Snow Ring Cardigan#snowringcardigan |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki, röndum og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 252-35 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 4-5-5-5-6-6 næstu hnappagötum með ca 10-8½-9-9-8-8 cm milli hnappagata. Neðsta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. RENDUR: Skiptið um lit eftir 7 lykkjur í kanti að framan til að koma í veg fyrir að það verði lausir endar framan á peysunni. Rendurnar eru prjónaðar með 1 þræði DROPS Air og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk þannig: Prjónið 2-2-2-2-2-2 cm í litnum natur. Prjónið 6-6-6-7-7-7 cm í litnum perlugrár. Endurtakið rendurnar með þessum hætti fram að stroffi, síðan er stykkið prjónað til loka með 1 þræði Air í litnum perlugrár og 1 þræði Brushed Alpaca Silk í litnum perlugrár að loka máli. I-CORD: FYRSTU 2 LYKKJUR: Prjónið í hverri umferð þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. SÍÐUSTU 2 LYKKJUR: Prjónið í hverri umferð þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 4 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við, fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Fram- og bakstykkið skiptist fyrir klauf í hvorri hlið og síðan eru framstykkin og bakstykkið prjónað til loka hvert fyrir sig fram og til baka. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn saman tvöfaldur að röngu og saumaður niður. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 73-75-79-83-85-89 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði DROPS Air í litnum perlugrár og 1 þræði í DROPS Brushed Alpaca silk í litnum perlugrár (= 2 þræðir). Skiptið yfir á hringprjón 5 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist 5 cm (= ca hæð á kanti í hálsmáli þegar búið er að brjóta uppá hann tvöfalt). Í lok hvorra af næstu 2 umferðum eru fitjaðar upp 6 lykkjur fyrir kant að framan = 85-87-91-95-97-101 lykkjur í umferð, ystu 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eru síðan prjónaðar eins og KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Prjónið þar til kantur í hálsmáli mælist 11 cm – endið eftir eina umferð frá röngu. Setjið eitt merki innan við kant að framan í annarri hliðinni á stykkinu, stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 8 og prjónið fyrstu umferð frá réttu með byrjun frá miðju að framan þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið sléttprjón þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið kant að framan eins og áður – munið eftir HNAPPAGAT, lesið útskýringu að ofan = 85-87-91-95-97-101 lykkjur. Prjónið síðan í sléttprjóni og kant að framan. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Haldið áfram í sléttprjóni og kant að framan þar til berustykkið mælist 2-2-3-2-2-2 cm frá merki. Prjónið síðan eins og útskýrt er að neðan – öll útaukning er gerð frá réttu – lesið MYNSTUR í útskýringu að ofan. A.1: Prjónið kant að framan, prjónið 3-1-6-5-3-2 lykkjur slétt, prjónið A.1 alls 22-24-22-24-26-28 sinnum berustykkið hringinn þar til 9-7-12-11-9-8 lykkjur eru eftir, prjónið 2-0-5-4-2-1 lykkjur slétt, endið með kant að framan = 107-111-113-119-123-129 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og kant að framan þar til stykkið mælist 7-7-7-7-7-8 cm frá merki jafnframt þegar stykkið mælist 6-6-6-7-7-7 cm frá merki er prjónaðar RENDUR – lesið útskýringu að ofan. Prjónið A.2: Prjónið kant að framan, prjónið 3-1-6-5-3-2 lykkjur slétt, prjónið A.2 alls 22-24-22-24-26-28 sinnum berustykkið hringinn þar til eftir eru 9-7-12-11-9-8 lykkjur, prjónið 2-0-5-4-2-1 lykkjur slétt, endið með kant að framan = 129-135-135-143-149-157 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og kant að framan þar til berustykkið mælist 12-12-11-12-12-14 cm frá merki. A.3: Prjónið kant að framan, prjónið 3-1-6-5-3-2 lykkjur slétt, prjónið A.3 alls 22-24-22-24-26-28 sinnum berustykkið hringinn þar til stykkið mælist 9-7-12-11-9-8 lykkjur, prjónið 2-0-5-4-2-1 lykkjur slétt, endið með kant að framan = 151-159-157-167-175-185 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og kant að framan þar til berustykkið mælist 17-17-15-17-17-20 cm frá merki. A.4: Prjónið kant að framan, prjónið 3-1-6-5-3-2 lykkjur slétt, prjónið A.4 alls 22-24-22-24-26-28 sinnum berustykkið hringinn þar til eftir eru 9-7-12-11-9-8 lykkjur, prjónið 2-0-5-4-2-1 lykkjur slétt, endið með kant að framan = 173-183-179-191-201-213 lykkjur. