Rosa skrifaði:
Hi! The instructions for the diagonal shoulder is not clear at all!! In the pattern, there is an instruction on avoiding a "hole" when turning mid-row, there is noting about turning mid row in the instructions. I've watched the video to understand the European shoulder but is was not clear at all. Will you please explain it further. Thank you!
20.01.2025 - 20:30DROPS Design svaraði:
Dear Rosa, when you knit the diagonal shoulder, and put stitches on stitch-holders, or leftover threads, and you turn to knit bak, you are not turningat the end of the row, but somwhere in the middle. Later, when you knit the whole row again, these are the places, where small holes can appear and those should be delt with the extra stitch and decrease. Happy Knitting!
21.01.2025 - 01:28
Niniicky skrifaði:
Hi! What is the chest circumference of the size L? Thanks!
01.01.2025 - 14:44
Roos skrifaði:
Volgensnmij klopt de uitleg van hey telpatroon niet. Er staat bij de 3e en de 4e "kabeluitleg" 2 keer hetzelfde. Dus zowel bij het streepje naar boven als bij het streepje naar onderen. Ik vermoed dat bij het streepje naar onderen de kabelnaald niet "achter " maar "voor" het werk moet. Net zoals bij de enkele steek op kabelnaald?
15.11.2023 - 21:59
Roelanda Bonder skrifaði:
Goedendag, Mijn vraag gaat over het minderen nadat de boord is gebreid. eerste 15 steken - 3 steken minder. Patroon breien A6 etc. dat is in totaal 160 steken 15 steken - 3 minderen Ik hou dan 32 steken over maar moet dan nog 116 hebben om 24 steken op te minderen. Klopt dat? of moet ik in het patroon al minderen. Hartelijke Groet, Roelanda Bonder
20.10.2023 - 22:16DROPS Design svaraði:
Dag Roelanda,
Het patroon zit alleen op het voorpand en op het achterpand zitten de 116 steken waarover je 24 steken moet minderen. (A.1/A.3 + A.2/A.4+ A.3/A.1 samen zijn 78 steken in totaal. Met de 15 steken aan beide zijden daarvan kom je op 108, met A.5 en A.6 erbij kom je precies op de 228 steken die je op had gezet.
21.10.2023 - 10:27
Renate skrifaði:
Soft-Feelings Modellname
05.08.2023 - 19:45
Sveta skrifaði:
Diamonds
04.08.2023 - 15:01
Ing-Marie Andersson skrifaði:
Sailor dream
04.08.2023 - 11:54
Birgitte skrifaði:
The sailoress
04.08.2023 - 10:59
E Veiga skrifaði:
Sweet Pie (the lattice definitely reminds me of apple pies!)
03.08.2023 - 13:07
Diamond Falls#diamondfallssweater |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Soft Tweed og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með köðlum, skáhallandi öxl og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 243-28 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. ÚRTAKA (á við um hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG (hægri öxl): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri). FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG (vinstri öxl): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (1 lykkja færri), 1 kantlykkja í garðaprjóni. ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermum): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Fram- og bakstykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig, fram og til baka á hringprjóna. Mynstur er prjónað með köðlum á framstykki, bakstykkið er prjónað í sléttprjóni. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er tvöfaldur kantur í hálsmáli. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 196-212-228-244-264-284 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði DROPS Soft Tweed og 1 þræði DROPS Kid-Silk (2 þræðir). Prjónið stroffprjón þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 8-12-16-20-24-28 lykkjur, A.1, A.2, A.1, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju slétt. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið síðan þannig: Sléttar lykkjur yfir fyrstu 7-11-15-19-23-27 lykkjur og fækkið um 1-2-3-3-2-1 lykkjur jafnt yfir, A.5, A.3 yfir A.1, A.4 yfir A.2, A.3 yfir A.1, A.6, prjónið 7-11-15-19-23-27 lykkjur slétt og fækkið um 1-2-3-3-2-1 lykkjur jafnt yfir, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 100-108-116-124-136-148 lykkjur og fækkið um 20-22-24-24-26-28 lykkjur jafnt yfir þessar. Setjið 1 merkiþráði í byrjun umferðar og 1 merkiþráð eftir 94-100-106-114-124-134 lykkjur (í hliðar). Það eru 94-100-106-114-124-134 lykkjur á framstykki og 80-86-92-100-110-120 lykkjur á bakstykki. Haldið áfram með mynstur þannig: 6-9-12-16-21-26 lykkjur slétt, A.5, A.3, A.4, A.3, A.6, 6-9-12-16-21-26 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr hér), 80-86-92-100-110-120 lykkjur slétt. