Wendy skrifaði:
Please explain how the bands are sewn together and then to the neckline. I don’t understand how each band is 16cms, then how can that fit the back neck which is only 44 sts wide ?
05.12.2024 - 13:48DROPS Design svaraði:
Dear Wendy, here is a video on how to assemble the neck bands: https://www.garnstudio.com/video.php?id=1800&lang=en. Happy knitting!
08.12.2024 - 12:49
Marieka skrifaði:
Welches Garn könnte ich mit Fabel kombinieren, wenn ich keine langfaserige Wolle wie silk nehmen möchte? Also lieber glattes Garn. Was könnte man mit Fabel kombinieren für dieses Modell?
02.10.2024 - 21:55DROPS Design svaraði:
Liebe Marieka, benutzen Sie den Garnumrechner um alle Alternative zu Kid-Silk (1 Faden = Garngruppe A oder 2 Fäden = 1 Faden Garngruppe C) sowie die passende neue Garnmenge zu finden. Gerne kann Ihnen auch Ihr DROPS Händler die besten passenden Garne/Farben (auch per Telefon oder per E-Mail) empfehlen. Viel Spaß beim Stricken!
03.10.2024 - 09:43
Tine skrifaði:
Mangler selve opskriften ikke? :)
06.09.2024 - 12:03DROPS Design svaraði:
Hej Tine, så er opskriften lagt ud - tak for info :)
06.09.2024 - 12:20
B Boop skrifaði:
Best friend
11.08.2024 - 15:52
Lost in Mist Cardigan#lostinmistcardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Fabel og 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og v-hálsmáli með kanti að framan. Stærð S - XXXL.
DROPS 252-37 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan. Á UNDAN MERKIÞRÆÐI: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR MERKIÞRÆÐI: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. V-HÁLSMÁL: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju innan við 1 lykkju slétt og 6 kantlykkjur að framan þannig: VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið 1 lykkju slétt og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (= ranga) er uppslátturinn prjónaður þannig: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Í næstu umferð (= ranga) er þessi uppsláttur prjónaður þannig: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka á vinstri prjón í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið i fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 6 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu ca 1 cm á eftir síðustu útaukningu fyrir v-hálsmáli, fellið síðan af fyrir 3-3-3-3-3-3 næstu hnappagötum með ca 8-8½-8½-8-8-8 cm á milli hverra hnappagata, þannig að neðsta hnappagatið sé staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Fyrst eru prjónaðir tveir kantar að framan, síðan eru lykkjur fitjaðar upp fyrir berustykki á milli kanta að farman. Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við og fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantar að framan eru saumaðir saman, saumur = mitt að aftan, síðan eru kantar að framan saumaðir meðfram berustykki aftan í hnakka. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Fitjið upp 6 lykkjur á sokkaprjón 6 með 1 þræði DROPS Fabel í litnum silfurrefur, 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum natur og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum marsipan (= 3 þræðir). RÉTTA: Prjónið 1 lykkju í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, 3 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt. RANGA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt, 3 lykkjur brugðið, 1 lykkja í garðaprjóni. Prjóni svona fram og til baka þar til kantur að framan mælist 15-15-16-17-18-18 cm. Síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Klippið þráðinn. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Fitjið upp 6 lykkjur á sokkaprjón 6 með 1 þræði DROPS Fabel í litnum silfurrefur, 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum natur og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum marsipan (= 3 þræðir). RÉTTA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt, 3 lykkjur brugðið, 1 lykkja í garðaprjóni. RANGA: Prjónið 1 lykkju í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, 3 lykkjur brugðið, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt. Prjóni svona fram og til baka þar til kantur að framan mælist 15-15-16-17-18-18 cm. Síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Ekki klippa þráðinn, prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Nú eru fitjaðar upp lykkjur fyrir berustykki á milli kanta að framan þannig: Notið hringprjón 6, haldið áfram að prjóna vinstri kant að framan frá réttu eins og áður, fitjið upp 44-44-46-48-50-52 nýjar lykkjur í umferð, endið með að prjóna yfir hægri kant að framan frá réttu = 56-56-58-60-62-64 lykkjur. Nú eru settir 4 merkiþræðir í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkiþræðirnir eru settir á milli 2 lykkja slétt og þessar lykkjur kallast nú fyrir laskalykkjur. Teljið 8 lykkjur (= framstykki), setjið 1. merkiþráðinn á undan næstu lykkju, teljið 10 lykkjur (= ermi), setjið 2. merkiþráðinn á undan næstu lykkju, teljið 20-20-22-24-26-28 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merkiþráðinn á undan næstu lykkju, teljið 10 lykkjur (= ermi), setjið 4. merkiþráðinn á undan næstu lykkju, það eru eftir 8 lykkjur á eftir síðasta merkiþræði (= framstykki). Setjið eitt merki í stykkið mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir berustykki (= mitt að aftan), síðan er stykkið mælt héðan. Prjónið sléttprjón með kant að farman í hvorri hlið eins og áður fram og til baka og aukið jafnframt út bæði fyrir laskalínu og v-hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. LASKALÍNA: Aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, hvoru megin við 2 laskalykkjur við merkiþræðina – lesið útskýring að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 18-20-21-22-23-25 sinnum = 144-160-168-176-184-200 lykkjur fleiri. V-HÁLSMÁL: Aukið út fyrir V-HÁLSMÁL – lesið útskýringu að ofan, í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. annarri hverri umferð frá réttu) alls 8-8-9-10-11-12 sinnum í hvorri hlið = 16-16-18-20-22-24 lykkjur fleiri. Þegar útaukning fyrir v-hálsmáli er lokið, aukið út fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan. Þegar öll útaukning bæði fyrir laskalínu og v-hálsmáli er lokið, eru 216-232-244-256-268-288 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni og kant að framan eins og áður án þess að auka út þar til stykkið mælist 22-24-25-26-28-30 cm frá merki mitt að aftan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 36-39-41-43-46-49 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 42-44-46-48-48-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 60-66-70-74-80-86 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 42-44-46-48-48-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 36-39-41-43-46-49 lykkjur í eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 152-164-176-188-204-220 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm frá merki mitt að aftan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT er aukið út um 21-21-21-25-29-29 lykkjur jafnt yfir í umferð (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 173-185-197-213-233-249 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningu) þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 6 cm fellið aðeins laust af. Peysan mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá merki mitt að aftan og ca 54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 42-44-46-48-48-52 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 6 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-14-16-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-54-58-62-64-70 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 10-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn í umferð – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, er lykkjum fækkað mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 5-4½-4-3½-3-2½ cm alls 8-8-9-10-11-13 sinnum = 36-38-40-42-42-44 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 39-38-37-36-34-33 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 6-6-6-6-6-6 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 42-44-46-48-48-50 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6 cm er fellt af aðeins laust. Ermin mælist ca 45-44-43-42-40-39 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. Kantur að framan frá hvoru framstykki er saumað saman – saumur = mitt að aftan, saumið síðan kant að framan við berustykki aftan í hnakka. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lostinmistcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 252-37
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.