Neus skrifaði:
Hola, no encuentro en vuestra web a qué medida de cuerpo corresponde cada talla. Me podéis indicat donde está para poder elegir la talla adecuada? Gracias
31.05.2025 - 19:45DROPS Design svaraði:
Hola Neus, las medidas están indicadas en el esquema de medidas en la parte inferior del patrón: todas las medidas están en cm. Las medidas del pecho se corresponden a la mitad de la circunferencia del pecho (40 serían 80cm, por ejemplo, para la talla más pequeña).
31.05.2025 - 20:26
Jan skrifaði:
“Change to circular needle size 4 mm. Knit 1 round and decrease 36-40-40-46-54-60 stitches evenly spaced = 176-192-212-232-260-284 stitches. “ Doing S size and just knitted 1 row. The decrease 36 stitches evenly… to do it in one purl row?
18.04.2025 - 18:40DROPS Design svaraði:
Dear Jan, you decrease those stitches in that first knit round. So you are decreasing as you knit. Remember that you are working in the round, so you work always on the right side. Happy knitting!
20.04.2025 - 23:31
Patricia Dymond skrifaði:
When measuring to start decrease do you include the ribbing in the 3 1/8 inch
09.04.2025 - 17:58DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Dymond, yes measure from the cast-on edge, ie with the ribbing. Happy knitting!
10.04.2025 - 09:25
W Kooiman-Molenaar skrifaði:
Dit is mijn eerste topje/truitje wat ik brei. Ik begreep uit het patroon dat ik 250 meter draad nodig heb voor maat m of S. Ik heb dus drie bolletjes drops Belle gekocht. Heb de boord gebreid en 4 cm van het truitje, nu is er al één bolletje op. Klopt dus niet denk ik. Hoe kan ik lezen in het patroon hoeveel katoen ik nodig heb. Vriendelijke groet Willemien
18.03.2025 - 14:44DROPS Design svaraði:
Dag W Kooiman-Molenaar,
Je hebt 250 gram nodig voor maat S en 300 gram voor maat M. (De reeks getallen staan voor de maten). 1 bol weegt 50 gram, dus je hebt 5 bollen nodig voor maat S en 6 bollen voor maat M.
18.03.2025 - 20:02
Sylvianne Deoca skrifaði:
How can I make this top a little longer?
17.03.2025 - 15:22DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Deoca, as there are some waist shaping on this top you might find inspiration from a similar pattern, same tension, with the requested length. See some singlet patterns with the same tension here. Happy knitting!
18.03.2025 - 09:45
Emma skrifaði:
Hi! I am confused about the neckline section. I'm knitting size S and starting the neckline with 58 stitches. Should I knit 24, place 10 on a marker, then knit 24? When do I decrease? Thanks for helping!
14.07.2024 - 03:04DROPS Design svaraði:
Dear Emma, if you have 58 stitches, then yes, knit 24, put 10 on a stitch-holder, and knit 24. Do this for the front when the piece is 35 cm (for size S). Happy Knitting!
16.07.2024 - 01:08
Maria Picken skrifaði:
My question: can I knit pattern vs-113 Drops 248-11 with straight needles, would it be too difficult for beginners? Thanks
02.05.2024 - 16:09DROPS Design svaraði:
Dear Maria, yes, you can, and HERE is a tutorial that might help you do that. Happy Knitting!
02.05.2024 - 21:19
Deb Knight skrifaði:
Summer Breeze
22.01.2024 - 01:49
AndreaW skrifaði:
"Casual Classic"
19.01.2024 - 09:18
Verna skrifaði:
Beautiful and simple
19.01.2024 - 07:37
Cocoa Beach#cocoabeachtop |
|
![]() |
![]() |
Prjónaður toppur úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni aðsniðin í mitti. Stærð S - XXXL.
