DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Soft Tweed yarn
DROPS Soft Tweed
50% Ull, 25% Alpakka, 25% Viscose
frá 1090.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 21680.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Stormy Ocean

Prjónuð stór / oversize peysa úr DROPS Soft Tweed og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með köðlum, ísaumuðum ermum, skáhallandi öxl og rúllukanti. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 254-18

#stormyoceansweater

DROPS Design: Mynstur st-049
Garnflokkur B + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS SOFT TWEED frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-550-650-700-750-800 gr litur 10, gallabuxnablár
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
175-175-200-225-250-250 gr litur 28, sjávarblár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund með prjóna nr 5 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Soft Tweed
DROPS Soft Tweed
50% Ull, 25% Alpakka, 25% Viscose
frá 1090.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 21680.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5.
Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (jafnt yfir) :
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem á að fækka í / heildartölu lykkjufjölda í umferð (t.d. 22 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 5) = 4,4. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna 3. og 4. hverja lykkju slétt saman.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING:
Aukið út 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn er staðsettur fyrir miðju á þessum 4 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt – svo ekki komi gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf.
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig, fram og til baka. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp og prjónað er í hring. Stykkin eru saumuð saman. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli í hring.
Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 244-244-268-284-324-332 lykkjur á hringprjón 3,5 með 1 þræði DROPS Soft Tweed og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir).
Prjónið stroff og MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig: Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) yfir fyrstu 8-8-12-20-20-24 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.1, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 16-16-20-20-20-20 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.1, A.2, A.1, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 16-16-20-20-20-20 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.1, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 8-8-12-20-20-24 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.1, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 16-16-20-20-20-20 lykkjur, 2 lykkjur slétt, prjónið A.1, A.2, A.1, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 16-16-20-20-20-20 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.1.
Prjónið svona þar til stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm.

Prjónið síðan MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig:
Skiptið yfir á hringprjón 5, prjónið 10-10-14-22-22-26 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 2-0-2-2-0-0 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 8-10-12-20-22-26 lykkjur sléttprjón í hliðum á fram- og bakstykki), prjónið A.3 yfir A.1, prjónið 18-18-22-22-22-22 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 3-1-3-2-5-2 lykkjur jafnt yfir (= 15-17-19-20-17-20 lykkjur sléttprjón), prjónið A.3 yfir A.1, prjónið A.4 yfir næstu 36-36-36-36-48-48 lykkjur (= yfir A.2), prjónið A.5 yfir A.1, prjónið 18-18-22-22-22-22 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 3-1-3-2-5-2 lykkjur jafnt yfir (= 15-17-19-20-17-20 lykkjur sléttprjón), prjónið A.5 yfir A.1, prjónið 10-10-14-22-22-26 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 2-0-2-2-0-0 lykkjur jafnt yfir (= 8-10-12-20-22-26 lykkjur sléttprjón í hlið á fram- og bakstykki), prjónið A.3 yfir A.1, prjónið 18-18-22-22-22-22 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 3-1-3-2-5-2 lykkjur jafnt yfir (= 15-17-19-20-17-20 lykkjur sléttprjón), prjónið A.3 yfir A.1, prjónið A.4 yfir næstu 36-36-36-36-48-48 lykkjur (= yfir A.2), prjónið A.5 yfir A.1, prjónið 18-18-22-22-22-22 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 3-1-3-2-5-2 lykkjur jafnt yfir (= 15-17-19-20-17-20 lykkjur sléttprjón), prjónið A.5 yfir A.1 = 228-240-252-272-304-324 lykkjur.

Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm – endið eftir umferð á sléttri tölu í mynsturteikningu (þetta er gert til að koma í veg fyrir að snúningur í kaðli sé frá röngu þegar stykkið er prjónað fram og til baka). Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu.

