Birgitta skrifaði:
Varför kan man bara skriva ut första sidan och de två sista?
04.09.2024 - 13:15DROPS Design svaraði:
Hej Birgitta. Det ser ut att fungera att skriva ut alla sidor här hos mig när jag väljer "Skriv ut" och så "Mönster". Kan det vara någon inställning på din skrivare? Mvh DROPS Design
05.09.2024 - 11:02
Franziska skrifaði:
Footprints on Snow
10.08.2024 - 19:39
Bea skrifaði:
Joli nuage
09.08.2024 - 14:31
Frozen Waves#frozenwavessweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Daisy. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með hringlaga berustykki og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 254-21 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 110 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 14) = 7,9. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 110-114-120-124-128-134 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Daisy. Skiptið yfir á hringprjón 3 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 11-11-11-13-13-13 cm. Síðar á að brjóta kant í hálsmáli inn að röngu og við frágang verður kantur í hálsmáli ca 5-5-5-6-6-6 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 38-39-42-44-45-46 lykkjur í umferð (= ca mitt að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 14-22-24-20-24-30 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 124-136-144-144-152-164 lykkjur. Prjónið síðan í sléttprjóni. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar berustykkið mælist 2-3-3-3½-3½-3½ cm frá merki, aukið út lykkjur með því að prjóna MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig: A.1: Prjónið fyrstu umferð í A.1 alls 31-34-36-36-38-41 sinnum hringinn á berustykki = 155-170-180-216-228-246 lykkjur. Prjónið sléttprjón í 3-3-3-3-3½-3½ cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: A.2: Prjónið fyrstu umferð í A.2 alls 31-34-36-36-38-41 sinnum hringinn á berustykki = 186-204-216-252-266-287 lykkjur. Prjónið sléttprjón í 3-3-3-3-3½-3½ cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: A.3: Prjónið fyrstu umferð í A.3 alls 31-34-36-36-38-41 sinnum hringinn á berustykki = 217-238-252-288-304-328 lykkjur. Prjónið sléttprjón í 3-3-3-3-3½-3½ cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: A.4: Prjónið fyrstu umferð í A.4 alls 31-34-36-36-38-41 sinnum hringinn á berustykki = 248-272-288-324-342-369 lykkjur. Prjónið sléttprjón í 3-3-3-3-3½-3½ cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: A.5: Prjónið fyrstu umferð í A.5 alls 31-34-36-36-38-41 sinnum hringinn á berustykki = 279-306-324-360-380-410 lykkjur. Prjónið sléttprjón í 3-3-3-3-3½-3½ cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: A.6: Prjónið fyrstu umferð í A.6 alls 31-34-36-36-38-41 sinnum hringinn á berustykki = 310-340-360-396-418-451 lykkjur. Berustykkið mælist ca 19-20-20-21-23-23 cm frá merki mitt að framan. Prjónið síðan sléttprjón jafnframt sem aukið er út um 2-0-4-4-6-9 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 312-340-364-400-424-460 lykkjur. Þegar stykkið mælist 21-23-23-24-26-28 cm frá merki mitt að framan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 60-64-70-78-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 96-106-112-122-132-146 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 60-64-70-78-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 96-106-112-122-132-146 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 208-228-244-264-288-316 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 45-47-48-49-51-53 cm frá merki mitt að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 46-46-50-54-62-64 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 254-274-294-318-350-380 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af með ítalskri affellingu eða fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 51-53-54-56-58-60 cm frá merki mitt að framan og ca 56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 60-64-70-78-80-84 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-72-80-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn í umferð – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3-3-3-3-2-2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 6-5-3½-2½-2½-2 cm alls 6-7-10-12-13-14 sinnum = 56-58-60-64-66-68 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 39-37-38-37-36-34 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 12-12-12-14-14-14 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 68-70-72-78-80-82 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af með ítalskri affellingu eða fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 45-43-44-44-43-41 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #frozenwavessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 254-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.