Nadine Brüchmann skrifaði:
Hallo. Ich cersuche mich gerade an dem Pulli. Habe allerdings gs das garn Ausgetauscht gegen dropsair. Was ich bei dieser Anleitung allerdings schon nicht am Anfang verstehe, nach den 10 cm rollkragen steht eine Reihe rechts und da n mit a1 anfangen. Aber nach dem Rollkragen Sind noch einige Reihen ohne 2. Farbe. Wie stricke ich denn bis zum Musteranfang?? Das ganze ist schon am Anfang sehr verwirrend. Hoffentlich bleibt das so nicht. Für eine schnelle Lösung wäre ich sehr froh.
16.08.2024 - 17:22DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Brüchmann, der Kragen und die 1. Runde der Passen werden mit Farbe Kamel gestrickt, dann strikt man A.1, das Diagram beginnt mit 9 Runden mit nur Kamel (einschl. 1 Zunahme bei der 8. Runde). Viel Spaß beim Stricken!
19.08.2024 - 07:46
Nancy skrifaði:
Hola cómo encuentro los primeros catálogos de buzos para poder orientarme y poder luego hacer sus diseños gracias
13.07.2024 - 21:39DROPS Design svaraði:
Hola Nancy, puedes ver todos nuestros catálogos aquí: https://www.garnstudio.com/catalogues.php?type=drops&lang=es. Y de niños aquí: https://www.garnstudio.com/catalogues.php?type=drops-baby-children&lang=es
16.07.2024 - 18:31
Ingeborg Ermer skrifaði:
Hallo, ich habe gerade den Pullover angefangen und weiß jetzt nicht weiter…Muster A1 hab ich fertig, es endet mit 8 Maschen, nun beginnt Muster A 2 mit 7 Maschen pro Rapport ??
04.07.2024 - 19:21DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Ermer, bei der letzten Runde A.1 muss man regelmäßig verteilt zunehmen, so kann man A.2 (7 Maschen) in der Runde stricken. Viel Spaß beim Stricken!
05.07.2024 - 07:28
Ruth Holst Jensen skrifaði:
Model model 244-9\r\nJeg er startet med at strikke denne trøje.\r\nMen der er en fejl i iopskriften..Jeg har strikket dobbelt halskant.\r\nDerefter skal der strikkes bærestykke.\r\nMen inden bærestykket er der et stykke på mønsteret i ensfarvet. dette fremkommer ikke af mønsteret.\r\nHvad skal jeg gøre .\r\nVH. Ruth Holst Jensen
21.05.2024 - 22:47
Lucia skrifaði:
Quisiera comprar las lanas necesarias para este patrón y no se como hacerlo
30.04.2024 - 09:17
Martje skrifaði:
Goede middag, Graag had ik geweten hoe ik met vele kleuren te werk moet gaan aan de achterkant van het breiwerk, zodat het werk mooi glad is en er geen gaten ontstaan bij het wisselen van een kleur. Dank bij voorbaat. MVG.
22.04.2024 - 14:44
Simaj skrifaði:
Bonjour merci beaucoup pour ce beau modèle 0. je suis entrain de le faire en taille XL cependant j'ai une question au niveau du diagramme A2 à la 8eme ligne qu'on il faut faire les jeté est ce qu'il faut les faire chaque 4 mailles c'est ça merci pour votre aide:)
18.01.2024 - 17:01DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Simaj, vous devez répéter le diagramme tout le tour, autrement dit, au 8ème rang de A.1 (pas A.2), vous allez tricoter ainsi tout le tour (4 m coloris chameau, 1 jeté) et ainsi augmenter 35 mailles (vous répétez 35 fois les 4 m de A.1 sur les 140 mailles), vous avez désormais 175 m et répétez maintenant 35 fois les 5 mailles de A.1 tout le tour, et ainsi de suite. Mettre un marqueur entre chaque motif peut vous aider à mieux vous repérer tout le tour. Bon tricot!
