Frozen Waves Cardigan#frozenwavescardigan |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Daisy. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með hringlaga berustykki, tvöföldum kanti í hálsmáli og i-cord. Stærð S - XXXL.
DROPS 254-22 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 6 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 6 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 125 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d. 16 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 17) = 6,4. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 6. og 7. hverja lykkju (ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8½-9 9-8-8-8½ cm á milli hverra hnappagata. Nesta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 111-115-121-125-131-137 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Daisy. Skiptið yfir á hringprjón 3 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið 1 lykkju í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist 5-5-5-6-6-6 cm (= ca hæð á kanti í hálsmáli þegar hann er brotinn saman tvöfalt). Í lok hvorra af næstu 2 umferðum eru fitjaðar upp 7 lykkjur fyrir kant að framan = 125-129-135-139-145-151 lykkjur í umferð. Haldið áfram með stroff eins og áður, en ystu 8 lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar eins og KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Prjónið síðan þar til kantur í hálsmáli mælist 11-11-11-13-13-13 cm – endið með eina umferð frá röngu. Setjið eitt merki að innanverðu í kant að framan í annarri hliðinni á stykki, stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið fyrstu umferð frá réttu með byrjun frá miðju að framan þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið 109-113-119-123-129-135 lykkjur sléttprjón jafnframt því sem aukið er út 17-25-27-23-25-31 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, prjónið kant að framan eins og áður – munið eftir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan = 142-154-162-162-170-182 lykkjur í umferð. Síðan er prjónað sléttprjón og kantur að framan. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar berustykkið mælist 2-3-3-3½-3½-3½ cm frá merki, eru lykkjur auknar út með því að prjóna MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig: A.1: Prjónið kant að framan eins og áður, 3 lykkjur sléttprjón, prjónið fyrstu umferð í A.1 alls 30-33-35-35-37-40 sinnum meðfram berustykki, prjónið 3 lykkjur sléttprjón og kant að framan eins og áður = 172-187-197-232-244-262 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kant að framan í 3-3-3-3-3½-3½ cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: A.2: Prjónið kant að framan eins og áður, 3 lykkjur sléttprjón, prjónið fyrstu umferð í A.2 alls 30-33-35-35-37-40 sinnum meðfram berustykki, prjónið 3 lykkjur sléttprjón og kant að framan eins og áður = 202-220-232-267-281-302 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kant að framan í 3-3-3-3-3½-3½ cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: A.3: Prjónið kant að framan eins og áður, 3 lykkjur sléttprjón, prjónið fyrstu umferð í A.3 alls 30-33-35-35-37-40 sinnum meðfram berustykki, prjónið 3 lykkju sléttprjón og kant að framan eins og áður = 232-253-267-302-318-342 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kant að framan í 3-3-3-3-3½-3½ cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: A.4: Prjónið kant að framan eins og áður, 3 lykkjur sléttprjón, prjónið fyrstu umferð í A.4 alls 30-33-35-35-37-40 sinnum meðfram berustykki, prjónið 3 lykkju sléttprjón og kant að framan eins og áður = 262-286-302-337-355-382 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kant að framan í 3-3-3-3-3½-3½ cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: A.5: Prjónið kant að framan eins og áður, 3 lykkjur sléttprjón, prjónið fyrstu umferð í A.5 alls 30-33-35-35-37-40 sinnum meðfram berustykki, prjónið 3 lykkju sléttprjón og kant að framan eins og áður = 292-319-337-372-392-422 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kant að framan í 3-3-3-3-3½-3½ cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: A.6: Prjónið kant að framan eins og áður, 3 lykkjur sléttprjón, prjónið fyrstu umferð í A.6 alls 30-33-35-35-37-40 sinnum meðfram berustykki, prjónið 3 lykkju sléttprjón og kant að framan eins og áður = 322-352-372-407-429-462 lykkjur. Berustykkið mælist ca 19-20-20-20-23-23 cm frá merki mitt að framan. Prjónið síðan sléttprjón og kant að framan þar til stykkið mælist 21-23-23-24-26-28 cm frá merki mitt að framan – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 6-4-8-9-11-14 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kant að framan) = 328-356-380-416-440-476 lykkjur. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 56-61-64-69-74-81 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 60-64-70-78-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 96-106-112-122-132-146 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 60-64-70-78-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 56-61-64-69-74-81 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 224-244-260-280-304-332 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður þar til stykkið mælist 45-47-48-49-51-53 cm frá merki mitt að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT er aukið út um 45-45-49-55-61-63 lykkjur jafnt yfir í umferð (ekki er aukið út yfir kant að framan) = 269-289-309-335-365-395 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukning) þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm er fellt af með ítalskri affellingu eða fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 51-53-54-56-58-60 cm frá merki mitt að framan og ca 56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 60-64-70-78-80-84 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-72-80-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn í umferð – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3-3-3-3-2-2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 6-5-3½-2½-2½-2 cm alls 6-7-10-12-13-14 sinnum = 56-58-60-64-66-68 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 39-37-38-37-36-34 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 12 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 68-70-72-78-80-82 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af með ítalskri affellingu eða fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 45-43-45-44-42-41 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #frozenwavescardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 38 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 254-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.