Anna Krüger skrifaði:
Hallo liebes Drops-Team, Welche Größe trägt denn das Model auf den Fotos? Das würde mir als Einschätzung der richtigen Größe helfen. Danke und liebe Grüße
22.02.2025 - 14:38DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Krüger, unsere Modellen tragen meistens entweder S oder M aber um Ihre Größe zu finden, messen Sie einen ähnlichen Pullover, den Sie haben und gerne tragen, dann vergleichen Sie die Maßen mit den in der Skizze, so finden Sie die passende Größe - hier lesen Sie mehr. Viel Spaß beim Stricken!
24.02.2025 - 08:16
Sunny Seaside#sunnyseasidesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Fiesta og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með skáhallandi öxl / evrópskri öxl, klauf í hliðum og rúllukanti. Stærð XS - XXL.
DROPS 259-35 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjað er á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Síðan er prjónað niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða og byrjun á framstykki er prjónuð. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 stykkjum. Byrjað er að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, prjónað og aukið út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukning fyrir hálsmáli er lokið. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Síðan er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Fram- og bakstykkið skiptist fyrir klauf í hvorri hlið, síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað til loka fram og til baka hvort fyrir sig. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru prjónaðar upp lykkjur í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 22-22-24-26-26-26 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði DROPS Fiesta og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 10-11-12-12-13-15 sinnum (= 20-22-24-24-26-30 prjónaðar umferðir), eftir síðustu útaukningu eru = 62-66-72-74-78-86 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt! Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Prjónið síðan í sléttprjóni þar til stykkið mælist 8-9-9-9-10-10 cm mælt frá merki yst meðfram handveg. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-2-3-3-3 sinnum = 66-70-76-80-84-92 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 11-12-12-13-14-14 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi, endið með eina umferð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að öxl þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju = 20-22-24-24-26-30 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 9 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4 sinnum = (8-8-8-8-8-8 umferðir prjónaðar) = 24-26-28-28-30-34 lykkjur (næsta umferð sem er prjónuð á að vera frá réttu). Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykkið prjónað meðfram hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru prjónaðar upp lykkjur meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkjur í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 20-22-24-24-26-30 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 9 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4 sinnum (= 8-8-8-8-8-8 umferðir prjónaðar) = 24-26-28-28-30-34 lykkjur (= næsta umferð sem er prjónuð á að vera frá réttu). Síðan eru framstykkin sett saman – lesið útskýringu að neðan. FRAMSTYKKI (hægra og vinstra stykki sett saman): Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 24-26-28-28-30-34 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 14-14-16-18-18-18 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið síðan 24-26-28-28-30-34 lykkjur frá vinstra framstykki = 62-66-72-74-78-86 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 20-21-23-23-24-26 cm. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-2-3-3-3 sinnum (= 4-4-4-6-6-6 prjónaðar umferðir) = 66-70-76-80-84-92 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 23-24-26-27-28-30 cm, endið á umferð frá röngu. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Stykkið er nú mælt héðan! FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 66-70-76-80-84-92 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 2-2-2-2-6-6 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið mitt undir ermi – setjið einn merkiþráð fyrir miðju í þessar lykkjur), prjónið síðan 66-70-76-80-84-92 lykkjur frá bakstykki og fitjið upp 2-2-2-2-6-6 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) – setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í þessar lykkjur) = 136-144-156-164-180-196 lykkjur í umferð. Látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf í hvorri hlið, byrjið umferð við merkiþráð og prjónið í hring. Prjónið hringinn þar til stykkið mælist ca 29-30-31-31-32-33 cm, mælt frá handvegi. Nú skiptist stykkið fyrir klauf í hvorri hlið, en fyrst er prjónuð ein umferð svo skiptingin verði falleg. Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan 1. Merkiþræði, setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og prjónið síðan lykkjuna af kaðlaprjóni. Endurtakið við 2. Merkiþráðinn og prjónið síðan að 1. Merkiþræði. Nú er hægt að skipta stykkinu við merkiþræðina með því að láta lykkjur frá bakstykki bíða og prjóna lykkjur frá framstykki fram og til baka eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: = 68-72-78-82-90-98 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið fram og til baka þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) þar til 4 lykkjur eru eftir – JAFNFRAMT er aukið út um 14-14-16-16-16-20 lykkjur jafnt yfir lykkjur í stroffprjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur í garðaprjóni = 82-86-94-98-106-118 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm, prjónið 3 umferðir sléttprjón áður en fellt er af aðeins laust í sléttprjóni (= rúllukantur). Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm, mælt frá innst við hálsmál. BAKSTYKKI: Prjónið á sama hátt og framstykki. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handveg og niður á við. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = mitt ofan á öxl (ATH! Mitt ofan á öxl er ekki á sama stað og lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur ca 3 til 5 cm niður á framstykki). Prjónið upp lykkjur í kringum handveg, notið hringprjón 5 og byrjið mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 42-44-48-50-58-60 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur hvoru megin við merki. Skiptið yfir á hringprjón 7. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpu til að ermin fá betra form og passi betur, umferðin byrjar fyrir miðju undir ermi þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 5-5-6-6-7-7 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 5-5-6-6-7-7 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 8-8-6-6-5-5 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 8-8-6-6-5-5 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. Í stærð XS og S hafa stuttar umferðir verið prjónaðar til loka. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4 alls 4 0-0-2-2-4-4 sinnum til viðbótar. Snúið hefur verið við alls 4-4-6-6-8-8 sinnum (= 2-2-3-3-4-4 sinnum í hvorri hlið og síðasta prjónaða umferðin er frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er endurtekin, endið umferð með að snúa stykkinu, prjónið síðan frá réttu að byrjun á umferð (fyrir miðju undir ermi). Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, það á að nota hann þegar fækka á lykkjum undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Nú er prjónað í hring í sléttprjón yfir allar lykkjur JAFNFRAMT því sem fækka á lykkjum undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar ermin mælist 1-1-1-1-1-1 cm, mælt fyrir miðju undir ermi, fækkið um 2 lykkjur 0-0-0-0-2-2 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 0-0-4-4-5-5 cm alls 0-0-1-1-2-2 sinnum = 42-44-46-48-52-52 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 42-42-41-40-39-37 cm frá miðju ofan á öxl. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 10-8-10-8-10-12 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 52-52-56-56-60-64 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm prjónið 3 umferðir sléttprjón áður en fellt er af aðeins laust með sléttum lykkjum (= rúllukantur). Ermin mælist ca 48-48-47-47-46-44 cm frá miðju ofan á öxl. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 5 og 1 þráð í hvorri tegund (= 2 þræðir). Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp 84 til 92 lykkjur innan við 1 lykkju – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 4-4-4-5-5-5 cm. Prjónið 3 umferðir sléttprjón og fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum (= rúllukantur). |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sunnyseasidesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 259-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.