Anke Keil skrifaði:
Hallo, ich finde nirgends mit welcher Nadelstärke die Maschenprobe gestrickt wird. Nach einigen Versuchen stimmt die Probe erst mit 7,0. Mit welchen Nadelstärken soll ich denn nun die Maschen für die DOPPELTE HALSBLENDE aufnehmen? Eigentlich doch mit 4,5 und 5,5; wobei dann nur mit 4,5 weiter gestrickt wird. Ich bedanke mich für eure Antwort. Mit freundlichem Gruß Anke
29.09.2024 - 23:26DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Keil, Maschenprobe wird glattrechts mit den Nadeln Nr 5,5 und DROPS Nepal gestrickt; die doppelte Halsblende wird mit Nadeln Nr 4,5 gestrickt und man wird am Anfang der Passe zur Rundnadel Nr 5,5 wechseln. Viel Spaß beim Stricken!
30.09.2024 - 09:52
Wiktoria skrifaði:
Czy podana próbka jest już po blokowaniu czy jeszcze przed?
02.09.2024 - 10:24DROPS Design svaraði:
Witaj Wiktorio, próbka jest przed blokowaniem. Pozdrawiamy!
02.09.2024 - 13:03
Patricia Klix skrifaði:
Hola! Gracias por la explicación! Cuando termino el gráfico A1 con 8 puntos como sigo con el gráfico A2 que tiene 7 puntos ? o sea me faltaría 1 punto para seguir el gráfico.. Espero poder explicarme bien . Gracias Saludos
22.05.2024 - 14:11DROPS Design svaraði:
Hola Patricia, la última fila de A.1 con los aumentos extra permite ajustar el número de puntos a 7 para el inicio de A.2. Si divides el número de puntos totales para tu talla entre 7 verás que tienes el número adecuado de puntos para hacer repeticiones completas de A.2. A.2 no quedará exactamente alineado con A.1, pero eso no importa; se ha tenido en cuenta a la hora de diseñar el patrón, por lo que no quedará desalineado.
27.05.2024 - 01:21
Marianne Rova Eriksson skrifaði:
I ökning ok står att öka 22 =140 masker( strl xl) Därefter öka 7 masker= 287 masker. Har text försvunnit? Tacksam för hjälp. Mvh Marianne
09.05.2024 - 09:55DROPS Design svaraði:
Hei Marianne. Du har 140 masker og nå skal det strikkes etter A.1 (1 rapport av A.1 består av 4 masker). Du strikker da A.1 35 ganger (35 x 4 masker = 140 masker). Når du har strikket hele A.1 i høyden har du også økt masker, 1 rapport av A.1 består nå av 8 masker. Du strikker fremdeles 35 ganger av A.1 = 35 x 8 = 280 masker + at det på siste omgang av A.1 skal det økes 7 masker jevnt fordelt = 280 + 7 = 287 masker. mvh DROPS Design
13.05.2024 - 10:45
Anna skrifaði:
Skal det ikke være mønster på ermene? Det står at de strikkes i fargen lys beige, men det er mønster på bildet?
12.04.2024 - 13:03DROPS Design svaraði:
Hei Anna, Mønsteret på toppen av ermene er allerede strikket på bærestykket. Når du har delt bærestykket for bol og ermer, fortsetter du på ermene med fargen lys beige. God fornøyelse!
15.04.2024 - 06:54
Marit Signe Fjæreide skrifaði:
Hvordan lage en kjedemaske
07.01.2024 - 17:00DROPS Design svaraði:
Hei Marit, Her er lenke til en video om hvordan man lager kjedemasker: https://www.garnstudio.com/video.php?id=23&lang=no God fornøyelse!
08.01.2024 - 06:52
Emily skrifaði:
When do I use the 80cm circular needles in this pattern please?
01.01.2024 - 16:20DROPS Design svaraði:
Hi Emily, You start the neck using 40 cm circular needles, then as you increase for the yoke and the short needle becomes too full of stitches, change to the 80 cm needles. Happy New Year!
