Carmen Rosa skrifaði:
I found the instructions quite confusing thus I am using short rows/ German rows for shoulder line. Besides making shorter the neck rib. I hope this comment helps. 🙂
20.04.2026 - 02:35
ELISABETH skrifaði:
Merci beaucoup !
08.04.2026 - 08:50
ELISABETH skrifaði:
Je souhaite tricoter ce modèle avec des aiguilles DROITES ! je n'aime pas tricoter avec des circulaires , merci
02.04.2026 - 14:23DROPS Design svaraði:
Bonjour Élisabeth, vous trouverez alors ici comment adapter les explications en conséquence. Bon tricot!
07.04.2026 - 17:08
Anne skrifaði:
Would the small size work for a medium woman's vest. Im struggling to find a pattern using Drops Nepal 450g?
19.03.2026 - 09:59DROPS Design svaraði:
Dear Anne, please find all vest patterns worked with same tension 17-16 sts for lady here - use the yarn converter when needed to see the appropriate amount for Nepal. Happy knitting!
19.03.2026 - 16:16
Sue skrifaði:
Well, I'm pulling it right back today, hole for head is too small....
15.03.2026 - 15:14
Sue skrifaði:
I'm at the neck, think I've got some holes where I did the diagonal shoulder, will do some darning!
03.03.2026 - 12:23
Pete skrifaði:
I hope you have progressed ok, Sue? I finished mine the other day and fairly pleased with it. If anything, it’s the initial ribbing that doesn’t look so great. For the diagonal shoulders, it was just a case of working part of a row and then turning the work to work back again (a couple of times per shoulder). Regarding the part about picking up the strand between stitches, it remains unclear but I just tried a few different things to see what looked best (tinking back if it looked bad).
23.02.2026 - 15:51
Sue skrifaði:
I'm having the same problem as you Pete, size small, not yet done the stepping part, not clear at all
18.02.2026 - 17:15
Pete skrifaði:
Ok, I think I now understand (3 ‘steps’ of 6 stitches for each shoulder plus 26 cast off between for total of 62, accounting for the 1 neck decrease each side). So my new questions are: 1. Following the initial ribbing, is the mentioned decrease included in that first knit round on 4mm needles (I am assuming yes)? 2. Do you have a video to show how to “pick up the strand between 2 stitches and work it twisted together with the next stitch on the left needle” as I can’t visualise this?
13.02.2026 - 10:38
Pete skrifaði:
Not just me having problems with shoulder/neckline. Working on the front for M size, I have 64 stitches. Next, I work 6 stitches and place these on a thread, and then work another 6 stitches and place these on another thread, and then presumably work the next 14 stitches and maybe place these on a thread? Then work the last 6 stitches (for that side of 32 stitches) and place these on a thread. And then completely give up? Can this be made clearer? Video didn’t help.
11.02.2026 - 11:30
Vestfjord Vest#vestfjordvest |
|
![]() |
![]() |
Prjónað vesti fyrir herra úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 246-13 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúið slétt, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um handveg og hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp að handvegi. Stykkið skiptist síðan fyrir framstykki og bakstykki og er prjónað fram og til baka að loka máli. Kantur í hálsmáli og kantur í handvegi er síðan prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 188-196-214-242-268-282 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Nepal. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 20-20-22-26-28-30 lykkjur jafnt yfir = 168-176-192-216-240-252 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar og 1 merkiþráð eftir 84-88-96-108-120-126 látið merkiþræðina fylgja með í stykkinu – það á að nota þá síðar þegar auka á út í hliðum. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10 cm, aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið svona út í hverjum 14-6-6-16-16-17 cm alls 2-4-4-2-2-2 sinnum = 176-192-208-224-248-260 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm. Í næstu umferð er lykkjum fækkað fyrir handveg þannig: Byrjið 5-6-7-8-9-10 lykkjum á undan fyrsta merkiþræði, fellið af 10-12-14-16-18-20 lykkjur, prjónið áfram þar til 5-6-7-8-9-10 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði í hinni hliðinni, fellið af 10-12-14-16-18-20 lykkjur. