Michelle skrifaði:
Sur tous vos modèles vous indiquez que si "si il y a trop de mailles pour 10 cm essayez avec des aiguilles plus grosses, si il n' y a pa assez de mailles pour 10 cm essayez avec des aiguilles plus fines", pour moi selon ma logique c'est tout le contraire: car avec des aiguilles plus grosses mon travail sera encore plus large et avec des aiguilles plus fines il sera plus étroit encore et ce ne semble pas être le but recherché!
30.04.2025 - 12:55DROPS Design svaraði:
Bonjour Michelle, si vous avez trop de mailles pour 10 cm, c'est que vos mailles sont trop petites par rapport à l'échantillon recommandé, il vous faudra alors essayer avec des aiguilles plus grosses; si, en revanche, vous n'avez pas assez de mailles pour 10 cm, c'est que vos mailles sont trop grosses par rapport à l'échantillon, il vous faudra alors essayer avec des aiguilles plus petites. Retrouvez plus d'explications ici. Bon tricot!
30.04.2025 - 13:12
Charlotte skrifaði:
Je zet 88 steken op voor de hals. Hierna verdeel je het werk in 20, 22, 20, 22 steken. Dat is 84 steken.Nu blijven er 4 steken over. Klopt dit?
18.02.2025 - 21:19DROPS Design svaraði:
Dag Charlotte,
Ja, dat klopt, want de markeerdraden worden in de steken geplaatst en niet tussen twee steken. Vermoedelijk heb je hierdoor 4 steken over gehouden.
19.02.2025 - 09:02
Anja skrifaði:
Ist das wirklich richtig dass ich unten für das Bündchen zunehmen muss ? Ist das nicht eigentlich umgekehrt? 🤔
23.01.2025 - 21:02DROPS Design svaraði:
Liebe Anja, so ist es richtig: für die gleiche Breite braucht man mehr Maschen für Bündchen mit kleineren Nadeln als für Glattrechts mit grösseren Nadeln, deshalb wird man zunehmen. Viel Spaß beim Stricken!
24.01.2025 - 10:09
Jeannette skrifaði:
Hallo. Auch wenn ich mich blamiere. Ich stricke sehr selten und habe ein Verständnisproblem. DROPS ALPACA von Garnstudio (gehört zur Garngruppe A) 300-350-400-400-450-500 g Farbe 100, natur 300-350-400-400-450-500 g Farbe 6205, hellblau Muss ich von beiden Farben bestellen und diese zusammen stricken oder wie darf ich das verstehen? Dankeschön
05.12.2024 - 11:11DROPS Design svaraði:
Liebe Jeannette, ja genau, der ganze Pullover wird 2-fädig gestrickt, dh mit 2 Farben zusammen, so brauchen Sie z.B. in S 300 g = 6 Knäuel Alpaca von beiden Farben (600 g insgesamt). Viel Spaß beim Stricken!
06.12.2024 - 07:31
Karen-Petra Sadowski-Cavichiolo skrifaði:
Hallo ,erste Runde wie folgt stricken: 22 Maschen rechts stricken,die nächsten 22 Maschen rechts und dabei gleichmäßig 6 Maschen aufnehmen.....Frage : wo wird aufgenommen? an den Armen oder an Vorder/Rückenteil ? dankeschön
25.11.2024 - 13:54DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Sadowski-Cavichiolo,; die Runden beginnen vor dem 1. Ärmelm, so die 22 ersten Maschen der Runde gehören zum Ärmel, die 22 nächsten Maschen für das Rückenteil werden auf 28 Maschen zugenomen, die nächsten 22 M sind für den 2. Ärmel gestrickt und dide letzten 22 Maschen auf 28 Maschen für das Rückenteil zugenommen. Viel Spaß beim Stricken!
25.11.2024 - 14:48
Birgit skrifaði:
Hallo. Die Markierungen für die Passe stimmen nicht. Bei grösse S hab ich 88 Maschen und soll 20,22,20 und 22 aufteilen, das ergibt aber 84. Mit den Maschen von grösse M passt es 18,26,18,26.
24.11.2024 - 14:17DROPS Design svaraði:
Liebe Birgit, beachten Sie, daß die Markierungen jeweils in einer Masche (und nicht zwischen 2 Maschen) eingesetzt werden, so haben Sie: 1-20-22-1-20-1-22=88 Maschen. Gleichfalls in M. Viel Spaß beim Stricken!
25.11.2024 - 10:16
Dagmar Kownatka skrifaði:
Hallo, Übergang Blende / Passe: "Der Rundenbeginn ist an der rechten Schulter hinten. 1 Markierer nach den ersten 33 Maschen der Runde anbringen.... die Arbeit wird nun ab diesem Markierer gemessen. Passe: ....Den 1. Markierer in der ersten Masche anbringen, ..." entspricht das nicht genau der oben beschriebenen, also 34. Masche (..Arbeit wird ab hier gemessen)"?