SKIPTING Á STYKKI FYRIR HANDVEG:
Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og umferðin er prjónuð þannig: Fellið af fyrstu 8-10-12-20-22-26 lykkjur í umferð fyrir handveg, prjónið 106-110-114-116-130-136 lykkjur eins og áður (= framstykki), fellið af næstu 8-10-12-20-22-26 lykkjur fyrir handveg, prjónið 106-110-114-116-130-136 lykkjur eins og áður (= bakstykki).
Nú er framstykkið og bakstykkið prjónað til loka fram og til baka, hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 106-110-114-116-130-136 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka, en ysta lykkjan í hvorri hlið er prjónuð í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan.
Þegar stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm, setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl og fellið af fyrir hálsmáli eins og útskýrt er að neðan.

SKÁHALLANDI ÖXL:
Setjið ystu 3-3-3-4-4-4 lykkjur við handveg á þráð fyrir skáhallandi öxl (til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráð). Setjið 3-3-3-4-4-4 lykkjur á þráð alls 4 sinnum í hvorri hlið (= 12-12-12-16-16-16 lykkjur á þráð í hvorri hlið).

HÁLSMÁL:
JAFNFRAMT þegar eftir er 1 umferð áður en stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm, fækkið um 6-6-6-6-8-8 lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.4. Í næstu umferð eru felldar af miðju 26-26-26-26-30-30 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig.
Haldið áfram að setja lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli.

Þegar allar lykkjur hafa verið settar á þráð fyrir skáhallandi öxl og fellt hefur verið af fyrir hálsmáli eru 23-25-27-24-28-31 lykkjur eftir í umferð fyrir öxl og stykkið mælist ca 59-61-63-65-67-69 cm mælt frá hæsta punkti inn að hálsmáli.
Setjið til baka 12-12-12-16-16-16 lykkjur af þræði á prjóninn saman við 23-25-27-24-28-31 lykkjur í umferð = 35-37-39-40-44-47 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 3-3-3-3-4-4 lykkjur jafnt yfir hvern kaðal (= 6-6-6-6-8-8 lykkjur færri) = 29-31-33-34-36-39 lykkjur – ATH: Til að koma í veg fyrir að það myndist gat í skiptingunni þar sem lykkjur voru settar á þráð, takið upp þráðinn á milli 2 lykkja og prjónið snúið saman með fyrstu lykkju á vinstri prjóni.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Stykkið mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm mælt frá hæsta punkti inn að hálsmáli.
Prjónið hina öxlina á sama hátt (klippið þráðinn og byrjið frá réttu þegar allar axlalykkjurnar hafa verið settar til baka á prjóninn).

FRAMSTYKKI:
= 106-110-114-116-130-136 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður, en ysta lykkjan í hvorri hlið er prjónuð í garðaprjón.
Þegar eftir er 1 umferð áður en stykkið mælist 54-56-57-58-59-60 cm, fækkið um 6-6-6-6-8-8 lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.4 = 100-104-108-110-122-128 lykkjur.
Í næstu umferð eru miðju 18-18-18-16-16-16 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan eru lykkjur felldar af fyrir hálsmáli og lykkjur settar á þráð fyrir skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan.

HÁLSMÁL:
Fellið af fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 2-2-2-2-3-3 sinnum og 1 lykkja 2-2-2-3-3-3 sinnum.

SKÁHALLANDI ÖXL:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm, setjið ystu 3-3-3-4-4-4 lykkjur við handveg á þráð fyrir skáhallandi öxl (til að koma í veg fyrir að þurfa að klippa þráðinn sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráð). Setjið 3-3-3-4-4-4 lykkjur á þráð alls 4 sinnum í hvorri hlið (= 12-12-12-16-16-16 lykkjur á þræði í hvorri hlið).

