Valerie VAN HOVE skrifaði:
Bonjour comment savoir si je dois faire ce pull en S ou M pour moi je ne vois pas à quelle dimension correspond chaque taille ? Merci de votre réponse Valérie
27.03.2024 - 21:50DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Van Hove, mesurez un vêtement similaire que vous avez et dont vous aimez la forme et comparez ces mesures à celles du schéma, vous trouverez ainsi la taille qui vous convient. Retrouvez plus d'infos ici. Bon tricot!
02.04.2024 - 12:46
Nete Liv Andersen skrifaði:
DROPS 250-19 DROPS Design: Model ai-471 Garngruppe C eller A -A
18.03.2024 - 15:39
Nete Liv Andersen skrifaði:
Hvor kan man få Air som er på billedet 250-19 den er mere pink end lyserød
18.03.2024 - 15:36DROPS Design svaraði:
Hej Nete, DROPS 39 magenta ser ud som på billedet :)
19.03.2024 - 14:03
María Angeles skrifaði:
Estoy buscando para hacer pueblos dobles y cerrarlos con aguja y luego seguir haciendo el jersey si me lo puede ir contestar se lo agradezco muchísimo y y muchas gracias porque me gustan mucho mucho mucho mucho mucho mucho mucho mucho mucho mucho mucho mucho sus patrones
15.03.2024 - 15:40
Margaretha Nolhage skrifaði:
Nu har jag stickat till delning för bål o fattas 64 maskor dvs undrar om ni inte missat en uttagning på oket? Tacksam för svar så jag kan sticka vidare. MVH Margaretha Nolhage
13.03.2024 - 22:16DROPS Design svaraði:
Hej Margaretha, skriv hvilken størrelse du strikker, så kan vi se på det :)
19.03.2024 - 11:37
Manuela skrifaði:
Die neuen Markierungen sind genial!
01.03.2024 - 08:34
Maria Roshed Sandström skrifaði:
Strawberry cake
21.01.2024 - 08:52
Aurore skrifaði:
Bonbon
20.01.2024 - 14:51
Katarzyna skrifaði:
Summer blush
20.01.2024 - 10:21
Judith skrifaði:
Perfectly Pink
20.01.2024 - 09:54
Bright Strawberry Sweater#brightstrawberrysweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 250-19 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptast lykkjurnar fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við á hringprjóna á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring á hringprjóna / sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-92-96-100-104-108 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Air. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja snúin slétt / 1 lykkja brugðið) í 8-8-8-9-9-9 cm (ef óskað er eftir þá er hægt að brjóta uppá kantinn tvöfaldan). Nú er sett 1 merki mitt að aftan, berustykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið sléttprjón jafnframt því sem í fyrstu umferð er aukið út um 12-16-16-16-16-16 lykkjur jafnt yfir = 100-108-112-116-120-124 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 2-2-3-3-3-3 cm frá merki er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, þ.e.a.s. prjónað er þannig: Prjónið umferð 1 í A.1 alls 25-27-28-29-30-31 sinnum hringinn á berustykki (= 50-54-56-58-60-62 lykkjur fleiri) = 150-162-168-174-180-186 lykkjur. Prjónið umferð 2 í A.1 og fækkið jafnframt um 3-0-0-4-0-2 lykkjur jafnt yfir, fækkið um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman = 147-162-168-170-180-184 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 7-7-8-8-9-9 cm frá merki. Prjónið umferð 1 í A.2 alls 21-27-28-34-36-46 sinnum hringinn á berustykki (= 42-54-56-68-72-92 lykkjur fleiri) = 189-216-224-238-252-276 lykkjur. Prjónið umferð 2 í A.2 og fækkið jafnframt um 0-0-0-3-0-0 lykkjur jafnt yfir, fækkið um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman = 189-216-224-235-252-276 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 13-14-14-16-16-17 cm frá merki. Prjónið umferð 1 í A.3 alls 27-27-32-47-42-46 sinnum hringinn á berustykki (= 54-54-64-94-84-92 lykkjur fleiri) = 243-270-288-329-336-368 lykkjur. Prjónið umferð 2 í A.3 og jafnið lykkjufjöldann út þannig að það séu 248-268-290-326-344-364 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 20-22-23-24-26-28 cm frá merki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Prjónið 38-41-44-49-54-58 lykkjur sléttprjón (= ca hálft bakstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 76-82-89-99-108-116 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 38-41-45-50-54-58 lykkjur í sléttprjóni (= ca hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 164-176-194-214-236-256 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 21-21-22-21-21-21 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á hringprjóna 4, prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt / 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 18-22-22-24-26-28 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 182-198-216-238-262-284 lykkjur. Þegar stroffið mælist 9-9-9-10-10-10 cm, fellið af. Peysan mælist ca 55-57-59-61-63-65 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 48-52-56-64-64-66 lykkjur frá þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-72-74-78 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur undir ermi (mitt undir ermi). Merkiþráðurinn er notaður þegar fækka á lykkjum undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn, JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverjum 2½-2½-2-1-1-1 cm alls 5-5-6-10-10-11 sinnum = 44-48-52-52-54-56 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til ermin mælist 32-31-30-30-28-26 cm frá skiptingunni, nú eru eftir ca 9-9-9-10-10-10 cm að loka máli. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4, prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt / 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 6-6-6-8-8-8 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 50-54-58-60-62-64 lykkjur. Þegar stroffið mælist 9-9-9-10-10-10 cm, fellið af. Ermin mælist ca 41-40-40-40-38-36 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið e.t.v. stroffið niður í hálsmáli að innanverðu á stykki og saumið niður með nokkrum sporum. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #brightstrawberrysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 250-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.