04.11.2024 - 18:55DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Kownatka, die Arbeit (= Passe und Rumpfteil) werden ab der mittleren Vorne gemessen, dh nach der Halsblende, deshalb wird man eine Markierung nach der 34. Masche einsetzen, so weiss man genau von wo man messen muss; die Runden beginnen aber an der rechten Schulter hinten, wie beschrieben. Viel Spaß beim Stricken!
05.11.2024 - 09:27
Dagmar Kownatka skrifaði:
Hallo, Übergang Blende z. Passe steht: ......"die Arbeit wird nun ab diesem Marker gemessen". (= 34. Masche nach Rundenbeginn). Passe: ..."nun 1. Markierer an ersten Masche anbringen". Müsste das nicht = die 34. von eben, also ca. vordere Mitte sein? Wird da nichts ungleichmässig?
04.11.2024 - 18:50
Tzemoi skrifaði:
Is de trui met achter pand honger dan voor pand? Hoe kan ik zorg dat de trui is lager voor de neck op de voor pand? Dankjewel
27.10.2024 - 10:52DROPS Design svaraði:
Dag Tzemoi,
Het voor- en achterpand zijn inderdaad even hoog. Om het achterpand hoger te maken zou je verkorte toeren kunnen breien vlak na de hals.
27.10.2024 - 13:59
Gerhard Gieseler ( Giesi) skrifaði:
Guten Morgen Ihr Lieben, Ein schöner Pullover ein schönes Modell, ich verfolge eure Anleitung schon länger und diese Anleitung gefallen mir sehr gut. Meine Freundin und ich arbeiten beide jeweils an einen Pullover, und wir freuen uns das Drops Design diese freien Anleitungen anbietet, es hilft uns sehr bei unseren Arbeiten. Also ein danke schön für diese Möglichkeit begrüßen recht herzlich Gerhard und Andrea
12.10.2024 - 06:18
Perfect Sky#perfectskysweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Alpaca eða DROPS Nord. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 254-41 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan. Á UNDAN LASKALÍNU: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALÍNU: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfalt að röngu og saumaður niður. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-92-96-100-104-108 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorum lit í DROPS Alpaca eða DROPS Nord (= 2 þræðir) – öll peysan er prjónuð með 1 þræði í hvorum lit. Skiptið yfir á hringprjón 4 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 10-10-10-12-12-12 cm. Síðar er kantur í hálsmáli brotinn inn að röngu og við frágang þá verður kantur í hálsmáli ca 5-5-5-6-6-6 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 33-33-35-35-37-37 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju og þessar lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur. Setjið 1. merki í fyrstu lykkju, teljið 20-18-20-18-20-18 lykkjur (= ermi), Setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 22-26-26-30-30-34 lykkjur (= framstykki), Setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 20-18-20-18-20-18 lykkjur (= ermi), Setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru eftir 22-26-26-30-30-34 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Prjónið 1 umferð þannig: * Prjónið 22-20-22-20-22-20 lykkjur slétt, prjónið næstu 22-26-26-30-30-34 lykkjur slétt jafnframt því sem aukið er út um 6-4-6-6-6-6 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 28-30-32-36-36-40 lykkjur) *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 100-100-108-112-116-120 lykkjur. Nú er prjónað sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við hverja laskalykkju (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur – munið eftir að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er að ofan. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-6-5-10-7-9 sinnum (= 4-12-10-20-14-18 prjónaðar umferðir) = 116-148-148-192-172-192 lykkjur. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er aukið út fyrir laskalínu á unda / á eftir hverri laskalykkju þannig að einungis er aukið út á framstykki og bakstykki (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur – munið eftir að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er að ofan. UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við hverja laskalykkju (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur – munið eftir að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er að ofan. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 10-9-10-8-11-11 sinnum (= 40-36-40-32-44-44 prjónaðar umferðir). Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út alls 22-24-25-26-29-31 sinnum á framstykki og bakstykki og 12-15-15-18-18-20 sinnum á ermum = 236-256-268-288-304-324 lykkjur í umferð. Prjónið síðan án þess að auka út þar til stykkið mælist 20-22-23-24-26-28 cm frá merki eftir kant í hálsmáli. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 46-50-52-56-58-60 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-14-16-18-20 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 72-78-82-88-94-102 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 46-50-52-56-58-60 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-14-16-18-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 72-78-82-88-94-102 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig og byrjun umferðar er í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og erma. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 164-176-192-208-224-244 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 47-49-51-52-54-56 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 20-20-20-24-28-28 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 184-196-212-232-252-272 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-5-6-6-6 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 52-54-56-58-60-62 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 58-60-62-64-66-68 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 46-50-52-56-58-60 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-10-14-16-18-20 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 56-60-66-72-76-80 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 10-10-14-16-18-20 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn í umferð – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, er lykkjum fækkað mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 5½-4½-3½-3-2½-2 cm alls 8-9-11-13-14-15 sinnum = 40-42-44-46-48-50 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 45-44-43-42-40-38 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 4-6-4-6-4-6 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 44-48-48-52-52-56 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-5-6-6-6 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 50-49-48-48-46-44 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #perfectskysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 254-41
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.