Nicole Lejeune skrifaði:
Pour le dos on augmente jusqu’à obtenir 52 mailles. On tricote ensuite 4 rangs sans augmentation. On déplace les marqueurs et on continue ensuite pendant 3 cm. Ensuite on applique A1. Si je comprends il y a 4 rangs + 3 cm ?? Merci pour la réponse Nicole
10.11.2024 - 19:15DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Lejeune, on place les marqueurs 4 rangs après la dernière augmentation = on relèvera ensuite les mailles des devants le long de ces rangs; placez vos marqueurs: les emmanchures commencent ici, vous tricotez 3 cm puis vous commencez à tricoter A.1. Les 4 rangs sont avant le marqueur et les 3 cm après le marqueur. Bon tricot!
11.11.2024 - 09:45
Tessie Stokholm skrifaði:
Kan det være rigtig at ærmegabet skal være 7cm længere på forstykket end på ryggen? Og hvorfor tager man 28m ud inden rib kant forneden på kroppen?
07.10.2024 - 06:37DROPS Design svaraði:
Hej Tessie, når du strikker europæisk skulder, så kommer selve skulderkanten et stykke ned på ryggen. Se gerne de videoer vi har lavet, så du forstår hvordan du skal finde midten på skulderen :)
16.10.2024 - 12:07
Kristin Syversen skrifaði:
Jeg strikker Little Lily Sweater 5-6 år i Drops Air mix. Holder på med bakstykket. Jeg har økt til 56 masker og strikket 4 pinner over alle maskene. Har flyttet markørene helt ut i siden og strikket glattstrikk 4cm fra markørene. Da står det at jeg skal begynne på mønster A1. Går ut i fra at jeg skal begynne nederst. Det betyr 4 pinner glattstrikk før mønsterstrikk. Stemmer dette, eller skal jeg begynne direkte på mønsteret? Synes ikke dette kommer klart fram.
14.09.2024 - 16:45DROPS Design svaraði:
Hei Kristin, Du begynner nederst på diagrammet og fra høyre til venstre fra retten og venstre til høyre fra vrangen. Og, ja, mønsteret begynner med 4 pinner glattstrikk. God fornøyelse!
16.09.2024 - 07:01
Little Lily Sweater#littlelilysweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, áferðamynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð 2 – 12 ára.
DROPS Children 48-8 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU: Aukið út til vinstri á EFTIR MERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. Aukið út til hægri á UNDAN MERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU: Aukið út til vinstri á EFTIR MERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. Aukið út til hægri á UNDAN MERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Efsti hlutinn á bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður þar til handvegurinn hefur verið prjónaður til loka. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hvorri öxl, aukið er út fyrir hálsmáli að framan og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður þar til handvegur hefur verið prjónaður til loka. Framstykkið og bakstykkið er sett saman. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar meðfram hvorum handveg. Ermar eru fyrst prjónaðar fram og til baka, síðan er prjónað í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Í lokin er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli í hring. BAKSTYKKI: Fitjið upp 20-20-24-26-26-26 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Setjið 1 merki á undan ystu 3 lykkjum í hvorri hlið. Merkin eiga að sitja á undan við ystu 3 lykkjur í hverri umferð. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka. Jafnframt er aukið út á EFTIR merki í byrjun umferðar (séð frá réttu) og á undan merki í lok umferðar – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Í næstu umferð (ranga) er aukið út á sama hátt – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU. Haldið svona áfram og aukið út bæði frá réttu og frá röngu alls 14-16-16-16-18-20 sinnum. Á eftir síðustu útaukningu eru 48-52-56-58-62-66 lykkjur í umferð. Prjónið 4 umferðir yfir allar lykkjur. Færið merkin þannig að þau sitji yst í hvorri hlið á stykki, stykkið er síðan mælt héðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 3-3-4-5-5-6 cm, prjónið áfram með mynstri þannig: 4-4-4-3-3-3 lykkjur sléttprjón, A.1 þar til eftir eru 4-4-4-3-3-3 lykkjur, 4-4-4-3-3-3 lykkjur sléttprjón. Prjónið síðan mynstur fram og til baka þar til stykkið mælist 5-5-6-7-8-8 cm, mælt frá merki yst meðfram handveg. Nú er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið, aukið út innan við 3 lykkjur í hvorri hlið, munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 4 sinnum = 56-60-64-66-70-74 lykkjur, útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í A.1. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 9-9-10-11-12-12 cm, mælt yst meðfram handveg. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið framstykkið eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: Byrjið með vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð). Prjónið upp 14-16-16-16-18-20 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. lykkjur eru prjónaðar upp jafnt yfir frá hálsmáli og að merki í hlið, sjá D í teikningu með máli). Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 4 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í byrjun hverrar umferðar frá réttu, aukið er út á eftir 3 síðustu lykkjum – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út 1 lykkju alls 4 sinnum = 18-20-20-20-22-24 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. Prjónið síðan hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. Prjónið upp 14-16-16-16-18-20 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram hægri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónið upp lykkjur jafnt yfir frá merki í hlið og inn að hálsmáli, sjá E í teikningu með máli). Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 4 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í lok hverrar umferðar frá réttu, aukið er út á undan 3 síðustu lykkjum – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út um 1 lykkju alls 4 sinnum = 18-20-20-20-22-24 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu er prjónað til baka frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið sléttprjón yfir 18-20-20-20-22-24 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 12-12-16-18-18-18 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið síðan sléttprjón eins og áður yfir 18-20-20-20-22-24 lykkjur frá vinstra framstykki = 48-52-56-58-62-66 lykkjur. Þegar stykkið mælist 9-11-12-13-14-15 cm, prjónið síðan með mynstri þannig: 4-4-4-3-3-3 lykkjur sléttprjón, A.1 þar til eftir eru 4-4-4-3-3-3 lykkjur, 4-4-4-3-3-3 lykkjur sléttprjón. Prjónið mynstur fram og til baka þar til stykkið mælist 11-13-14-15-16-18 cm, mælt yst meðfram handvegi. Nú er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið, aukið út innan við 3 lykkjur í hvorri hlið, munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING frá réttu. Aukið út í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 4 sinnum = 56-60-64-66-70-74 lykkjur, útauknar lykkjur er prjónaðar inn í A.1. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 15-17-18-19-20-22 cm, endið í sömu umferð í mynstri og á bakstykki. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið mynstur eins og áður yfir 56-60-64-66-70-74 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 6-8-8-8-8-8 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (í hlið), prjónið mynstur eins og áður yfir 56-60-64-66-70-74 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 6-8-8-8-8-8 nýjar lykkjur í lok umferðar = 124-136-144-148-156-164 lykkjur. Prjónið A.1 hringinn þar til stykkið mælist 30-34-38-42-46-49 cm, mælt frá efsta punkti á framstykki. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-24-24-28-28-28 lykkjur jafnt yfir = 144-160-168-176-184-192 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 36-40-44-48-52-55 cm frá efsta punkti á öxl á framstykki. VINSTRI ERMI: Notið hringprjón 5 og prjónið upp frá réttu 26-28-28-32-34-34 lykkjur frá botni á handveg upp að öxl (meðfram framstykki) og 16-16-18-18-20-22 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram bakstykki) = 42-44-46-50-54-56 lykkjur meðfram handvegi. ATH! Lykkjur eru ekki prjónaðar upp yfir 6-8-8-8-8-8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi, til að flíkin passi betur er ermin fyrst prjónuð fram og til baka og síðan saumuð við lykkjur undir ermi í lokin. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til ermin mælist 2 cm. Nú er stykkið sett saman á stuttan hringprjón eða á sokkaprjóna 5 – afgangur af ermi er prjónað í hring. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar (mitt undir ermi). Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 4 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverjum 3-4-5-5-4½-5 cm alls 5-5-5-6-7-7 sinnum = 32-34-36-38-40-42 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 23-27-31-35-39-43 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Þar til eftir eru ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-6-8-6-8-6 lykkjur jafnt yfir = 40-40-44-44-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 29-33-37-41-45-49 cm. HÆGRI ERMI: Prjónið á sama hátt og vinstri ermi, en prjónið upp lykkjur í gagnstæðri hlið, þ.e.a.s. prjónið upp 16-16-18-18-20-22 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram bakstykki) og 26-28-28-32-34-34 lykkjur frá öxl og niður að botni á handveg í hinni hliðinni (meðfram framstykki). Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra axlalínuna og prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju ca 68 til 80 lykkjur í kringum hálsmál á stuttan hringprjón 3,5. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 12 cm. Fellið af aðeins laust. Brjótið niður stroffið að innanverðu á stykki og festið með nokkrum sporum. FRÁGANGUR: Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #littlelilysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 48-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.