Þegar allar lykkjur hafa verið felldar af fyrir hálsmáli og settar á þráð fyrir skáhallandi öxl eru 23-25-27-24-28-31 lykkjur eftir í umferð fyrir öxl og stykkið mælist ca 59-61-63-65-67-69 cm mælt frá hæsta punkti inn að hálsmáli.
Setjið til baka 12-12-12-16-16-16 lykkjur af axla-þræði á prjóninn saman með 23-25-27-24-28-31 lykkjum af prjóni = 35-37-39-40-44-47 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 3-3-3-3-4-4 lykkjur jafnt yfir hvern kaðal (= 6-6-6-6-8-8 lykkjur færri) = 29-31-33-34-36-39 lykkjur – ATH: Til að koma í veg fyrir að það myndist gat í skiptingunni þar sem lykkjur voru settar á þráð, takið upp þráðinn á milli 2 lykkja og prjónið snúið saman með fyrstu lykkju á vinstri prjóni.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Stykkið mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm mælt frá hæsta punkti inn að hálsmáli.
Prjónið hina öxlina á sama hátt (klippið þráðinn og byrjið frá réttu þegar allar axlalykkjurnar hafa verið settar til baka á prjóninn).

ERMAR:
Ermin er prjónuð í hring, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka.
Fitjið upp 56-56-60-60-64-64 lykkjur á sokkaprjóna 3,5.
Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 6-6-6-7-7-7 cm.
Í næstu umferð er skipt yfir á sokkaprjóna 5 og prjónuð 1 umferð slétt JAFNFRAMT er fækkað um 10-8-10-8-12-10 lykkjur jafnt yfir í umferð – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA = 46-48-50-52-52-54 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar (= miðja undir ermi). Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu, merkiþráðurinn er notaður þegar auka á út fyrir miðju undir ermi.
Prjónið sléttprjón.
Þegar ermin mælist 8-8-8-9-9-11 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út lykkjur fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og aukið út þannig: Aukið út 2 lykkjur í hverjum 3½-3-3-2½-2-1½ cm alls 11-12-12-13-15-16 sinnum = 68-72-74-78-82-86 lykkjur.
Prjónið síðan sléttprjón þar til ermin mælist 46-45-44-42-40-38 cm. Nú er ermakúpan prjónuð með því að prjóna sléttprjón fram og til baka frá miðju undir ermi, þannig að það myndist smá klauf mitt undir ermi. Prjónið þar til klaufin mælist 2-3-4-6-7-8 cm og ermin mælist alls 48-48-48-48-47-46 cm. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar við handveg innan við 1 lykkju í garðaprjóni – ATH – það er klauf undir ermum sem á að sauma við botninn á handvegi – sjá teikningu.

KANTUR HÁLSMÁL:
Notið hringprjón 3,5 og 1 þráð í hvorri tegund (= 2 þræðir) og prjónið upp lykkjur í kringum hálsmál frá réttu þannig:
Byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp ca 84-84-88-88-100-100 lykkjur (ásamt lykkjum frá þræði að framan) – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4.
Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) hringinn í 6-6-7-7-8-8 cm. Prjónið 3 umferðir sléttprjón (= rúllukantur). Skiptið yfir á hringprjón 5 og fellið af aðeins laust með garðaprjóni.

Mynstur

slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
Saumið a við A og b við B = Saumið a við A og b við B
Diagram for DROPS 254-18
Diagram for DROPS 254-18

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #stormyoceansweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 254-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Trees skrifaði:

Ik moet 244 steken opzetten voor het lijf.\r\nDan ga ik breien precies volgens patroon, dan heb ik 152 steken gebreid.\r\nDan houd ik 92 steken over, wat doe ik daarmee??

11.12.2024 - 18:40

country flag Carla skrifaði:

Nav mijn vraag, ik heb zelf al de oplossing gevonden, ik heb niet goed naar het telpatroon gekeken en zie nu waarom het me niet lukte: ik keek alleen naar de te breien kabel en niet naar de overige toeren die ik erbij moet breien boven en onder de kabel :-)

04.12.2024 - 14:49

country flag Carla skrifaði:

Hallo, ik ben begonnen met breien maar eenmaal de eerste tour na het boord gebreid te hebben met A3, A4 en A5 snap ik niet hoe verder te gaan. Als ik A4 herhaal over A4 lijkt het me niet het juiste patroon te geven, evenals A3 over A3 en A5 over A5, dan zullen hele kleine kabeltjes geven. Kunt u me verder helpen ?

