Tze Moi Ang skrifaði:
From the picture it looks like the sweater has a lower front neckline than back neckline. I noticed that there are no short rows involved in the description. How is the neckline shaped? Is the front and back piece of the same height?
13.09.2024 - 09:50DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Ang, in this pattern neckline will be the same on back and front pieces. If you want to get an elevation on back piece, you can add some short rows, this video might then help. Happy knitting!
13.09.2024 - 16:26
Josephine skrifaði:
Relaxing
08.08.2024 - 17:11
Alexandra Marshall skrifaði:
Windswept
08.08.2024 - 17:03
Quiet Bay#quietbaysweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca eða DROPS Nord. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 254-33 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan. Á UNDAN MERKIÞRÆÐI: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR MERKIÞRÆÐI: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn saman tvöfaldur að röngu og saumaður niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 128-128-144-144-144-160 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Alpaca eða DROPS Nord. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur) og prjónið stroff hringinn þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, * prjónið 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju slétt. Prjónið þar til stykkið mælist 8-8-8-9-9-9 cm. Síðar á að brjóta kant í hálsmáli inn að röngu og við frágang þá verður kantur í hálsmáli ca 4 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki í stykki eftir fyrstu 46-46-50-50-50-54 lykkjur í umferð (= ca mitt að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru settir 4 merkiþræðir í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkiþræðirnir eru settir á milli 2 lykkja slétt frá stroffi, þessar lykkjur kallast nú fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni. Setjið 1. merkiþráðinn við byrjun á umferð, teljið 28 lykkjur (= ermi), setjið 2. merkiþráðinn á undan næstu lykkju, teljið 36-36-44-44-44-52 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merkiþráðinn á undan næstu lykkju, teljið 28 lykkjur (= ermi), setjið 4. merkiþráðinn á undan næstu lykkju, það eru eftir 36-36-44-44-44-52 lykkjur á eftir síðasta merkiþræði (= bakstykki). Í næstu umferð er aukið út um 16-16-18-18-18-20 lykkjur jafnframt sem síðan er prjónað stroff, næsta umferð er prjónuð þannig: * Prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* út umferðina = 144-144-162-162-162-180 lykkjur. Aukið er út í annarri hverri brugðinn einingu, þ.e.a.s. aukið er út um 4 lykkjur á hvorri ermi og 4-4-5-5-5-6 lykkjur á framstykkki/bakstykki. Haldið áfram hringinn með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur – uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat – þar til stykkið mælist 2 cm frá merki. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið sléttprjón hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA á undan/á eftir 2 laskalykkjum við hverjum merkiþræði í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma – lesið útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 12-16-21-19-18-17 sinnum = 240-272-330-314-306-316 lykkjur. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Haldið áfram í sléttprjóni og útaukningu fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á fram- og bakstykki. Þ.e.a.s. aukið er út á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið er út til skiptis 4 og 8 lykkjur. Aukið svona út 16-16-12-16-20-24 sinnum á fram- og bakstykki (8-8-6-8-10-12 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 28-32-33-35-38-41 sinnum á fram- og bakstykki og 20-24-27-27-28-29 sinnum á ermum = 336-368-402-410-426-460 lykkjur. Prjónið síðan án þess að auka út þar til stykkið mælist 20-22-23-24-26-28 cm frá merki (þ.e.a.s. eftir ca 18-20-21-22-24-26 cm með sléttprjóni). Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og baksykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 1 lykkju slétt (= tilheyrir bakstykki), setjið næstu 70-78-84-84-86-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 16-18-18-22-26-30 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 98-106-117-121-127-142 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 70-78-84-84-86-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 16-18-18-22-26-30 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 97-105-116-120-126-141 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 228-248-270-286-306-344 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykkinu (= mitt í þær 16-18-18-22-26-30 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 44-46-48-49-51-53 cm frá merki mitt að framan. Skiptið yfir á hringprjón 2,5, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 68-72-74-82-90-100 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 296-320-344-368-396-444 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-5-6-6-6 cm fellið aðeins laust af. Peysan mælist 49-51-53-55-57-59 cm frá merki mitt að framan og ca 55-57-59-61-63-65 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 70-78-84-84-86-88 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 3,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 16-18-18-22-26-30 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 86-96-102-106-112-118 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 16-18-18-22-26-30 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn í umferð – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, er lykkjum fækkað mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 4-2½-2-2-1½-1½ cm alls 9-13-15-16-18-20 sinnum = 68-70-72-74-76-78 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 41-40-38-37-36-34 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 20-18-20-22-20-22 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 88-88-92-96-96-100 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-5-6-6-6 cm fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 46-45-43-43-42-40 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að merki að innanverðu í kanti í hálsmáli (þ.e.a.s. 2 cm yfir þar sem sléttprjón byrjar). Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #quietbaysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 254-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.