Gudrun Korsbek skrifaði:
Jeg glæder mig til opskriften
11.10.2026 - 14:21DROPS Design svaraði:
Hei Gudrun, Oppskriften ligger på nett og er gratis. Den kan enten lagres på PCen eller printes ut. Hilsen Drops Team.
12.10.2026 - 05:21
Ari skrifaði:
Hi! I am using dk weight yarn with 3mm needles (24\" tip to tip) and knitting the size S, my question is, is the neckline supposed to be that big or am i making a mistake? Usual necklines fit on 16\" and are too small for 24\" needles so I am skeptical that it fit my 24\" needles, please help
07.10.2026 - 22:11DROPS Design svaraði:
Hi Ari, The neck on this jumper is quite loose. As long as your swatch has the same knitting tension as stated under the needle sizes, it should be fine. You are of course able to adjust the pattern if you wish and cast on fewer stitches. Regards, Drops team.
08.10.2026 - 05:22
Gudrun Ruthsatz skrifaði:
Ich bin jetzt bei der Passe angelangt - nun Frage ich mich aber wie ich die angegebenen Maschen zunehmen soll. Nehme ich die M gleich am Anfang der Arbeit zu und dann immer der Reihe nach oder werden M noch aufgeteilt?
20.08.2026 - 13:17DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Ruthsatz, die Zunahmen der 1. Runde der Passe werden bei dieser Runde regelmäßig verteilt, benutzen Sie den Tools (rechts unten) so dank dem Zunahmenberechner, wissen Sie, wo Sie zunehmen sollen. Viel Spaß beim Stricken!
21.08.2026 - 06:35
Fernanda Lopez skrifaði:
Vou usar o fio Baby Alpaca Silk, devo fazer um tamanho maior?
12.08.2026 - 10:49DROPS Design svaraði:
Bom dia, Se fez amostra e obteve o mesmo número de malhas e de carreiras por 10 x 10 cm depois de lavar e bloquear a amostra, não precisa de fazer alterações. Se não obteve os mesmos valores, deve fazer adaptações, eventualmente, mudando de tamanho para um tamanho maior. Bons tricôs! A equipa DROPS
13.08.2026 - 10:33
Maria Assunta skrifaði:
Controllate i numeri delle maglie relativi alle varie sezioni (metà dietro, manica, ecc.) nella suddivisione delle maglie dello sprone perché ci sono degli errori. Si risale facilmente ai numeri corretti, ma le indicazioni sono, in parte, sbagliate
19.07.2026 - 17:52DROPS Design svaraði:
Buonasera Maria Assunta, al momento non sono riportati correzioni per questo modello. Buon lavoro!
08.08.2026 - 20:33
Nella Spanke skrifaði:
After working the body 6” from the divide, directions say to increase and then go directly into the rib. Is there something missing here? It would be wide at the bottom rib and way too short overall.
28.06.2026 - 20:18DROPS Design svaraði:
Dear Nella, the piece is not too long; it's 18"-19" (depending on if you are working size M or L) and the yoke measured 7½"-8¼ already (with 2 3/8" from the neck/shoulder). Then you work 6" of the body, increase for the rib and work the rib 2⅜" = approx. 18". Take into account that the original measurements are in cm, so some decimals may slightly vary between cm and in, but it's still fairly similar. You increase for the rib because the rib will make the piece narrower, as we tend to work the stitches more tightly, so it allows us to maintain the width of the bottom edge similar to the rest of the piece. Happy knitting!
29.06.2026 - 01:29
Ingrid Jensen skrifaði:
Hvorfor skal omgangen forskydes så tråden skal klippes og maskerne flyttes ? Og derved starter omgangen et anden sted ?
10.06.2026 - 13:52DROPS Design svaraði:
Hej Ingrid, det gør du for at forskyde selve hulmønsteret, så det kommer til at se ud som på billedet :)
10.06.2026 - 14:13
Anne Grethe Jensen skrifaði:
Det er en dejligt bluse at strikke har lavet 4 med kort ærme 1 med langt
23.04.2026 - 08:34
Kulic Snjezana skrifaði:
Vielen lieben Dank.
