Marie skrifaði:
Hallo, ich stricke gerade den Dream echoes und bin soweit zufrieden. Allerdings ist mir aufgefallen, dass beim A2 bei der kleinsten Größe das Muster an den Ärmeln nicht aufgeht. 53 Maschen durch 6Maschen des Musters sind 8,33 -> das Muster geht 8x und wird ein 9.x nur angefangen. Ebenso 10 Maschen (bei 4. A2) und 45 Maschen. Habt ihr eine Lösung/Idee für mich? Vielen Dank und viele Grüße, Marie
12.07.2025 - 21:15DROPS Design svaraði:
Liebe Marie, M.2 wird nicht in der Runde passen, die markierte Masche in A.2 muss aber die markierte Masche an der oberen Ärmelmitte stimmen, so wird A.2 zentriert - hier lesen Sie mehr. Viel Spaß beim Stricken!
23.07.2025 - 15:41
Dream Echoes#dreamechoessweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Lima og DROPS Kid-Silk eða DROPS Daisy og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, mynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 255-27 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d.12) = 7. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 7. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 84-88-92-96-100-104 lykkjur á hringprjón 5,5 með DROPS Lima í litnum hveiti og DROPS Kid-Silk í litnum marsipan eða DROPS Daisy í litnum marsipan og DROPS Kid-Silk í litnum marsipan. Skiptið yfir á hringprjón 4 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) þar til kantur í hálsmáli mælist 11 cm. Síðar er kantur í hálsmáli brotinn tvöfaldur og við frágang þá verður kantur í hálsmáli ca 5 cm. Setjið 1 merki eftir fyrstu 28-29-31-32-33-35 lykkjur í umferð (= ca mitt að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 12-12-14-14-16-16 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 96-100-106-110-116-120 lykkjur. Prjónið síðan í sléttprjóni. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar berustykkið mælist 3-3-4-4-5-5 cm frá merki, aukið út um 20-20-26-26-28-32 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 116-120-132-136-144-152 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til berustykkið mælist 5-6-7-8-10-11 cm frá merki. Nú er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, þ.e.a.s. prjónið A.1 berustykkið hringinn jafnframt því sem aukið er út um 32-36-40-40-44-48 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 148-156-172-176-188-200 lykkjur (það er pláss fyrir 37-39-43-44-47-50 mynstureiningar með A.1 á eftir þessari útaukningu). Haldið áfram með mynstur – JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 á að auka út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Ör-1: Aukið út 32-32-36-40-44-48 lykkjur jafnt yfir = 180-188-208-216-232-248 lykkjur. Ör-2: Aukið út 30-34-38-42-44-52 lykkjur jafnt yfir = 210-222-246-258-276-300 lykkjur. Ör-3: Aukið út 22-26-26-30-36-32 lykkjur jafnt yfir = 232-248-272-288-312-332 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 22-23-24-25-27-28 cm. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 44-46-52-56-58-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9-9-9-14-13-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið A.2 yfir næstu 72-78-84-88-98-104 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 44-46-52-56-58-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9-9-9-14-13-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið A.2 yfir síðustu 72-78-84-88-98-104 lykkjur (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig og byrjun á umferð er í skiptingunni á milli fram- og bakstykki og ermi. Klippið þráðinn. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 162-174-186-204-222-240 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykkinu (= mitt í 9-9-9-14-13-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Byrjið umferð við merkið og prjónið hringinn, haldið áfram í annarri umferð í A.2. Jafnframt eru lykkjur auknar út jafnt yfir í umferð með ör þannig: Ör-4: Aukið út 8-6-4-6-8-10 lykkjur jafnt yfir = 170-180-190-210-230-250 lykkjur. Ör-5: Aukið út 2-4-6-6-6-6 lykkjur jafnt yfir = 172-184-196-216-236-256 lykkjur. Ör-6: Aukið út 4-8-4-8-4-8 lykkjur jafnt yfir = 176-192-200-224-240-264 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið sléttprjón með DROPS Lima í litnum hveiti og DROPS Kid-Silk í litnum marsipan eða DROPS Daisy í litnum marsipan og DROPS Kid-Silk í litnum marsipan. Haldið áfram þar til stykkið mælist 51-51-53-53-55-57 cm frá merki mitt að framan. Skiptið yfir á hringprjón 4, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 20-16-20-24-24-24 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 196-208-220-248-264-288 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af. Peysan mælist 57-57-59-60-62-64 cm frá merki mitt að framan og ca 62-62-64-66-68-70 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 44-46-52-56-58-62 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 9-9-9-14-13-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 53-55-61-70-71-78 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 9-9-9-14-13-16 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn, merkiþráðurinn er settur á milli 2 lykkja. Setjið 1 merkiþráð í miðjulykkju mitt ofan á ermi. Prjónið A.2, en teljið út frá miðju – lykkja með ör í A.2 á að passa við lykkju með merkiþræði mitt ofan á ermi - JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3-3-3-2-2-2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkað er um 2 lykkjur í hverjum 8-8-5½-3½-3½-2½ cm alls 4-4-6-9-9-11 sinnum = 45-47-49-52-53-56 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið síðan með DROPS Lima í litnum hveiti og DROPS Kid-Silk í litnum marsipan eða DROPS Daisy í litnum marsipan og DROPS Kid-Silk í litnum marsipan. Prjónið þar til ermin mælist 39-38-38-37-36-35 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 7-5-7-8-7-8 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 52-52-56-60-60-64 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af. Ermin mælist ca 45-44-44-44-43-42 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dreamechoessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 255-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.