Spring Whisper#springwhispersweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í perluprjóni með evrópskri öxl / skáhallandi öxl og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 248-34 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. PERLUPRJÓN (prjónað fram og til baka): UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2. PERLUPRJÓN (prjónað í hring): UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2. ÚTAUKNING: Aukið út til vinstri: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. Aukið út til hægri: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við, jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Bakstykkið er látið bíða á meðan framstykkið er prjónað. Framstykkið er prjónað fyrst í 2 hlutum. Byrjað er að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni, prjónið samtímis sem aukið er út við hálsmál. Endurtakið á hinni öxlinni. Hægri og vinstri öxl er sett saman fyrir framstykki þegar útaukningu fyrir hálsmáli er lokið. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Framstykkið og bakstykkið er sett inn á sama prjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring á hringprjóna, áður en stykkið skiptist fyrir klauf. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveginn. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. Hægt er að brjóta kant í hálsmáli saman tvöfalt að röngu og sauma niður. BAKSTYKKI: Fitjið upp 25-25-25-25-27-27 lykkjur á hringprjón 7 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Lesið ÚTAUKNING og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 lykkjur slétt, aukið út til vinstri, prjónið PERLUPRJÓN (fram og til baka) – lesið útskýringu að ofan, þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur slétt. Frá röngu er perluprjón prjónað með 3 lykkjur brugðið í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram og aukið út eins og útskýrt er að ofan í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 16-18-20-22-24-28 sinnum. Á eftir síðustu útaukningu eru 57-61-65-69-75-83 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið perluprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 12-12-13-12-13-13 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi. Nú er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið, aukið út með því að prjóna 2 lykkjur í fyrstu og síðustu lykkju. Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 2-2-2-3-3-3 sinnum = 61-65-69-75-81-89 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 14-14-15-15-16-16 cm, mælt yst meðfram handvegi, endið eftir umferð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið framstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: Byrjið með vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð): Prjónið upp 16-18-20-22-24-28 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja umferð frá kanti efst á bakstykki, sjá D í teikningu með máli). Öll mál á lengdina eru gerð héðan! Prjónið frá röngu og prjónið perluprjón. ATH! Byrjið perluprjón með 1 lykkju slétt. Þegar stykkið mælist 9 cm, aukið út með því að prjóna 2 lykkjur í fyrstu lykkju, útauknar lykkjur eru prjónaðar í perluprjóni. Aukið svona út alls 4 sinnum = = 20-22-24-26-28-32 lykkjur. Prjónið 1 umferð með mynstri frá röngu, klippið þráðinn og leggið stykkið til hliðar. Prjónið síðan hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. Prjónið upp 16-18-20-22-24-28 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram hægri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja umferð frá kanti efst á bakstykki, sjá E í teikningu með máli). Öll mál á lengdina eru gerð héðan! Prjónið frá röngu og prjónið perluprjón. ATH! Byrjið perluprjón með 1 lykkju slétt. Þegar stykkið mælist 9 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. Aukið út í hverri umferð frá réttu, aukið út með því að prjóna 2 lykkjur í síðustu lykkju, útauknar lykkjur eru prjónaðar í perluprjóni. Aukið alls 4 sinnum = 20-22-24-26-28-32 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu er prjónað til baka frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir 20-22-24-26-28-32 lykkjur frá hægri öxl, fitjið upp 17-17-17-17-19-19 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið síðan mynstur eins og áður yfir 20-22-24-26-28-32 lykkjur frá vinstri öxl = 57-61-65-69-75-83 lykkjur. Prjónið perluprjón yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 22-24-25-26-27-29 cm. Nú er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið, aukið út með því að prjóna 2 lykkjur í fyrstu og síðustu lykkju. Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 2-2-2-3-3-3 sinnum = 61-65-69-75-81-89 lykkjur. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 24-26-27-29-30-32 cm, mælt yst meðfram handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið PERLUPRJÓN (prjónað í hring) – lesið útskýringu að ofan, yfir 61-65-69-75-81-89 lykkjur í umferð, fitjið upp 5-5-7-7-9-9 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (í hlið undir ermi), prjónið perluprjón yfir 61-65-69-75-81-89 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 5-5-7-7-9-9 nýjar lykkjur í lok umferðar (í hlið undir ermi) = 132-140-152-164-180-196 lykkjur. Haldið áfram í perluprjóni hringinn þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki. Nú skiptist framstykkið og bakstykkið, þannig að það myndast klauf í hliðum. Setjið 66-70-76-82-90-98 lykkjur frá bakstykki á þráð eða á hjálparprjón og prjónið síðan einungis yfir lykkjur frá framstykki. FRAMSTYKKI: = 66-70-76-82-90-98 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 12-12-10-12-12-16 lykkjur jafnt yfir = 78-82-86-94-102-114 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið næstu umferð þannig – frá röngu: 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* og endið með 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm, mælt efst á öxl á framstykki. BAKSTYKKI: Setjið til baka lykkjur á hringprjón 7 = 66-70-76-82-90-98 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 12-12-10-12-12-16 lykkjur jafnt yfir = 78-82-86-94-102-114 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið næstu umferð þannig – frá röngu: 2 lykkjur garðaprjón, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* og endið með 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Fellið af. ERMAR: Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg (ATH! Ekki þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur ca 5-8 cm niður á framstykki = mitt ofan á öxl). Notið hringprjón 7, byrjið mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi og prjónið upp 54-58-62-64-68-72 lykkjur í kringum handveg – passið uppá að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur meðfram handvegi hvoru megin við merki. Nú er prjónað perluprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpu, þetta er gert til að ermin passi betur og fái betra form. Byrjið mitt undir ermi. Umferð 1 (rétta): Prjónið 7-7-8-8-9-9 lykkjur fram hjá merki, snúið stykki. Umferð 2 (ranga): Prjónið 7-7-8-8-9-9 lykkjur fram hjá merki, snúið. Umferð 3 (rétta): Prjónið 3 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið. Umferð 4 (ranga): Prjónið 3 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið. Endurtakið 3. og 4. umferð þar til prjónaðar hafa verið 22-22-26-26-27-27 lykkjur fram hjá merki mitt ofan á ermi (nú hefur verið snúið við 6-6-7-7-7-7 sinnum í hvorri hlið). Prjónið frá réttu að byrjun á umferð (mitt undir ermi). Setjið 1 merkiþráð hér, það á að nota merkiþráðinn þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. Prjónið síðan í hring í perluprjóni yfir allar lykkjur. Þegar ermin mælist 7-7-8-8-8-8 cm, mælt frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp (öll mál á lengdina eru gerð mitt ofan á ermi), fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 3-3-3-4-4-4 sinnum, síðan er lykkjum fækkað í hverjum 4½-4-3½-3½-3-2½ cm 6-7-8-7-8-9 sinnum, fækkið alls 9-10-11-11-12-13 sinnum = 36-38-40-42-44-46 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 44-44-43-43-41-39 cm. Það eru ca 8 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-10-12-10-12-10 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 52-52-51-51-49-47 cm. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra axlalínuna og prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju ca 80 til 88 lykkjur í kringum hálsmál á hringprjón 5,5. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) hringinn í 10 cm. FRÁGANGUR: Hægt er að brjóta kant í hálsmáli niður að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #springwhispersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 248-34
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.