Gabriele Sollerer skrifaði:
Kann ich irgendwo die Passeaufteilung und Ärmelzunahme detaillierter ansehen oder nachlesen?
08.01.2025 - 10:56DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Sollerer, beachten Sie, daß Sie die Größe markieren können, das kann Ihnen helfen, Ihre Größe besser zu folgen. Die Markierung sollen je in einer Masche (und nicht zwischen Maschen) eingesetzt werden, dann wird man zuerst 8 Maschen (Vorder- und Rückenteil + beide Ärmel) zunehmen dann wird man nur für Vorder- und Rückenteil= nur 4 Maschen zunehmen. Viel Spaß beim Stricken!
08.01.2025 - 16:05
Nicole skrifaði:
Combien d’aisance positive est recommandée pour ce modèle? Peut il être réalisé avec un seul fil grosseur worsted?
26.11.2024 - 15:00DROPS Design svaraði:
Bonjour Nicole, mesurez un pull similaire que vous avez et dont vous aimez la forme, puis comparez ces mesures à celles du schéma en bas de page - cf cette leçon. Ce pull se tricote avec 2 laines différentes: une laine du groupe de fils B type DK et 1 laine du groupe A, type "Lace", vous pouvez utiliser ici une laine du type groupe C, type aran/worsted à condition d'avoir la bonne tension en largeur et en hauteur (adaptez la taille des aiguilles si besoin) - retrouvez plus d'infos sur les groupes de laine ici. Bon tricot!
26.11.2024 - 16:47
Rosa skrifaði:
Bardzo się cieszę, że jest dostępny wzór XS! :)
24.10.2024 - 10:20DROPS Design svaraði:
Witaj Roso, bardzo nam zależy, aby rozmiarówka była jak najszersza. Pozdrawiamy serdecznie!
24.10.2024 - 10:57
Sandra skrifaði:
Hallo liebes Drops Team Warum wird der doppelte Kragen nicht zusammengestrickt, sondern genäht? Ist das wichtig? Vielen Dank und liebe Grüße
09.10.2024 - 08:12DROPS Design svaraði:
Liebe Sandra, wahrscheinlich eine Wahl der Designerin; gerne können Sie den Kragen auch zusammenstricken. Viel Spaß beim Stricken!
09.10.2024 - 08:47
Menten Marleen skrifaði:
De nieuwe patronen zijn heel mooi maar ikzelf begin nu niet graag deze te breien omdat de modellen meestal van boven naar beneden gebreid worden …dit is in België niet de manier aangeleerd om te breien …wij breien van onder naar boven . Deze manier van boven naar beneden zien velen niet zitten .
07.09.2024 - 17:25DROPS Design svaraði:
Dag Marleen,
Het is inderdaad even wennen, maar je ziet het steeds meer dat patronen van boven naar beneden worden gemaakt en het heeft ook voordelen. Zie ook deze les op onze site.
09.09.2024 - 20:16
Tina skrifaði:
Hvilken størrelse er det modellen har på seg? Har et stort ønske om at dere opplyser om modellens størrelse på alle oppskrifter dere har.
03.09.2024 - 17:44DROPS Design svaraði:
Hei Tina, Du finner en målskisse på bunnen av oppskriften med all mål for de forskjellige størrelsene. God fornøyelse!
04.09.2024 - 06:26
Inga skrifaði:
Ich vermisse in der Anleitung das Diagramm für den Pullover mit den eingezeichneten Maßen. Kommt es noch nach?
01.09.2024 - 18:18DROPS Design svaraði:
Liebe Inga, Maßskizze ist jetzt online. Viel Spaß beim Stricken!
02.09.2024 - 09:11
Dominique skrifaði:
Pourquoi n'y-a-t-il pas de schéma avec les mesures pour les modèles ? merci
31.08.2024 - 15:19DROPS Design svaraði:
Bonjour Dominique, simple oubli, le schéma sera disponible très bientôt, merci pour votre retour. Bon tricot!
02.09.2024 - 07:55
Ela skrifaði:
Jakie są wymiary swetra w poszczególnych rozmiarach?
31.08.2024 - 14:08DROPS Design svaraði:
Witaj Elu, dokładne wymiary swetra w poszczególnych rozmiarach znajdziesz na schematycznym rysunku miar na dole wzoru. Zobacz również kurs DROPS Jak odczytywać miary w schemacie. Pozdrawiamy!
02.09.2024 - 08:37
Pascale skrifaði:
Je ne trouve pas de schéma avec les différentes mesures sur ce modèle. Est-ce volontaire de votre part ?
30.08.2024 - 09:36
Rose Moon#rosemoonsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Daisy og DROPS Kid-Silk eða DROPS Merino Extra Fine og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð XS - XXL.
DROPS 255-11 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN MERKI: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR MERKI: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 90-96-102-102-108-114 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði DROPS Daisy og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir), eða 1 þræði DROPS Merino Extra Fine og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Skiptið yfir á hringprjón 4 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt / 2 lykkjur brugðið) í 9 cm. Síðar er kantur í hálsmáli brotinn inn að röngu og við frágang verður kantur í hálsmáli ca 4 cm. Byrjun á umferð er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 30-32-33-33-35-36 lykkjur í umferð (= ca mitt að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju og þessar lykkjur kallast nú fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni. Setjið 1. merki í fyrstu lykkju, teljið 14 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 29-32-35-35-38-41 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 14 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru 29-32-35-35-38-41 lykkjur eftir síðasta merki (= bakstykki). Prjónið sléttprjón hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 merkin – lesið útskýringu að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 16-19-20-22-22-22 sinnum = 218-248-262-278-284-290 lykkjur (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Útaukning fyrir ermar er nú lokið, en haldið áfram að auka út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki í annarri hverri umferð 3-1-1-1-2-4 sinnum til viðbótar = 230-252-266-282-292-306 lykkjur í umferð (= 4 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Prjónið síðan án þess að auka út þar til stykkið mælist 20-21-23-24-25-27 cm frá merki eftir kanti í hálsmáli. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 1 lykkju (= tilheyrir bakstykki), setjið næstu 46-52-54-58-58-58 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-12-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 69-74-79-83-88-95 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 46-52-54-58-58-58 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-12-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 68-73-78-82-87-94 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 154-164-178-190-208-226 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= mitt í 8-8-10-12-16-18 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 41-44-46-47-49-51 cm frá merki mitt að framan. Skiptið yfir á hringprjón 4, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 17-19-23-23-26-29 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 171-183-201-213-234-255 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm fellið af aðeins laust. Peysan mælist 45-48-50-52-54-56 cm frá merki mitt að framan og ca 49-52-54-56-58-60 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 46-52-54-58-58-58 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-12-16-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-60-64-70-74-76 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-8-10-12-16-18 nýjar lykkjur undir ermi – byrjun á umferð er við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn á prjóni – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 9-5-4-2½-2-2 cm alls 4-7-8-11-12-12 sinnum = 46-46-48-48-50-52 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 35-34-32-31-30-28 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 8-8-9-9-10-11 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 54-54-57-57-60-63 lykkjur. Þegar stroffið mælist 8-8-8-9-9-9 cm fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 43-42-40-40-39-37 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rosemoonsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 255-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.