02.12.2024 - 13:42

country flag Moira skrifaði:

Hi Can you explain what it means to work A.3 across A.1? Thank you.

01.12.2024 - 18:41

DROPS Design svaraði:

Hi Moira, The 10/12 stitches in A.1 (depending on the size you are working) will now be worked according to diagram A.3 (also 10/12 stitches). Happy knitting!

02.12.2024 - 07:14

country flag Moira McHarg skrifaði:

Hi Can you explain what it means to work A.3 across A.1? Thank you.

01.12.2024 - 18:35

DROPS Design svaraði:

Hi Moira, it means you work A.3 in the same place (over the same stitches) where you have knitted A.1 so far. Happy knitting!

02.12.2024 - 09:41

country flag Carla skrifaði:

Hallo, ik ben begonnen met breien maar eenmaal de eerste tour na het boord gebreid te hebben met A3, A4 en A5 snap ik niet hoe verder te gaan. Als ik A4 herhaal over A4 lijkt het me niet het juiste patroon te geven, evenals A3 over A3 en A5 over A5, dan zullen hele kleine kabeltjes geven. Kunt u me verder helpen ?

30.11.2024 - 18:12

DROPS Design svaraði:

Dag Carla,

Toch zou dit het juiste patroon moeten zijn, misschien kost het wat tijd (lees een paar herhalingen in de hoogte van de patronen) voor dat je het patroon ziet ontstaan, zoals op de foto. Lees je de telpatronen van onder naar boven, zoals het hoort?

04.12.2024 - 21:13

country flag Elise skrifaði:

Kunnen jullie uitleggen wat nu ‘het patroon’ is? Bij het achterpand staat op een gegeven moment ‘ga verder met dit patroon tot een lengte van…’ maar dat staat na een beschrijving waarin telkens steken verminderd worden. Ik neem aan dat het minderen maar 1x hoeft te gebeuren? Is het patroon daarna A3-A3-A5-A5-A3-A3-A5-A5?

16.11.2024 - 10:13

DROPS Design svaraði:

Dag Elise,

In dit geval wordt inderdaad het gecreëerde patroon met A3-A3-A5-A5-A3-A3-A5-A5 bedoeld.

16.11.2024 - 17:59

country flag MURIEL COUSIN skrifaði:

Rebonjour Pour le biais de l épaule il faut bien mettre trous mailles sur un fil tricoter la suite du rang puis aux rags suivants faire la même chose des deux côtés et garder le même fil? Cordialement

05.11.2024 - 15:43

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Cousin, vous pouvez mettre en attente les mailles de chaque épaule sur le même fil mais il vous faudra 1 fil pour l'épaule droite et 1 fil pour l'épaule gauche; tricotez les mailles avant de les mettre en attente - et quand vous divisez l'ouvrage pour l'encolure, terminez chaque épaule séparément. Dans cette vidéo, nous montrons ce type de biais et d'encolure (pour un autre modèle, donc tout n'y est pas semblable), les mailles des biais sont mises sur des fils séparés, mais vous pouvez en garder un seul pour chaque épaule (au lieu de 3 dans la vidéo par ex.) Bon tricot!

05.11.2024 - 16:35

country flag MURIEL COUSIN skrifaði:

Bonjour Comment on fait pour biaiser les épaules? On peut pas mettre toutes les mailles sur le même fil? Cordialement

05.11.2024 - 10:34

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Cousin, vous pouvez tout à fait mettre les mailles du biais d'une épaule sur un seul fil (mais il faudra au moins 2 fils: 1 pour chaque épaule). Bon tricot!

05.11.2024 - 12:41

country flag Lafont Angeles skrifaði:

Comment faire pour que les mailles no vrillent pas? Tous mes ouvrages son de travers lorsque je tricote en rond. Merci

24.10.2024 - 20:11