GISELE AUBUT skrifaði:
Bonjour, Ma question porte aussi sur A.1 et A.2 Si je comprends bien, A.1 est seulement utilisé dans le col en alternance avec A.2 puis A.2 est utilisé pour les raglans par la suite? Merci.
28.03.2025 - 04:49DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Aubut, pas exactement, vous tricotez A.1 sur le col, puis, quand les 4 rangs de A.1 sont terminés, vous tricotez A.2 au lieu de A.1 - le diagramme A.1 n'es tricoté qu'une seule fois, au tout début du col. Mais ensuite, oui, vous répétez A.2 tout du long. Bon tricot!
28.03.2025 - 08:19
Engel skrifaði:
Bij maat xl lijkt het aantal steken op de voorpanden voor de boord niet te kloppen. Tussen voorbies en A2 staan, na de meerderingen, 59 steken op de naald. Met een boordsteek van 2 re;2 av hou je 3 steken over niet 2.
16.03.2025 - 19:51
Laura Slotboom skrifaði:
Het patroon klopt niet in maat L. Na de pas heb je 214 steken op de pen dan 14 x meerderen voor de mouw = 14 x4 = 56 en 28 x voor voorpanden en rug 28 × 4 = 112 dus totaal 214 + 56 + 112 = 382 en geen 326. Of doe ik iets fout?
08.03.2025 - 16:23
Leena Wahlberg skrifaði:
Hej, Halskant: i mönstret står att 6+8+2 räta maskor i början medan varvet slutas med 8+2 räta+6maskor. Ska det inte vara 2 räta +8+6 maskor i slutet på första varvet? Annars kanterna inte lika eller tänker jag fel?
04.02.2025 - 19:53DROPS Design svaraði:
Hej Leena. Halskanten börjar med 6 framkantsmaskor med i-cord, sedan 2 rm, 2 am, 2 rm, 2 am, 2 rm, A.1 och varvet slutar med A.1, 2 rm, 2 am, 2 rm, 2 am, 2 rm och till sist 6 framkantsmaskor med i-cord, så kanterna kommer bli lika. Mvh DROPS Design
05.02.2025 - 14:11
Edith skrifaði:
Bonjour, Après le deuxième rang (endroit) du col, comment faut il tricoter le troisième rang ? Tout à l'envers ? Mais alors les côtes 2 - 2 ne se forment pas. Faut il tricoter les mailles comme elles se présentent ? Faut il déjà commencer avec A2 ??? Merci de préciser.
11.11.2024 - 15:57DROPS Design svaraði:
Bonjour Edith, sur l'envers, tricotez les mailles comme elles se présentent: les mailles point mousse au point mousse (avec la bordure I-cord), les mailles envers à l'envers, les mailles endroit à l'endroit et lisez les rangs envers de gauche à droite (soit 2 m end, 2 m env, 1 m end, 2 m env, 2 m end) pour A.1 (A.2 se tricote ensuite pareil plus tard = les torsades ne se font que sur l'endroit). Bon tricot!
11.11.2024 - 16:18
Annette Holmstrøm skrifaði:
Der er uoverensstemmelser i beskrivelsen fra start - str L slå 134 m op del op… 6 m til i-ccord (her mangler beskrivelse at 2 ret m) , der efter 8 m, 2 r, 20 m, 2 r, 20 m, 2r, 20m, 2r, 20m, 2 r, 8m, 2 r, 6 m i-cord … Det giver 100 m … så er der langt op til 134 masker der skal slås op….. Hvad er løsningen….
02.10.2024 - 22:48DROPS Design svaraði:
Hei Annette. Nei, mangler ikke 2 rett m i begynnelsen. Ser ut som du har glemt å telle maskene i A.1 (=9 masker x 4 = 36 masker). Det strikkes slik: 6 stolpemasker + 8 m + 2 m + A.1 (9 m) + 20 m + 2 m + A.1 (9 m) + 20 m + 2 m + A.1 (9 m) + 20 m + 2 m + A.1 (9 m) + 8 m + 2 m + 6 stolpemasker = 134 masker. mvh DROPS Design
15.10.2024 - 10:20
Helle skrifaði:
Skovtræ
10.08.2024 - 13:07
Under the Oak Cardigan#undertheoakcardigan |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Daisy eða DROPS Fiesta. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, köðlum og i-cord. Stærð S - XXXL.
