werden, daher kommen sicher Ihre 4 fehlende Maschen. Viel Spaß beim Stricken!
08.07.2026 - 07:54
Françoise skrifaði:
Les augmentations raglans se font sur les rangs envers ? Et comment alors , la vidéo ne correspond pas! Merci
27.09.2025 - 22:52DROPS Design svaraði:
Bonjour Françoise, les augmentations raglans se font sur l'endroit, les rangs endroit (en faisons des jetes). Le rang suivant - sur l'envers vous tricotez les jetes comme sous RAGLAN. Bon tricot!
28.09.2025 - 09:42
Sharin skrifaði:
De raglan zoals in video en beschrijving begrijp ik niet goed. Kan ik de meerdering vervangen voor M1R en M1L voor en na de raglansteek? De video gaat voor mij veel te snel.
20.04.2025 - 15:46
Sweet Clementine Cardigan#sweetclementinecardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Fiesta og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og ¾ löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 258-24 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 10½-11-9-9½-10-10 cm á milli hverra hnappagata. Nesta hnappagatið er staðsett ca í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við og fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 107-109-115-117-123-125 lykkjur á hringprjón 3,5 með 1 þræði DROPS Fiesta og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Frá röngu: Prjónið 7 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD, prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 7 kantlykkjur að framan með i-cord. Prjónið síðan þannig: Frá réttu: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið kant að framan eins og áður. Frá röngu: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt, prjóni kant að framan eins og áður. Prjónið þessar 2 umferðir 1 sinni til viðbótar = 4 umferðir stroff. BERUSTYKKI: Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju og þessar lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni. Teljið 20-20-22-22-24-24 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 19 lykkjur (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 25-27-29-31-33-35 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 19 lykkjur (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju, það eru 20-20-22-22-24-24 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merki (= hægra framstykki). Setjið 1 merki að innanverðu í kant að framan í annarri hliðinni á stykki (= miðja að framan), stykki er nú mælt frá þessu merki. Skiptið yfir á hringprjón 5, prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir LASKALÍNA og HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan – þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við hverja laskalykkju (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður, munið eftir að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er undir laskalína. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-1-6-7-6-5 sinnum (= 6-2-12-14-12-10 prjónaðar umferðir) = 131-117-163-173-171-165 lykkjur í umferð. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Haldið áfram í sléttprjóni og kanta að framan og aukið síðan út fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við hverja laskalykkju (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður. UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á framstykkjum og á bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á eftir 1. og 3. merki og á undan 2. og 4. merki – lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 10-12-10-11-13-15 sinnum (= 40-48-40-44-52-60 umferðir prjónaðar = 10-12-10-11-13-15 sinnum fleiri á ermum, 20-24-20-22-26-30 sinnum fleiri á framstykki/bakstykki) = 251-261-283-305-327-345 lykkjur í umferð. Þegar öll útaukning fyrir laskalínu er lokið, hefur verið aukið út alls 23-25-26-29-32-35 sinnum á framstykkjum/bakstykki og 13-13-16-18-19-20 sinnum á ermum. Prjónið síðan sléttprjón og kanta að framan eins og áður án þess að auka út, þar til stykkið mælist ca 21-23-24-27-29-32 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 44-46-49-52-57-60 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 45-45-51-55-57-59 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-18-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 73-79-83-91-99-107 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 45-45-51-55-57-59 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-18-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 44-46-49-52-57-60 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 181-195-209-227-249-267 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT því sem aukið er út um 18-20-20-22-24-26 lykkjur jafnt yfir í umferð (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan) = 199-215-229-249-273-293 lykkjur, prjónað er þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukning) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 3 cm er fellt af. Peysan mælist 45-47-49-51-53-55 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 50-52-54-56-58-60 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 45-45-51-55-57-59 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-12-14-16-18-20 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 55-57-65-71-75-79 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 19-18-19-16-16-13 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið 4 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 5-7-7-5-5-5 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 60-64-72-76-80-84 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Fellið af með sléttum lykkjum. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetclementinecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 258-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.