Ritva skrifaði:
Hei, miten kaulus kiinnitetään joustavasti?
19.10.2026 - 09:53DROPS Design svaraði:
Hei, klikkaa ohjeen Videot-linkkiä ja katso seuraava video: Kaksinkertaisen pääntien reunuksen kiinnittäminen neuleen sisäpuolelle
20.10.2026 - 20:02
Mylène skrifaði:
Bonjour, Pourriez-vous svp préciser comment doubler le col après avoir réalisé les 6 cm de côtes ? J'imagine qu'il faut plier la partie de côtes et tricoter ensemble une maille de l'aiguille et une maille du rang de montage ? D'avance merci.
18.09.2026 - 07:07DROPS Design svaraði:
Bonjour Mylène, vous pouvez effectivement procéder ainsi (cf. vidéo; dans ce modèle, la styliste avait choisi de faire la couture à la fin, comme on le montre dans cette vidéo. Bon tricot!
18.09.2026 - 09:23
Yocodo skrifaði:
Bonjour, Le modèle existe t il en commencant par le bas et en travaillant le devant et le dos séparément svp ?
08.09.2026 - 19:08DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Yocodo, retrouvez ici tous nos pulls enfant tricotés de bas en haut; dans cette leçon, nous donnons quelques astuces pour adapter un modèle sur aiguilles droites. Bon tricot!
09.09.2026 - 07:40
Jennifer skrifaði:
Jeg har strikket halskanten og er nået til første omgang med A1: skal det forstås sådan at jeg strikker mønstret til raglan, tager ud, to rette raglanmasker, tager ud, og så fortsætter mønstret og “lader som om” jeg ikke lige har øget og strikket to ret? Altså fuldstændig ignorere de 4 ekstra masker ift mønstret?
22.08.2026 - 22:26DROPS Design svaraði:
Hei Jennifer. Etter en merketråd /raglanlinje starter man på begynnelsen av diagrammet, slik at man begynner og slutter likt mellom merketråd 1 og 2, merketråd 2 og 3, merketråd 3 og 4 og merketråd 4 og 1, slik at man f.eks i str. 2 år vil man på 1. omgang med mønster og økning få 6 rett masker etterhverandre + de 2 kastene (altså, på 1. omgang av diagrammet slutter man diagrammet med 2 rett, deretter 1 kast, 1 rett, merketråd, 1 rett, 1 kast og så starter man med begynnelsen av diagrammet/2 rett = over 1 raglanlinje). Og slik blir det over alle 4 raglanlinjer. mvh DROPS Design
24.08.2026 - 09:24
Inger skrifaði:
Er ferdig med bolen og skal begynne på ermene. I str 9/10 skal det være 58 masker inkl. de 10 under ermet. Men 58 gå jo ikke opp 4 så mønsteret blir forskjøvet. Hva skal jeg gjøre med de to rette maskene fra raglanfellingen som er i hver side av de 10 under? Når det gjelder fellinga under ermet etter 3 cm, skal det være to midtmasker som skal strikkes rett. Skal det være ei stripe med 2 rette hele veien, eller skal det bare strikkes rett i omgangene med felling?
01.08.2026 - 18:47DROPS Design svaraði:
Hei Inger, Mønsteret (dobbel perlestrikk) ville ikke gå opp under ermene. Strikk mønster så langt det går under ermene (over de nye maskene også) før du begynner en ny rapport etter merketråden. Dette gjelder hele ermet, til og med mens du feller. Så det blir ikke en stripe av rettmasker under ermene. Hilsen Drops Team.
02.08.2026 - 06:48
Annette Larsen skrifaði:
Når jeg er færdig med at tage ud, fortsætter jeg til arbejdet måler 19 cm. Jeg synes der bliver en forhøjning ved raglan der hvor maskeantallet ikke forøges mere. Jeg forstår opskriften sådan, at man skal fortsætte med de samme 2 masker til raglan indtil der skal sættes masker af på tråd til ærme. Jeg ved ikke om det er rigtigt.
30.04.2026 - 19:42DROPS Design svaraði:
Hei Annette. Jo, du har forstått oppskriften riktig. Prøv å dampe "forhøjning" lett og se om ikke den da blir jevn med de andre maskene. mvh DROPS Design
04.05.2026 - 10:03
Catherine skrifaði:
Je ne comprends pas comment augmenter une maille de chaque côté du raglan et en même temps faire le point fantaisie A1 Ça ne vas jamais tomber juste…
06.04.2026 - 17:15DROPS Design svaraði:
Bonjour Catherine, effectivement, en augmentant 1 maille, le motif ne sera pas "complet", mais il faut simplement intégrer les nouvelles mailles au point fantaisie; après les mailles du raglan, tricotez la nouvelle maille comme la maille qui précède celles qui sont sur l'aiguille gauche (lisez le motif de gauche à droite) et avant les mailles du raglan, tricotez les nouvelles mailles comme un nouveau motif (lisez le motif de droite à gauche). Ainsi, le point fantaisie va s'élargir de chaque côté. Bon tricot!
08.04.2026 - 12:21
Kate skrifaði:
I am a bit mystified by this pattern. Everything was going well on the neck ribbing. However, as I begin the yarn over increases, the video tutorial suggests this creates a hole. The instructions further suggest that continuing the A1 pattern will somehow twist the hole to close it, however the closure has not materialized for me. What am I missing? How do you close the hole created by the yarn over method, or are there supposed to be holes?