DROPS 255-22 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan. Á UNDAN A.2: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR A.2: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 4 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8-8½-7½-8-8-8½ cm á milli hverra hnappagata. Neðsta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við og fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 130-130-134-146-146-150 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Daisy eða DROPS Fiesta. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan þannig – frá réttu: 6 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 8-8-8-12-12-12 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.1 (= vinstra framstykki), * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 20 lykkjur, 2 lykkjur slétt (= ermi), A.1, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 16-16-20-24-24-28 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.1 (= bakstykki), * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 20 lykkjur, 2 lykkjur slétt (= ermi), A.1, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 8-8-8-12-12-12 lykkjur, 2 lykkjur slétt, 6 kantlykkjur að framan með i-cord (= hægra framstykki). Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið síðan með A.2 yfir lykkjur í A.1. Haldið áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist 7 cm. Setjið eitt merki innan við kant að framan í aðra hliðina á stykkinu, stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Haldið áfram með mynstur A.2 og kantlykkjur að framan eins og áður og prjónið sléttprjón yfir lykkjur á ermi, framstykkjum og bakstykki – jafnframt í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA og fellt er af fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan. AUKIÐ út þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan og á eftir hverju A.2 (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið mynstur eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni (munið eftir að snúa uppslættinum eins og útskýrt er að ofan). Prjónið umferð 1 og 2 alls 7-6-10-15-11-10 sinnum (= 14-12-20-30-22-20 prjónaðar umferðir) = 186-178-214-266-234-230 lykkjur í umferð. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Haldið áfram í sléttprjóni, kant að framan og A.2 eins og áður og aukið síðan út fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan og á eftir hverju A.2 (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið mynstur eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. UMFERÐ 3 (= rétta): Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan 1. mynstureiningu af A.2, á eftir 2. mynstureiningu af A.2, á undan 3. mynstureiningu af A.2 og á eftir 4. mynstureiningu af A.2, þ.e.a.s. einungis er aukið út á framstykkjum og bakstykki, ekki er aukið út yfir ermar (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið mynstur eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið umferð 1 til 4 alls 13-16-14-13-17-20 sinnum (= 52-64-56-52-68-80 prjónaðar umferðir, 13-16-14-13-17-20 útaukningar á ermum og 26-32-28-26-34-40 útaukningar á framstykki/bakstykki) = 342-370-326-422-438-470 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út 33-38-38-41-45-50 sinnum á framstykkjum/bakstykki og 20-22-24-28-28-30 sinnum á ermum. Prjónið síðan í sléttprjóni, A.2 og kant að framan eins og áður, án þess að auka út, þar til stykkið mælist ca 24-28-30-30-32-36 cm frá merki mitt að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 58-63-63-70-74-79 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 62-66-70-78-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-10-10-14-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 102-112-116-126-134-148 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 62-66-70-78-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-10-10-14-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 58-63-63-70-74-79 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 230-250-262-286-310-334 lykkjur. Prjónið sléttprjón, A.2 og kant að framan eins og áður þar til stykkið mælist 43-45-47-49-51-53 cm frá merki mitt að framan. Prjónið 1 umferð frá röngu þar sem lykkjur eru auknar út jafnt yfir þannig: Aukið út 6-5-7-4-6-9 lykkjur í hvoru framstykki (á milli kantlykkja að framan og A.2) og aukið út 10-12-12-14-14-16 lykkjur á bakstykki (aukið út á milli A.2) = 252-272-288-308-336-368 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff þannig – fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu: 6 kantlykkjur að framan eins og áður, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.2, 2 lykkjur slétt, A.1 yfir lykkjur í A.2, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 4-4-8-8-12-12 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.1 yfir lykkjur í A.2, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.2, 2 lykkjur slétt, A.1 yfir lykkjur í A.2, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 4-4-8-8-12-12 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.1 yfir lykkjur í A.2, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkjum að framan, 2 lykkjur slétt, 6 kantlykkjur að framan eins og áður. Prjónið svona í 6 cm. Peysan mælist 49-51-53-55-57-59 cm frá merki mitt að framan og ca 54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 62-66-70-78-78-82 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-10-10-14-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-72-80-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-6-10-10-14-14 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn í umferð – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, er lykkjum fækkað mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 6½-5-3½-2½-2-1½ cm alls 5-6-8-11-12-13 sinnum = 58-60-64-66-68-70 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 37-34-33-32-31-28 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 6-8-4-6-4-6 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 64-68-68-72-72-76 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6 cm er fellt af. Ermin mælist ca 43-40-39-38-37-34 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #undertheoakcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 255-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.