19.01.2024 - 08:56
Els skrifaði:
Beste Met welke naalden is het proeflapje gebreid?
15.01.2024 - 09:21DROPS Design svaraði:
Dag Els,
Het proeflapje is met de dikste naald gebreid, de dunnere naald wordt alleen gebruikt voor de boorden.
17.01.2024 - 17:56
Maya skrifaði:
Bonjour, dans les explications pour réaliser le modèle, tout de suite après que le col soit fini, lorsque l'empiècement commence, il est écrit qu'il faut tricoter le diagramme A1, or sur la photo on voit qu'avant le diagramme, il y a quelques cm de jersey du même coloris chameau -avec augmentations- on voit que le diagramme A1 commence plus tard.
21.12.2023 - 17:41DROPS Design svaraði:
Bonjour Maya, les premiers tours en chameau figurent dans le diagramme A.1. Bon tricot!
22.12.2023 - 08:17
Brooke skrifaði:
I'm knitting the medium. I've just finished A2. Do I measure the length of the piece from the bottom of the double neck ribbing? (If I measure from the ribbing to the end of A2 it already measures 25 cm.)
12.12.2023 - 22:18DROPS Design svaraði:
Hi Brooke, Yes, the yoke is measured from after the neck. Happy knitting!
13.12.2023 - 06:38
Forest Echo Sweater#forestechosweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, marglitu mynstri, tvöföldum kanti í hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 244-9 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi út lykkjum jafnt yfir, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d.24) = 3,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 3. og 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þegar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 84-88-92-96-100-104 lykkjur með litnum kamel DROPS Nepal yfir stuttan hringprjón 4 og stuttan hringprjón 5 sem haldið er saman. Dragið út hringprjón 5 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 4 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 10 cm, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 24-32-36-44-48-52 lykkjur lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 108-120-128-140-148-156 lykkjur. Kantur í hálsmáli er síðar brotinn niður og saumaður niður, þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á stuttan hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt. Lesið LEIÐBEININGAR og prjónið A.1 hringinn yfir allar lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í síðustu umferð í A.1 er aukið út um 1-5-3-7-5-3 lykkjur jafnt yfir (aukið út í einingu með litnum ljós beige) = 217-245-259-287-301-315 lykkjur. Prjónið A.2 yfir allar lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 248-280-296-328-344-360 lykkjur í umferð. Stykkið er síðan prjónað í sléttprjóni í litnum ljós beige. Þegar stykkið mælist 25-25-25-26-28-30 cm, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 38-42-44-50-54-57 lykkjur eins og áður (hálft bakstykki), setjið næstu 48-56-60-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 76-84-88-100-108-114 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 48-56-60-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið þær 38-42-44-50-54-57 lykkjur sem eftir eru eins og áður (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 164-180-192-216-236-252 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki – mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið merkiþræðina fylgja með í stykkinu – þeir eru notaðir þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf í hvorri hlið. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum ljós beige þar til stykkið mælist 19-21-23-24-24-24 cm frá skiptingu. Nú skiptist stykkið við merkiþræðina. Setjið síðustu 82-90-96-108-118-126 lykkjur á þráð fyrir bakstykki. FRAMSTYKKI: = 82-90-96-108-118-126 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 20-20-22-22-24-28 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 102-110-118-130-142-154 lykkjur. Prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: 2 lykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 10 cm. Fellið af. Setjið lykkjur frá bakstykki á hringprjón 4 og prjónið á sama hátt og á framstykki. ERMI: Setjið 48-56-60-64-64-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-62-68-72-74-78 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi – mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn með litnum ljós beige. Þegar stykkið mælist 3 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 12-6-5-3½-3½-2½ cm millibili alls 3-5-6-8-7-9 sinnum = 48-52-56-56-60-60 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 30-30-31-30-29-27 cm frá skiptingu. Nú eru eftir 10 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-12-12-12-12-12 lykkjur jafnt yfir = 60-64-68-68-72-72 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 40-40-41-40-39-37 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #forestechosweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 244-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.