10.03.2026 - 00:53DROPS Design svaraði:
Hi Kate, The yarn overs are worked twisted on the next round (by working through the back stitch-loop of the yarn over). There should not be holes. Here is a link to our video showing you how to knit through the back loop: https://www.garnstudio.com/video.php?id=1886&lang=us Regards, Drops Team.
10.03.2026 - 06:49
OUDIN skrifaði:
Bonjour, combien de pelotes de drops merino extra fine faut-il commander pour un pull taille 3/4 et la référence exacte ? je ne trouve pas l'information. merci pour votre réponse
21.02.2026 - 13:50DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Oudin, vous trouverez la quantité nécessaire pour chaque taille dans l'onglet "Explications" en haut de page, en taille 3/4 ans par exemple, il vous faudra 300 g DROPS Merino Extra Fine / 50 g la pelote = 6 pelotes. Bon tricot!
23.02.2026 - 08:07
Isabelle skrifaði:
Moet ik de raglan lijn aan houden als ik klaar ben met meerderen? ik moet nu gewoon verder met het lijf, maar dit is mij net niet helemaal duidelijk
11.02.2026 - 21:30DROPS Design svaraði:
Dag Isabelle,
Als het goed is heb je aan het begin van de naald een markeerdraad geplaatst en als je klaar bent met de meerderingen voor de raglan en het werk moet verdelen voor het lijf en de mouwen, verdeel je de steken zoals aangegeven in het patroon. Ik weet niet uit mijn hoofd of de raglanlijnen dan bij het lijf komen of bij de mouwen, maar als je het aantal aangegeven steken aanhoudt, dan komt het goed.
12.02.2026 - 19:25
Winter Weekend#winterweekendsweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Fiesta. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með áferðamynstri, tvöföldum kanti í hálsmáli og laskalínu. Stærð 2 – 12 ára.
DROPS Children 47-33 |
|||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING (jafnt yfir): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju á undan / eftir 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma, merkiþræðirnir sitja á milli þessa 2 lykkja (8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt / snúinn brugðið í mynstri A.1, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 80-80-88-88-88-88 lykkjur með DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Fiesta yfir stuttan hringprjón 3 og stuttan hringprjón 4 sem haldið er saman. Dragið út stutta hringprjón 4 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 3. (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju slétt. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Prjónið síðan áfram berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 4 merkiþræði í stykkið eins og útskýrt er að neðan, jafnframt því sem aukið er út jafnt yfir. ATH: Hver merkiþráður er settur á milli 2 lykkja slétt og merkiþræðirnir merkja laskalínu. (Byrjun á umferð er á milli bakstykkis og hægri ermi). Setjið 1. merkiþráð í byrjun á umferð, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 14 lykkjur (hægri ermi), prjónið 2 lykkjur slétt og setjið 2. merkiþráð á milli þessa 2 lykkja, prjónið 22-22-26-26-26-26 lykkjur og aukið út 4-4-4-4-8-8 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið ÚTAUKNING (= 26-26-30-30-34-34 lykkjur fyrir framstykki), prjónið 2 lykkjur slétt og setjið 3. merkiþráð á milli þessa 2 lykkja, prjónið slétta lykkju yfir næstu 14 lykkjur (vinstri ermi), prjónið 2 lykkjur slétt og setið 4. merkiþráð á milli þessa 2 lykkja, prjónið 22-22-26-26-26-26 lykkjur og aukið út 4-4-4-4-8-8 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 26-26-30-30-34-34 lykkjur fyrir bakstykki), prjónið 1 lykkju slétt = 88-88-96-96-104-104 lykkjur. Prjónið A.1 hringinn með 2 lykkjur sléttprjón í hverri laskalínu og aukið út fyrir laskalínu eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 merkiþræðina – lesið útskýringu að ofan, í annarri hverri umferð alls 9-9-9-9-9-7 sinnum = 160-160-168-168-176-160 lykkjur. Haldið áfram með útaukningu í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki/bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið er út á framstykki/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 10-12-12-14-14-18 sinnum á framstykki/bakstykki (5-6-6-7-7-9 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 19-21-21-23-23-25 sinnum á framstykki/bakstykki og 14-15-15-16-16-16 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu eru 220-232-240-252-260-268 lykkjur á prjóni. Prjónið mynstur sem áður og útaukningu þar til stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm mælt eftir stroff í hálsmáli. Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið 44-46-46-48-48-48 fyrstu lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-10-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 66-70-74-78-82-86 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið 44-46-46-48-48-48 næstu lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-10-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir síðustu 66-70-74-78-82-86 lykkjur eins og áður (bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 144-152-168-176-184-192 lykkjur. Haldið áfram hringinn með mynstri. Þegar stykkið mælist 15-18-21-24-27-29 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-24-24-28-28-28 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 164-176-192-204-212-220 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 36-40-44-48-52-55 cm frá öxl. ERMI: Setjið 44-46-46-48-48-48 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-10-10-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 50-52-56-58-58-58 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi – mitt í 6-6-10-10-10-10 nýjar lykkjur. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið mynstur eins og áður hringinn. Þegar ermin mælist 2-2-2-3-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverjum 2-3-3½-4-6-9 cm alls 6-6-6-6-5-4 sinnum = 38-40-44-46-48-50 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 15-20-23-26-30-35 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-8-8-6-8-6 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 19-24-27-30-34-39 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki og festið með nokkrum sporum. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterweekendsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 47-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.