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fellið af lykkjur fyrir handveg þannig: Stillið af að næsta umferð sé umferð með snúningi í kaðli. Byrjið 3-3-3-4-5-7 lykkjur á undan fyrri merkiþræði, fellið af 6-6-6-8-10-14 lykkjur, prjónið þar til eftir eru 3-3-3-4-5-7 lykkjur á undan seinni merkiþræði, fellið af 6-6-6-8-10-14 lykkjur, prjónið út umferðina. Nú eru 88-94-100-108-114-120 lykkjur á framstykki og 74-80-86-92-100-106 lykkjur á bakstykki. BAKSTYKKI: = 74-80-86-92-100-106 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli og setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. Lestu kaflann HÁLSMÁL og SKÁHALLANDI ÖXL áður en þú prjónar áfram. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Í næstu umferð eru miðju 26-26-28-30-32-32 lykkjur felldar af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig eins og útskýrt er að neðan. HÁLSMÁL: Fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í næstu umferð frá réttu – lesið ÚRTAKA. SKÁHALLANDI ÖXL: Setjið ystu lykkjur við handveg á þráð fyrir skáhallandi öxl, en til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn. Setjið 6-6-7-7-8-9 lykkjur á þráð 3 sinnum og setjið síðan síðustu 5-8-7-9-9-9 lykkjur á þráð. Allar lykkjur hafa nú verið felldar af eða settar á þráð. Setjið til baka 23-26-28-30-33-36 lykkjur af þræði á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð sléttprjón, en til að koma í veg fyrir göt þegar snúið er við mitt í stykki, sækið þráðinn á milli 2 lykkja upp og prjónið snúið saman með fyrstu lykkju á vinstri prjóni. Fellið síðan laust af allar lykkjur. Stykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá uppfitjunarkanti efst á öxl. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 88-94-100-108-114-120 lykkjur. Prjónið mynstur fram og til baka yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 48-50-52-52-54-56 cm. Í næstu umferð eru miðju 30-30-32-34-36-36 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig eins og útskýrt er að neðan. Lykkjur í A.4 og A.3 er núna prjónaðar sem sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur eins og útskýrt er í mynstri, án þess að þeim sé snúið í kaðli. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli og setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. Lestu kaflann HÁLSMÁL og SKÁHALLANDI ÖXL áður en þú prjónar áfram. HÁLSMÁL: Fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu alls 4 sinnum – lesið ÚRTAKA. SKÁHALLANDI ÖXL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, setjið ystu lykkjur við handveg á þráð fyrir skáhallandi öxl á sama hátt og á bakstykki, þegar prjónað er yfir lykkjur í A.3 er fækkað um 2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur. Þegar allar lykkjur hafa verið felldar af, eða settar á þráð, setjið 23-26-28-30-33-36 lykkjur af þræði til baka yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð sléttprjón á sama hátt og á bakstykki og fellið síðan laust af allar lykkjur. Stykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá uppfitjunarkanti að efst á öxl. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu ca 88 til 104 lykkjur í kringum hálsmál (ásamt lykkjum af þræði) á stuttan hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 12 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið kant í hálsmáli niður að innanverðu á stykki og saumið niður. ERMI: Fitjið upp 52-52-56-60-64-64 lykkjur á sokkaprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 8 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 5. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 8-8-10-12-14-12 lykkjur jafnt yfir = 44-44-46-48-50-52 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 12 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – lesið ÚTAUKNING! Aukið svona út með 4½-3½-3-2½-2-2 cm millibili alls 8-10-11-11-12-12 sinnum = 60-64-68-70-74-76 lykkjur. Þegar ermin mælist 49-48-47-46-44-42 cm, prjónið ermakúpu fram og til baka á hringprjóna að loka máli. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 51-50-49-48-47-46 cm, þ.e.a.s. það er klauf 2-2-2-2-3-4 cm efst á ermi. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið ermakúpuna við handveg. Saumið síðan klaufina efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #diamondfallssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 243-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.