14.04.2026 - 10:37
Kulic Snjezana skrifaði:
Bei der Größe XL soll man 21 Runden A1 stricken. Das Diagramm hat 12 Runden. Wie stricke ich weiter?
14.04.2026 - 10:35
Blueberry Leaf#blueberryleafsweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Sky eða DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 249-9 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING (á við um hringinn á berustykki): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 150 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 30) = 5. Í þessu dæmi er aukið út á eftir ca 5. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Hálsmál og berustykki er prjónað í hring frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Ermar eru síðan prjónaðar niður á við í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 120-124-128-132-140-148 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Sky eða DROPS Merino Extra Fine. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 2 cm, eru allar lykkjur í einingu með 2 lykkjur brugðið auknar út til 3 lykkjur brugðið – aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkjur brugðið sem prjónað er snúið í næstu umferð = 150-155-160-165-175-185 lykkjur. Prjónið síðan stroff (2 lykkjur slétt / 3 lykkjur brugðið) þar til kantur í hálsmáli mælist alls 5 cm. Setjið 1 merki mitt í umferð, berustykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið hringinn í sléttprjón, jafnframt í fyrstu umferð er aukið út um 30-35-40-45-45-55 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 180-190-200-210-220-240 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 3 cm frá merki. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar, það á að nota merkiþráðinn þegar mynstrið er prjónað. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Nú á að prjóna MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, þ.e.a.s. prjónið A.1 alls 18-19-20-21-22-24 sinnum berustykkið hringinn. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 216-228-240-252-264-288 lykkjur í umferð. Nú á að færa umferðina til, klippið þráðinn og færið fyrstu 6 lykkjur í umferð yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, færið merkiþráðinn hingað – nú byrjar umferðin hér. Prjónið A.2 alls 18-19-20-21-22-24 sinnum berustykkið hringinn. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 252-266-280-294-308-336 lykkjur í umferð. Nú á að færa umferðina til, klippið þráðinn og færið fyrstu 7 lykkjur í umferð yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, færið merkiþráðinn hingað – nú byrjar umferðin hér. Prjónið A.3 alls 18-19-20-21-22-24 sinnum berustykkið hringinn. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 270-285-300-315-330-360 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 12 cm frá merki. Prjónið síðan hringinn í sléttprjóni, jafnframt í fyrstu umferð er aukið út um 13-17-22-32-39-36 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 283-302-322-347-369-396. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 15-15-16-17-17-18 cm frá merki, í næstu umferð er aukið út um 13-18-22-33-39-36 lykkjur jafnt yfir = 296-320-344-380-408-432 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón þar til stykkið mælist 18-19-21-22-23-25 cm frá merki. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 32-36-39-44-50-55 lykkjur eins og áður (tilheyra bakstykki), setjið næstu 58-62-68-76-78-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (í hlið undir ermi), prjónið 90-98-104-114-126-136 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 58-62-68-76-78-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 58-62-65-70-76-81 lykkjur eins og áður (tilheyrir bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 200-216-232-252-280-304 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 14-15-15-15-16-16 cm frá skiptingunni. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 40-40-44-52-56-60 lykkjur jafnt yfir = 240-256-276-304-336-364 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Nú er prjónað stroff, fyrsta umferð er frá röngu: 6 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið stroff (2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) þar til stroffið mælist 6 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 58-62-68-76-78-80 lykkjur af þræði í annarri hlið á sokkaprjóna / hringprjóna 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 68-72-80-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í miðju á 10-10-12-12-14-16 nýjum lykkjum undir ermi (mitt undir ermi), merkiþráðurinn er notaður þegar fækka á lykkjum undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn, JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi í stærð S, M, L og XL (lykkjum er ekki fækkað í stærð XXL og XXXL) – lesið ÚRTAKA. STÆRÐ S, M, L og XL: Fækkið lykkjum svona í hverjum 2-1-1-1½ cm alls 2-2-2-2 sinnum = 64-68-76-84 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: = 64-68-76-84-92-96 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 10-9-8-8-8-6 cm frá skiptingunni. Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd á ermi. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-12-12-16-16-20 lykkjur jafnt yfir = 72-80-88-100-108-116 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 16-15-14-14-14-12 cm frá skiptingunni. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #blueberryleafsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 249-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.