Ana skrifaði:
Hello. At the beginning it talks of about needles size 3.5 and 4.5 ,but below it uses the size 4 and 5. Which are the correct ones? Thank you.
29.04.2024 - 17:45DROPS Design svaraði:
Dear Ana, we suggest that you should always do a gauge swatch, compare the stitch- and row counts to that given in the pattern, and decide just which needle to use according to that. Happy Crafting!
30.04.2024 - 07:54
Lili skrifaði:
Hallo, in der Anleitung steht, dass es die Stricknadeln in Größe 3,5 und 4,5 benötigt werden. Wenn man aber die Beschreibung der Arbeit ansieht, werden die Maschen mit der Stricknadel 4 angefangen und dann mit der 5 fortgesetzt. Was stimmt jetzt? Danke Grüße aus Bayer
21.04.2024 - 10:31DROPS Design svaraði:
Liebe Lili, danke für den Hinweis, hier braucht man Nadeln Nr 5 und 4, eine Korrektur erfolgt. Viel Spaß beim Stricken!
14.06.2024 - 13:08
Karin skrifaði:
Corn flower
21.01.2024 - 18:32
Rybka skrifaði:
Sky blue top
21.01.2024 - 14:33
Mariana Thulin skrifaði:
Sea breeze
19.01.2024 - 19:52
Linnea skrifaði:
Paris top
19.01.2024 - 14:52
Kristine De Hon skrifaði:
Blue heaven
19.01.2024 - 07:16
Silvia skrifaði:
Summer skies
18.01.2024 - 21:01
Veronica Ekengren skrifaði:
Blue Dream Top
18.01.2024 - 16:11
Summer Sailor#summersailortop |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með kaðli og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S – XXXL.
DROPS 250-23 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um í hliðum á fram- og bakstykki): Í fyrsta skipti sem aukið er út, prjónið þannig: Prjónið þar til eftir eru 3-3-4-4-5-6 lykkjur á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6-6-8-8-10-12 lykkjur í garðaprjóni (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 6-6-8-8-10-12 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 lykkjur fleiri við merkiþráðinn. Endurtakið við hinn merkiþráðinn = 4 lykkjur fleiri í umferð. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í garðaprjóni – lesið útskýringu að ofan. Í hvert skipti sem síðan er aukið út á hæðina, prjónið 2 lykkjur fleiri á milli uppslátta í hvorri hlið (þ.e.a.s. prjónið 1 lykkju fleiri hvoru megin við merkiþræðina). Með þessu þá verður útaukningin eins lítið sýnileg og mögulegt er í hvorri hlið. ÚRTAKA (á við um handveg): Fækkið lykkjum innan við 4 lykkjur í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 4 LYKKJUM Í GARÐAPRJÓNI ÞANNIG: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 4 LYKKJUM Í GARÐAPRJÓNI ÞANNIG: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 4 kantlykkjum og prjónið þessar 2 lykkjur snúnar slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Stykkið er saumað saman á öxlum. Í lokin eru prjónaðar upp lykkjur í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli í hring. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 122-130-150-162-194-214 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Paris. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 2-2-2-3-3-3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar og 1 merkiþráð eftir 61-65-75-81-97-107 lykkjur (= í hliðum á fram- og bakstykki). Látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu. Þeir eru notaðir þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki. Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: * Prjónið 3-3-4-4-5-6 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, prjónið 23-25-29-32-39-43 lykkjur sléttprjón, A.1, 23-25-29-32-39-43 lykkjur sléttprjón, prjónið 3-3-4-4-5-6 lykkjur í garðaprjóni, (merkiþráðurinn situr hér) *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 7 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í hverjum 5-5-6-6-7-7 cm alls 4 sinnum í hvorri hlið = 138-146-166-178-210-230 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm – stillið af að næsta umferð sé umferð með sléttri tölu í A.1 (þetta er mikilvægt til að koma í veg fyrir að snúa þurfi kaðli frá röngu þegar stykkið skiptist fyrir bakstykki og framstykki). Það eru eftir 4 umferðir á undan skiptingunni fyrir bakstykki og framstykki. Prjónið 4 umferðir þannig: Prjónið GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, yfir miðju 14-14-16-16-18-20 lykkjur í hvorri hlið (= 7-7-8-8-9-10 lykkjur í garðaprjóni hvoru megin við báða merkiþræðina) – aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður. SKIPTING FYRIR HANDVEG: Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og umferðin er prjónuð þannig: Fellið af 3-3-4-4-5-6 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður þar til eftir eru 3-3-4-4-5-6 lykkjur á undan næsta merkiþræði, fellið af 6-6-8-8-10-12 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður þar til eftir eru 3-3-4-4-5-6 lykkjur í umferð og fellið af síðustu 3-3-4-4-5-6 lykkjur fyrir handveg. Klippið þráðinn. Bakstykkið og framstykkið er síðan prjónað hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 63-67-75-81-95-103 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur fram og til baka með 4 lykkjum í GARÐAPRJÓN – í hvorir hlið – lesið útskýringu að ofan. Í hvorri hlið er lykkjum fækkað fyrir handveg, fækkið lykkjum í annarri hverri umferð þannig – lesið ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju 4-5-8-10-14-17 sinnum. Fækkið núna lykkjum fyrir handveg í 4. hverri umferð þannig: 1 lykkja alls 3-3-3-3-2-2 sinnum = 49-51-53-55-63-65 lykkjur. Þegar stykkið mælist 43-45-47-49-51-53 cm fellið af miðju 25-25-27-29-31-31 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið síðan eins og áður og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli = 10-11-11-11-14-15 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, fellið af. FRAMSTYKKI: = 63-67-75-81-95-103 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur fram og til baka með 4 lykkjum í garðaprjóni í hvorir hlið. Í hvorri hlið er lykkjum fækkað fyrir handveg, fækkið lykkjum á sama hátt og á bakstykki = 49-51-53-55-63-65 lykkjur. Jafnframt þegar stykkið mælist 38-39-41-42-44-46 cm, setjið miðju 9-9-11-13-15-15 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið síðan eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá hálsmáli þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 3 sinnum. Eftir alla úrtöku fyrir handveg og hálsmáli eru 10-11-11-11-14-15 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan þar til 1 umferð er eftir áður en stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm. Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, fellið af. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu við aðra öxlina og prjónið upp ca 88 til 108 lykkjur í kringum hálsmál (ásamt lykkjum á þræði að framan) á stuttan hringprjón 4 með DROPS Paris – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 7 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #summersailortop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 250-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.