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 18-18-16-18-18-21 cm frá merki. Í stærð S og M er útaukningu lokið. Í þeim stærðum sem eftir eru er aukið út 1 sinni til viðbótar eins og útskýrt er að neðan. Haldið áfram í sléttprjóni og kant að framan þar til berustykkið mælist 18-18-19-22-22-26 cm frá merki. Prjónið frá réttu þannig: Prjónið kant að framan, prjónið 159-169-6-5-3-2 lykkjur slétt, prjónið A.5 alls 0-0-22-24-26-28 sinnum berustykkið hringinn þar til eftir eru 7-7-12-11-9-8 lykkjur, prjónið 0-0-5-4-2-1 lykkjur slétt, endið með kant að framan = 173-183-201-215-227-241 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni, prjónið rendur og kant að framan. Þegar berustykkið mælist 20-21-23-24-26-28 cm frá merki fyrir miðju að framan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 32-33-36-38-41-44 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 30-32-36-38-39-40 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-8-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 49-53-57-63-67-73 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 30-32-36-38-39-40 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-8-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 32-33-36-38-41-44 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 129-139-145-159-173-185 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 8-10-8-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar skipta á upp stykkinu fyrir klauf í hvorri hlið. Prjónið fram og til baka frá miðju að framan yfir allar lykkjur í sléttprjóni, prjónið rendur og kant að framan eins og áður. Prjónið þar til stykkið mælist 41-43-45-46-48-50 cm frá merki fyrir miðju að framan – síðasta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið eins og áður fram þar til 2 lykkjur eru eftir á undan fyrsta merkiþræði, setjið næstu 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið næstu 2 lykkjur brugðið saman, setjið merkiþráðinn á prjóninn, prjónið 2 lykkjur af kaðlaprjóni brugðið, prjónið fram að 2 lykkjum á undan seinni merkiþræði, setjið næstu 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið næstu 2 lykkjur brugðið, setjið merkiþráðinn á prjóninn, prjónið 2 lykkjur af kaðlaprjóni brugðið, prjónið út umferðina eins og áður. Nú skiptist stykkið fyrir klauf í hvorri hlið á fram- og bakstykki, skiptið stykkinu við merkiþræðina með því að bíða með lykkjur frá bakstykki og hægra framstykki og prjónið lykkjur frá vinstra framstykki fram og til baka eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 36-38-40-43-47-50 lykkjur. Í næstu umferð (= rétta) byrjar stroff JAFNFRAMT því sem aukið er út um 16-18-20-21-23-24 lykkjur jafnt yfir í umferð (ekki er aukið út yfir kant að framan) – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 52-56-60-64-70-74 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan og endið með 2 lykkjur I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Þegar stroffið mælist 7-7-7-8-8-8 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 48-50-52-54-56-58 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 53-55-57-59-61-63 cm frá toppi á öxl. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 36-38-40-43-47-50 lykkjur. Í næstu umferð (= rétta) byrjar stroff JAFNFRAMT því sem aukið er út um 16-18-20-21-23-24 lykkjur jafnt yfir í umferð = 52-56-60-64-70-74 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 2 lykkjur i-cord, 2 lykkjur í garðaprjón, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukning) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 7-7-7-8-8-8 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. BAKSTYKKI: = 57-63-65-73-79-85 lykkjur. Í næstu umferð (= rétta) byrjar stroff JAFNFRAMT því sem aukið er út um 34-36-40-42-46-48 lykkjur jafnt yfir í umferð = 91-99-105-115-125-133 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 2 lykkjur i-cord, 2 lykkjur í garðaprjón, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukning) þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 2 lykkjur í i-cord. Þegar stroffið mælist 7-7-7-8-8-8 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. ERMAR: Setjið 30-32-36-38-39-40 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 8 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-8-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 38-42-44-48-51-52 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-10-8-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn og haldið áfram að prjóna rendur eins og áður umferðina hringinn - JAFNFRAMT þegar ermin mælist 4-2-2-2-3-2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkað er um 2 lykkjur í hverjum 10-6-5-4-3-3 cm alls 4-6-7-8-9-9 sinnum = 30-30-30-32-33-34 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 37-36-34-33-31-30 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5 og prjónið stroff (= 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 18-18-18-18-19-20 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 48-48-48-50-52-54 lykkjur. Þegar stroffið mælist 7-7-7-8-8-8 fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 44-43-41-41-39-38 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan í kanti að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #snowringcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 37 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 252-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.