Karen skrifaði:
Hej, jeg skal til at starte på mønsteret, men jeg er i tvivl om hvordan jeg starter. I opskriften siger den, at jeg skal bruge farven gul i starten af mønsteret, men mønsteret starter med en “blank/hvede” runde i retstrik. Passer dette? Mange tak på forhånd og god dag :)
15.10.2024 - 14:20DROPS Design svaraði:
Hei Karen. Du legger opp med gult og strikker 4-5 cm, disse 4-5 cm blir på innsiden av halskanten (jakken har dobbelt halskant) og viser kun litt fra retten (en pinne rett fra vrangen = brettekanten). Nå byttes det til hvete og det strikkes med hvete fargen helt til MØNSTER A.1 starter (1. pinne av A.1 strikkes med hvete). mvh DROPS Design
22.10.2024 - 08:10
Sun Wreath Cardigan#sunwreathcardigan |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, norrænu mynstri, tvöföldum kanti í hálsmáli og i-cord. Stærð S - XXXL.
DROPS 255-14 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN: Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 101 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 14 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 18) = 4,8. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 11-11½-10-10-10-10½ cm milli hnappagata. Neðsta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við og fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við. Kantur í hálsmáli er brotinn saman tvöfaldur að röngu og saumaður niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 89-93-97-101-105-109 lykkjur á hringprjón 5 með litnum gulur DROPS Air. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað sléttprjón með 1 lykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – lesið útskýringu að ofan. Prjónið þar til kantur í hálsmáli mælist 3-3-3-4-4-4 cm og næsta umferð er prjónuð frá röngu. Í lok hvorrar af næstu 2 umferðum eru fitjaðar upp 6 lykkjur fyrir kant að framan = 101-105-109-113-117-121 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu (= uppábrot), en ystu 7 lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar eins og KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Kantur í hálsmáli mælist nú ca 4-4-4-5-5-5 cm (= ca hæð á kanti í hálsmáli þegar hann er með tvöföldu uppábroti). Skiptið yfir í litinn hveiti og prjónið sléttprjón með 7 lykkjur í kanti að framan með i-cord í hvorri hlið þar til kantur í hálsmáli mælist 8-8-8-10-10-10 cm frá uppfitjunarkanti – endið með umferð frá röngu. Setjið eitt merki í innanverðan kant að framan í annarri hliðinni á stykki, stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið fyrstu umferð frá réttu með byrjun frá miðju að framan þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið 87-91-95-99-103-107 lykkjur sléttprjón jafnframt sem aukið er út um 18-20-24-28-30-32 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, prjónið kant að framan eins og áður – munið eftir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan = 119-125-133-141-147-153 lykkjur í umferð. Prjónið síðan í sléttprjóni og kant að framan. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar berustykkið mælist 3-3-4-4-4-4 cm frá merki, aukið út um 32-36-42-42-50-52 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = 151-161-175-183-197-205 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og kant að framan þar til stykkið mælist 6-7-8-8-9-9 cm frá merki. Í næstu umferð frá réttu er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, en kantlykkjur að framan eru síðan prjónaðar í litnum hveiti í hverri umferð (þar sem liturinn hveiti er ekki notaður í mynstri, tvinnið þráðinn á milli kantlykkja að framan og lykkja í mynstri til að koma í veg fyrir göt – og til að koma í veg fyrir að þurfa að þræða þráðinn yfir allar lykkjur í umferð, er hægt að nota stakar litlar dokkur í hvorri hlið fyrir kantlykkjur að framan), þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður í litnum hveiti, prjónið A.1 yfir næstu 132-142-156-164-178-186 lykkjur JAFNFRAMT er aukið út um 38-38-44-46-52-54 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið A.2, prjónið kant að framan eins og áður í litnum hveiti = 189-199-219-229-249-259 lykkjur (nú er pláss fyrir 17-18-20-21-23-24 mynstureiningar með A.1 eftir þessa útaukningu). Haldið svona áfram með mynstur – JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 er lykkjum aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan): Ör-1: Aukið út 38-40-44-46-50-58 lykkjur jafnt yfir = 227-239-263-275-299-315 lykkjur. Ör-2: Aukið út 32-36-40-44-48-56 lykkjur jafnt yfir = 259-275-303-319-347-371 lykkjur. Ör-3: Aukið út 12-12-12-12-12-16 lykkjur jafnt yfir = 271-287-315-331-359-387 lykkjur. Prjónið þar til berustykkið mælist 21-23-24-24-26-28 cm frá merki mitt að framan (allar útaukningar verða að vera lokið og að minnsta kosti 5 umferðir skulu prjónaðar eftir síðustu útaukningsumferð). Mynstrið er ekki lokið, mynstrið er nú prjónað áfram á fram- og bakstykki og ermum. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 47-50-54-56-61-66 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 48-50-56-60-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-12-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 81-87-95-99-109-119 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 48-50-56-60-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-12-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 47-50-54-56-61-66 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 191-203-219-235-255-275 lykkjur. Haldið áfram með mynstur frá berustykki með kant að framan eins og áður – mynsturbekkur sem heldur áfram frá berustykki kemur e.t.v. ekki til með að ganga jafnt upp í hlið undir ermum, en prjónið mynstrið eins langt og hægt er inn að hvorri hlið undir ermi Næsti mynsturbekkur kemur til með að ganga jafnt upp. Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið síðan sléttprjón og kant að framan með litnum hveiti þar til stykkið mælist 45-47-49-49-51-53 cm frá merki mitt að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 33-37-37-41-45-49 lykkjur jafnt yfir í umferð (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = 224-240-256-276-300-324 lykkjur, prjónað er þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið – munið eftir útaukning) þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af. Peysan mælist 51-53-55-56-58-60 cm frá merki mitt að framan og ca 56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 48-50-56-60-64-68 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-12-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 56-58-64-72-76-80 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-8-8-12-12-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Haldið áfram með mynstur frá berustykki – mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir ermi, en prjónið mynstrið eins langt og hægt er að miðju undir ermi – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3-3-3-2-2-2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkað er um 2 lykkjur í hverjum 3-3-2-1½-1-1 cm alls 4-4-6-10-11-12 sinnum = 48-50-52-52-54-56 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-38-38-38-36-35 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 8-10-8-12-10-12 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 56-60-60-64-64-68 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af. Ermin mælist ca 46-44-44-45-43-42 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan í kanti að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sunwreathcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 38 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 255-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.