DROPS 248-11 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚRTAKA (á við hliðar á fram- og bakstykki): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 4 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 2 lykkjum á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 4 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður þannig: Á UNDAN MERKIÞRÆÐI: Lyftið uppslættinum yfir á vinstri prjón og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann. Það á ekki að myndast gat. Á EFTIR MERKIÞRÆÐI: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann. Það á ekki að myndast gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað í hring, neðan frá og upp að handvegi. Síðan er skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað fram og til baka hvert fyrir sig. Axlasaumar eru saumaðir. Lykkjur prjónaðar upp fyrir kant í kringum handveg. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli í hring. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 212-232-252-278-314-344 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Belle. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 36-40-40-46-54-60 lykkjur jafnt yfir = 176-192-212-232-260-284 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar og 1 merkiþráð eftir 88-96-106-116-130-142 lykkjur (í hliðar á fram- og bakstykki). Það eru jafn margar lykkjur á milli merkiþráða fyrir framstykki og bakstykki. Látið merkiþræðina fylgja með í stykkinu, þeir eru notaðir þegar fækka á lykkjum og auka út í hliðum. Prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm, á að fækka lykkjum í hliðum – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona alls 2-2-2-2-3-3 sinnum í hverjum 4-4-4½-4½-3½-3½ cm = 168-184-204-224-248-272 lykkjur. Þegar stykkið mælist 4-4-4½-4½-3½-3½ cm frá síðustu úrtöku, það á að auka út í hliðum – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út alls 2-2-2-2-3-3 sinnum í hverjum 4-4-4½-4½-3½-3½ cm = 176-192-212-232-260-284 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm. Nú á að fella af fyrir handveg, næsta umferð er prjónuð þannig: Byrjið 4-5-6-7-8-9 lykkjum á undan merkiþræði við byrjun umferðar, fellið af 8-10-12-14-16-18 lykkjur, prjónið 80-86-94-102-114-124 lykkjur (= bakstykki), fellið af 8-10-12-14-16-18 lykkjur, prjónið 80-86-94-102-114-124 lykkjur (= framstykki). Framstykkið og bakstykkið er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 80-86-94-102-114-124 lykkjur. Framstykkið er prjónað fram og til baka í sléttprjóni. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan eru felldar af 2 lykkjur fyrir handveg í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið alls 1-1-1-1-2-3 sinnum = 76-82-90-98-106-112 lykkjur. Fækkið síðan lykkjum fyrir handveg jafnframt því sem fellt er af fyrir hálsmáli – lestu því næsta kafla áður en þú prjónar áfram! HANDVEGUR: Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið innan við 3 lykkjur þannig: Prjónið 3 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið slétt þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 3 lykkjur slétt. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð) alls 7-7-9-11-12-13 sinnum. Síðan er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið í annarri hverri umferð frá réttu (þ.e.a.s. í 4 hverri umferð) alls 2-2-2-2-3-3 sinnum. HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm frá uppfitjunarkanti eru miðju 10-10-12-12-14-14 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og axlir eru síðan prjónaðar hvor fyrir sig. Í byrjun hverrar umferðar frá hálsmáli er fellt af fyrir hálsmáli þannig: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 4-3-3-3-2-2 sinnum og 1 lykkja 4-7-7-5-6-6 sinnum, fækkið síðan um 1 lykkju í annarri hverri umferð frá hálsmáli (þ.e.a.s. í 4. hverri umferð) 0-0-0-2-3-3 sinnum. Þegar öll úrtaka fyrir hálsmáli og handveg hefur verið gerð til loka, eru eftir 9-11-12-14-15-17 lykkjur fyrir öxl. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. BAKSTYKKI: = 80-86-94-102-114-124 lykkjur. Bakstykkið er prjónað fram og til baka í sléttprjóni. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan eru felldar af 2 lykkjur fyrir handveg í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið alls 1-1-1-1-2-3 sinnum = 76-82-90-98-106-112 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið innan við 3 lykkjur þannig: Prjónið 3 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið slétt þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 3 lykkjur slétt. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð) alls 7-7-9-11-12-13 sinnum. Síðan er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið í annarri hverri umferð frá réttu (þ.e.a.s. í 4 hverri umferð) alls 2-2-2-2-3-3 sinnum = 58-64-68-72-76-80 lykkjur. Prjónið fram og til baka þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af miðju 30-32-34-34-36-36 lykkjur fyrir hálsmáli og axlir eru síðan prjónaðar hvor fyrir sig. Í byrjun hverrar umferðar frá hálsmáli er fellt af fyrir hálsmáli þannig: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 1 sinni = 9-11-12-14-15-17 lykkjur fyrir öxl. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. KANTUR Á ERMUM: Prjónið upp ca 106 til 132 lykkjur með hringprjón 3 innan við 1 lykkju meðfram handvegi – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn þar til kantur á ermum mælist 2 cm. Fellið af. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp ca 128 til 156 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði) með hringprjón 3 innan við 1 lykkju meðfram hálsmáli – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn þar til kantur í hálsmáli mælist 2 cm. Fellið af. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cocoabeachtop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 248-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.