Qanitah skrifaði:
I have a question about stitch marker placement at the yoke as # of stitches doesn't add up. I'm doing size #2 which has 135 stitches casted on. At yoke it says to place markers at 23, 27, 31, 27 and there should be 23 stitches left on row but I have 27 instead. I did the total for other sizes and they are all off by 4 stiches as well. Am I reading the pattern incorrectly or is the stitch counter is incorrect in the pattern? I need help please. Thank you.
22.04.2024 - 14:46DROPS Design svaraði:
Dear Qanitah, For teh markers, you count the number of stitches given then put the marker into the NEXT stitch, then count the next amount from the following stitch. I think you might have counted the marker-stitches in the sleeve/body stitches, but the marker stitches are plus (there are 4 marker stitches. If you add up the stitches 23 +1+27+1+31+1+27+1+23 = 135, you get the number you have on the needle (for size M). I hope this helps. Happy Knitting!
22.04.2024 - 14:56
Louise Mauger skrifaði:
Bonjour, je suis canadienne et je vis au Québec, je lis et parle français tout comme près de 9 millions de mes concitoyens . Depuis quelques semaines, je ne peux plus avoir vos patrons en français, ceux-ci s’affichent automatiquement et uniquement en anglais. Je n’ai d’autres choix que de cliquer sur Canada ou Etats-Unis, et tous les patrons ne s’affichent qu’en langue anglaise. Pouvez-vous svp corriger la situation et ajouter le français parmi les choix de langues ? Merci !
28.03.2024 - 22:55DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Mauger, pour choisir les explications en français, cliquez sur le menu déroulant entre l'en-tête avec la liste des fournitures et juste au-dessus de Explications et choisissez "français" dans la liste; effectivement, si vous choisissez "canada", vous aurez les explications en anglais. Bon tricot!
02.04.2024 - 13:59
Karin skrifaði:
Scent of lavender
21.01.2024 - 18:39
Fernanda Kazic skrifaði:
Lavendeläng!
20.01.2024 - 22:11
Mireille skrifaði:
J'aime bien
18.01.2024 - 15:47
Orchid Tea Cardigan#orchidteacardigan |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 250-4 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.3 og A.4). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan frá réttu. UMFERÐ 1: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið kant að framan eins og áður. UMFERÐ 2: Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð á eftir kanti í hálsmáli / þegar kantur að framan mælist 3 cm, síðan er fellt af fyrir hnappagötum þegar kantur að framan mælist: S: 11-19-27-35 cm M: 11-19-27-35 cm L: 12-21-30-39 cm XL: 11-19-27-35-43 cm XXL: 11-19-27-35-43 cm XXXL: 12-21-30-39-48 cm ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn og í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn – svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 2 lykkjur í umferð með því að fækka lykkjum hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Hálsmál og berustykki er prjónað ofan frá og niður, fram og til baka á hringprjóna. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Ermar eru síðan prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 129-135-137-141-147-155 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Muskat. Prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Setjið 1 merki að innanverðu við kantlykkjur að framan í annarri hliðinni, frá þessu merki er berustykkið mælt. BERUSTYKKI: Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í sléttar lykkjur frá stroffi. Teljið 21-23-23-23-25-27 lykkjur, setjið 1. merki í næstu lykkju (= vinstra framstykki), teljið 27-27-27-29-29-29 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 29-31-33-33-35-39 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 27-27-27-29-29-29 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju. Það eru 21-23-23-23-25-27 lykkjur eftir á prjóni á eftir síðasta merki (= hægra framstykki). Nú á að auka út lykkjum fyrir laskalínu í MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið 14-16-16-16-18-20 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 yfir lykkju með 1. merki, prjónið 27-27-27-29-29-29 lykkjur sléttprjón (= ermi), prjónið A.2 yfir lykkju með 2. merki, prjónið 29-31-33-33-35-39 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), prjónið A.1 yfir lykkju með 3. merki, prjónið 27-27-27-29-29-29 lykkjur sléttprjón (= ermi), prjónið A.2 yfir lykkju með 4. merki, prjónið 14-16-16-16-18-20 lykkjur sléttprjón og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni – fellið af fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan. Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina er mynsturteikning endurtekin yfir lykkjur með merki á sama hátt, mismunandi er aukið út hvoru megin við mynsturteikningu þannig að það er mikilvægt að merkin fylgi með í sömu lykkju allan tímann. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið svona þar til mynsturteikning hefur verið prjónuð alls 5-5-6-7-7-8 sinnum á hæðina = 269-275-305-337-343-379 lykkjur. Nú er prjónuð mynsturteikning A.3 yfir A.1 og A.4 yfir A.2. Þegar mynsturteikningin hefur verið prjónuð til loka eru 293-311-333-357-383-419 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 17-18-20-22-24-27 cm frá merki eftir kanti í hálsmáli. Það eru 44-48-51-54-59-65 lykkjur fram að lykkju með 1. merki, 63-65-69-75-79-85 lykkjur á milli 1. og 2. merkis, 75-81-89-95-103-115 lykkjur á milli 2. og 3. merkis, 63-65-69-75-79-85 lykkjur á milli 3. og 4. merkis og 44-48-51-54-59-65 lykkjur frá lykkju með 4. merki og fram að byrjun umferðar og það eru 4 lykkjur með merki í. Prjónið síðan í sléttprjóni með kanti að framan eins og áður án þess að auka út þar til stykkið mælist 17-19-21-22-24-27 cm frá merki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR. Stykkið skiptist þannig: Prjónið 48-52-54-58-65-70 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 57-59-65-69-69-77 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 14-16-18-20-22-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið undir ermi), prjónið 83-89-95-103-115-125 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 57-59-65-69-69-77 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 14-16-18-20-22-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið undir ermi) og prjónið 48-52-54-58-65-70 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 207-225-239-259-289-313 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður þar til stykkið mælist 22-22-22-22-22-21 cm frá skiptingu. Í næstu umferð (= frá réttu) byrjar stroff jafnframt því sem aukið er út um 28-32-34-36-40-44 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – lesið ÚTAUKNING = 235-255-273-295-327-355 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningu) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 3 cm er fellt af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 57-59-65-69-69-77 lykkjur fyrir ermar af öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 14-16-18-20-22-24 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 71-75-83-89-91-101 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 14-16-18-20-22-24 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3-3-3-4-4-3 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 2-1½-1-1-2-1 cm alls 6-7-8-7-4-5 sinnum = 59-61-67-75-83-91 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 17-15-14-14-12-9 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 9-9-9-11-13-15 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 68-70-76-86-96-106 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3 cm er fellt aðeins laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 20-18-17-17-16-13 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #orchidteacardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 250-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.