02.01.2024 - 11:09
Susana skrifaði:
While starting on the neck it says that we should use colour "camel" to cast on and then we jump to the "body" later on, and it says that we should continue with the "beige". Is this a typo? Is the jumper beige or camel? Or is the neck colour meant to differ from the body?
17.11.2023 - 16:50DROPS Design svaraði:
Dear Susana, no typo here you start with camel and after diagrams are done you continue with beige. Happy knitting!
20.11.2023 - 09:14
Susana skrifaði:
When working the sleeves it says "Place the 56 stitches from the thread on the one side of the piece on short circular needle/double pointed needles size 5 mm." The pattern only says to use 4.5 and 5.5 mm needles. Do we also need a third needle size 5mm?
17.11.2023 - 16:49DROPS Design svaraði:
Dear Susanna, it should be read here 5,5 mm instead of 5 mm, pattern will be edited, thanks for noticing. Happy knitting!
20.11.2023 - 09:10
Susana skrifaði:
While on the yoke for size M how do we skip from 145 stitches, increase 5 on the last round of A1 and end up with 245? I am quite lost...
17.11.2023 - 16:40DROPS Design svaraði:
Dear Susana, in size M you start yoke with 120 sts (30 repeats of 4 sts), then you increase in diagram as shown as there are 8 sts in each A.1 when all increases are done = 8 sts x 30 repeats = 240 sts and you increase 5 sts evenly on last round in A. 1 = 245 stitches. Happy knitting!
20.11.2023 - 09:09
Autumn Reflections Sweater#autumnreflectionssweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, marglitu mynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 244-24 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi út lykkjum jafnt yfir, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d.12) = 7. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 7. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þegar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 84-88-92-96-100-104 lykkjur með litnum kamel DROPS Nepal yfir stuttan hringprjón 4,5 og stuttan hringprjón 5,5 sem haldið er saman. Dragið út hringprjón 5,5 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 4,5 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 10 cm, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-16-18-22-24-26 lykkjur lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 96-104-110-118-124-130 lykkjur. Kantur í hálsmáli er síðar brotinn niður og saumaður niður, þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á stuttan hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð sléttprjón með litnum kamel í 4 cm, í næstu umferð er aukið út um 12-16-18-22-24-26 lykkjur jafnt yfir = 108-120-128-140-148-156 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Lesið LEIÐBEININGAR og prjónið síðan A.1 hringinn yfir allar lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í síðustu umferð í A.1 er aukið út um 1-5-3-7-5-3 lykkjur jafnt yfir = 217-245-259-287-301-315 lykkjur. Prjónið A.2 yfir allar lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 248-280-296-328-344-360 lykkjur í umferð. Stykkið er síðan prjónað í sléttprjóni í litnum beige. Þegar stykkið mælist 25-25-25-26-28-30 cm (mælt eftir stroff), skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 38-42-44-50-54-57 lykkjur eins og áður (hálft bakstykki), setjið næstu 48-56-60-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 76-84-88-100-108-114 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 48-56-60-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið þær 38-42-44-50-54-57 lykkjur sem eftir eru eins og áður (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 164-180-192-216-236-252 lykkjur. Prjónið sléttprjón með litnum beige þar til stykkið mælist 29-31-32-34-34-34 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 24-24-24-28-32-32 lykkjur jafnt yfir = 188-204-216-244-268-284 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 64-66-68-70-72-74 cm frá öxl. ERMI: Setjið 48-56-60-64-64-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-62-68-72-74-78 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi – mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn með litnum beige. Þegar stykkið mælist 3 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 14-6½-5-3½-3½-2½ cm millibili alls 3-5-6-8-7-9 sinnum = 48-52-56-56-60-60 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 33-33-33-33-31-30 cm frá skiptingu. Nú eru eftir 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-8-8-8-8-8-8 lykkjur jafnt yfir = 56-60-64-64-68-68 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 39-39-39-39-37-36 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #autumnreflectionssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 244-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.