DROPS Children 49 · Fullt af nýrri hönnun fyrir börn!
Product image DROPS Alpaca yarn
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 1078.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
Velja stærð:
DROPS 252-9

#softsoulcardigan

DROPS Design: Mynstur z-1034
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-350-350-400-450-500 gr litur 9020, ljós perlugrár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: Lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

TÖLUR:
DROPS TALA NR 629: 6-6-6-6-7-7 stykki.

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni með prjóna nr 3,5 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 1078.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD:
Í BYRJUN UMFERÐAR:
Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni.
Í LOK UMFERÐAR:
Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.
Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-5-6-6 næstu hnappagötum með ca 8½-9-9-9-8-8½ cm á milli hverra hnappagata. Neðsta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan.
Á UNDAN MERKIÞRÆÐI:
Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.
Á EFTIR MERKIÞRÆÐI:
Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

I-CORD AFFELLING:
Fitjið upp 2 lykkjur á hægri prjón. Lyftir þessum 2 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sitji 2 lykkjur inn á vinstri prjóni (þegar prjónað er þá herðir þráðurinn á stykkinu, þannig að það myndast lítil snúru kantur).
UMFERÐ 1 (rétta):
Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið næstu 2 lykkjur snúnar slétt saman.
UMFERÐ 2 (= rétta):
Lyftið til baka 2 lykkjum að hægri prjóni yfir á vinstri prjón, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið næstu 2 lykkjur snúnar slétt smaan.
EFTIR UMFERÐ 2:
Endurtakið UMFERÐ 2 þar til eftir eru 2 lykkjur á hægri prjóni. Lyftið til baka 2 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið af.
Saumið litið spor sem bindur byrjun og lok á i-cord að hvoru öðru.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf.
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður.
Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við og fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 135-141-147-153-159-165 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Alpaca.
Prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: 8 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið) þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og 8 kantlykkjur að framan með I-cord.
Haldið svona áfram með stroff í 4-4-4-5-5-5 cm. Setjið eitt merki að innanverðu í kantlykkjur að framan í annarri hlið á stykki, stykkið er nú mælt frá þessu merki.

BERUSTYKKI:
Prjónið síðan með hringprjón 3,5. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í stykkið frá réttu og eru sett í lykkjur og þessar lykkjur kallast nú fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni.
Teljið 27-29-29-31-31-33 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1 merki á undan næstu lykkju,
teljið 19-19-21-21-23-23 lykkjur (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju,
teljið 39-41-43-45-47-49 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju,
teljið 19-19-21-21-23-23 lykkjur (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju,
það eru 27-29-29-31-31-33 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merki (= hægra framstykki).
Fellt er af fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan.
Prjónið sléttprjón með kant að framan eins og áður, fram og til baka og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 laskalykkjur – lesið útskýringu að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 20-22-22-27-22-19 sinnum = 295-317-323-369-335-317 lykkjur (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð).
Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu.
Síðan heldur útaukningin áfram þannig:
Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð á framstykki og bakstykki, en á ermum er nú einungis aukið út í 4. hverri umferð (= til skiptist 4 og 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð), aukið svona út 8-10-12-10-20-28 sinnum á framstykki og bakstykki (4-5-6-5-10-14 sinnum á ermum).
Á eftir síðustu útaukningu eru 343-377-395-429-455-485 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 18-20-21-23-26-29 cm frá merki eftir kanti í hálsmáli.
Prjónið síðan án þess að auka út þar til stykkið mælist 20-22-23-24-26-29 cm frá merki mitt að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 55-61-63-68-73-80 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 69-75-79-87-89-91 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-14-16-20-22 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 95-105-111-119-131-143 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 69-75-79-87-89-91 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-14-16-20-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 55-61-63-68-73-80 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 225-247-265-287-317-347 lykkjur. Prjónið sléttprjón með kant að framan eins og áður þar til stykkið mælist 42-44-45-46-48-50 cm frá merki mitt að framan. Í næstu umferð byrjar stroff JAFNFRAMT er aukið út um 74-78-84-88-104-112 lykkjur jafnt yfir í umferð = 299-325-349-375-421-459 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningu) þar til eftir eru 9 lykkjur, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður.
Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm og síðasta umferð sem var prjónuð er frá röngu, fellið af aðeins laust með I-CORD AFFELLING – lesið útskýringu að ofan. Peysan mælist 46-48-49-51-53-55 cm frá merki mitt að framan og ca 50-52-54-56-58-60 cm frá toppi á öxl.

ERMAR:
Setjið 69-75-79-87-89-91 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 3,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-10-14-16-20-22 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 79-85-93-103-109-113 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð mitt í 10-10-14-16-20-22 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn.
Prjónið sléttprjón hringinn í umferð – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, er lykkjum fækkað mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð alls 2-2-3-5-5-6 sinnum = 75-81-87-93-99-101 lykkjur. Síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 5-4-3-2½-2-1½ cm alls 5-7-9-10-12-12 sinnum = 65-67-69-73-75-77 lykkjur.
Prjónið þar til ermin mælist 40-39-38-37-35-33 cm frá skiptingunni.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 21-23-23-25-25-27 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 86-90-92-98-100-104 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm fellið af með I-CORD AFFELLING – lesið útskýringu að ofan.
Ermin mælist ca 44-43-42-42-40-38 cm frá skiptingunni.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

Diagram measurements for DROPS 252-9

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #softsoulcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 252-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Leila skrifaði:

Silmukkajako väärin, kudon koko M, silmukoita yhteensä 141. Kun jaan silmukat etu/2x29s hihat/2x19s ja takakappaleelle/1x41 = 137s. Laskuvirhe ilmeisesti joka koossa. Ratkaisi niin että lisään yhden silmukan etukappaleille ja takakpl. Ystävällisinterveisin

06.03.2025 - 07:48

country flag Margaretha Astin Lind skrifaði:

Jag stickar Soft Soul Cardigan xxl och har ökat för raglan 22 gånger i min storlek till 335 maskor. Sen står: Öka till raglan vartannat varv och här hänger jag med men...på ärmarna ökas det var 4:e varv. Det finns ju bara två framstycken och två till bakstycken, alltså fyra raglanökningar. Förklara tack! Står det fel i mönstret?

26.02.2025 - 21:43

DROPS Design svaraði:

Hej Margaretha, du ökar på varje sida om raglan-markören = 8 ggr pr öknings-varv. När du bara skall öka på fram och bakstycke, så blir det 4 ökningar (inte de 2 på varje ärm). :)

06.03.2025 - 10:59

country flag Marina skrifaði:

Bonjour, pour la 2eme serie d'augmentations, je ne comprends pas quels raglans je dois augmenter ou pas. En parlant de dos et de devants, cela veut dire qu'il faut tricoter seulement 1 seule maille du raglan ? En commençant par le demi devant droit, ça ferait : Marqueur 1 : 1 aug avant / pas après Marqueur 2 : pas d'aug avant / 1 aug après Marqueur 3 : 1 aug avant / pas après Marqueur 4 : pas avant / 1 aug après Merci d'avance pour votre aide

19.02.2025 - 19:53

DROPS Design svaraði:

Bonjour Marina, vous devez augmenter avant le 1er marqueur (devant gauche), après le 2ème marqueur (début du dos) + avant le 3ème marqueur (fin du dos) et enfin après le 4ème marqueur (début du devant droit) - vous augmentez ainsi 4 mailles. Bon tricot!

20.02.2025 - 11:33

country flag Margaretha Astin Lind skrifaði:

Kan frågor och svar i översättas till olika språk? Eftersom andra med andra språk antagligen frågar samma frågor om och om igen. Det är omöjligt att förstå vad de undrar när de skriver på spanska, tyska m.fl Det borde bli enklare för er som svarar om någon frågar samma sak på tyska och på spanska, för att inte säga svenska. Ett så litet språk. Svar önskas snarast. Tack !!

21.01.2025 - 21:45

country flag Margaretha Astin Lind skrifaði:

Jag stickar denna modell i atorlek XXL, men upptäcker att antal maskor när jag ska sticka oket inte stämmer. Jag lade upp 159 maskor och skulle sätta 4 markörer för raglan med 31, 23, 47, 23, 31 maskors mellanrum. Det blir då 155 maskor. Alltså stämmer inte mönstret eftersom det fattas 4 maskor. Jag upplever mönstret rörigt och svårt att hänga med i. Kollar ni inte att mönstret stämmer innan ni publicerar det? Förklaring önskas. Tack!!

18.01.2025 - 22:10

country flag Katharina skrifaði:

Wird die Blende in kraus rechts nicht kürzer als der glatt rechts gestrickte Teil der Jacke? Von anderen Mustern kenne ich es, dass in solchen Fällen in der Blende zusätzliche Reihen gestrickt werden. Ist hier etwas ähnliches zu beachten? Vielen Dank!

05.01.2025 - 19:56

DROPS Design svaraði:

Liebe Katharina, sollte die Blende etwas zu kurz sein, dann können Sie gerne einige verkürzten Reihen beideitig stricken. Passen Sie ja in der Höhe wie Sie es möchten. Viel Spaß beim Stricken!

06.01.2025 - 10:51

country flag Yvonne De Groot skrifaði:

In het verdelen van de voor/ achter panden en mouwen voor het raglan gedeelte staat een fout. B.v als je 153 steken opzet kan na de verdeling van 31 rechter voorpand 21 mouw 45 rug 21 mouw en 31 links voor nooit het aantal van 153 opgezette steken zijn. Ik heb gezien dat de mouwen niet op 21 steken moeten maar op 23 steken dan kom je wel op de 153 steken waarmee je gestart bent.

23.10.2024 - 14:00

country flag Anna skrifaði:

Rättelse av min fråga: jag menar efter de 27 första raglanökningarna.

17.10.2024 - 21:20

country flag Anna skrifaði:

Ska man efter de första 21 raglanökningarna i storlek xl räkna med de 16 maskorna för knappslån? Jag har 353 maskor efter 21 ökningar men ska enligt mönster ha 369.

17.10.2024 - 19:16

DROPS Design svaraði:

Hej Anna. Ja du ska räkna med de 16 framkantsmaskorna. Mvh DROPS Design

18.10.2024 - 14:20

country flag Nathalie skrifaði:

Hallo, ich würde die Jacke gerne mit einem anderen, weniger "kratzigen" Garn, z.B. dem Baby Merino stricken. Würde das klappen? Danke!

15.10.2024 - 12:54

DROPS Design svaraði:

Liebe Nathalie, sicher, benutzen Sie den Garnumrechner um die verschiedene Garnalternative (einschl. Baby Merino) sowie die neue passende Garnmenbe zu finden. Viel Spaß beim Stricken!

15.10.2024 - 16:50