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað til loka hvort fyrir sig, setjið fyrstu 78-84-90-96-106-110 lykkjur á þráð fyrir framstykki. BAKSTYKKI: = 78-84-90-96-106-110 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni (með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið) og fækkið lykkjum fyrir handveg í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 5-7-9-10-15-14 sinnum og síðan í 4. hverri umferð (annarri hverri umferð frá réttu) alls 3-3-2-2-1-2 sinnum = 62-64-68-72-74-78 lykkjur. Síðan er lykkjum fækkað fyrir skáhallandi öxl og hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. SKÁHALLANDI ÖXL og HÁLSMÁL: Lykkjum er fækkað fyrir skáhallandi öxl samtímis sem lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli, lestu því allan kaflann áður en þú prjónar áfram. Þegar stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm, setjið lykkjur á þráð í hvorri hlið fyrir skáhallandi öxl (til að þurfa ekki að klippa þráðinn frá sem prjónað er með eru lykkjurnar prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn): Setjið lykkjur á þráð frá hlið þannig: 5-6-6-7-7-7 lykkjur 2 sinnum og síðan eru síðustu 7-6-7-7-7-9 lykkjur settar á þráð. Þegar allar lykkjur sitja á þræðinum, setjið lykkjurnar til baka yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð sléttprjón yfir allar lykkjur (til að koma í veg fyrir göt í skiptingunum þar sem lykkjur voru settar á þráðinn, er þráðurinn tekinn upp á milli 2 lykkja og prjónað snúið saman með fyrstu lykkju á vinstri prjóni). Fellið af í næstu umferð. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm, fellið af miðju 26-26-28-28-30-30 lykkjur fyrir hálsmáli (18-19-20-22-22-24 lykkjur á hvorri öxl) og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Jafnframt í næstu umferð er felld af 1 lykkja við hálsmál. Þegar allar lykkjur hafa verið felldar af, mælist stykkið ca 60-62-64-66-68-70 cm frá hæsta punkti á öxl og niður. Endurtakið á hinni öxlinni. FRAMSTYKKI: = 78-84-90-96-106-110 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni (með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið) og fækkið lykkjum fyrir handveg í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) 5-7-9-10-15-14 sinnum og síðan í 4. hverri umferð (annarri hverri umferð frá réttu) alls 3-3-2-2-1-2 sinnum = 62-64-68-72-74-78 lykkjur. Þegar stykkið mælist 52-54-55-57-58-60 cm, setjið miðju 18-18-18-18-20-20 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli (22-23-25-27-27-29 lykkjur á hvorri öxl) og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið síðan og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Haldið áfram fram og til baka og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 5-5-6-6-6-6 sinnum = 17-18-19-21-21-23 lykkjur á öxl. Prjónið síðan og fækkið lykkjum fyrir skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. SKÁHALLANDI ÖXL: Þegar stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm, setjið lykkjur á þráð í hvorri hlið fyrir skáhallandi öxl á sama hátt og á bakstykki, þ.e.a.s. setjið 5-6-6-7-7-7 lykkjur 2 sinnum og síðan síðustu 7-6-7-7-7-9 lykkjur á þráð. Þegar allar lykkjur sitja á þræði er prjónuð 1 umferð sléttprjón yfir allar lykkjur eins og á bakstykki, áður en fellt er af í næstu umferð. Þegar allar lykkjur hafa verið felldar af, mælist stykkið ca 60-62-64-66-68-70 cm frá hæsta punkti á öxl og niður. Endurtakið á hinni öxlinni. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu við aðra öxlina, notið stuttan hringprjón 4 og prjónið upp ca 76 til 96 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði) innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2). Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. KANTUR Í HANDVEGI: Byrjið frá réttu mitt í handvegi, notið stuttan hringprjón 4 og prjónið upp ca 96-98-102-106-110-114 lykkjur í kringum allan handveginn innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2). Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hinn kant í handvegi á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #vestfjordvest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 246-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.