Lines in the Sand#linesinthesandsweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alaska eða DROPS Big Merino. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með áferðamynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 246-12 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (á við um hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ LYKKJUM Í BYRJUN UMFERÐAR FRÁ RÉTTU ÞANNIG: Prjónið 2 lykkjur sléttprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Í LOK UMFERÐAR FRÁ RÉTTU ÞANNIG: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman og 2 lykkjur sléttprjón (1 lykkja færri). ÚRTAKA-2 (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman / brugðið saman sem fer eftir mynstri, merkiþráður, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman / 2 lykkjur snúnar brugðið saman sem fer eftir mynstri (2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna upp að handvegi. Síðan er bakstykkið og framstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig að loknu máli. Axlasaumar eru saumaðir saman. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram handvegi og ermakúpan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna, afgangur af ermi er prjónaður í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Í lokin er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 196-212-224-248-272-296 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Alaska eða DROPS Big Merino. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 5 cm. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 28-32-32-36-40-44 lykkjur jafnt yfir = 168-180-192-212-232-252 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.1 hringinn á fram- og bakstykki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm, prjónið A.2 hringinn á fram- og bakstykki – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út til 168-180-192-213-231-252 lykkjur. Í síðustu umferð í A.2 er aukið út 0-4-0-3-1-4 lykkjur jafnt yfir = 168-184-192-216-232-256 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 31-32-33-34-35-36 cm frá uppfitjunarkanti. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið sléttprjón að réttu máli. Nú er A.3 prjónað hringinn á fram- og bakstykki. A.3 er endurtekið alls 2 sinnum á hæðina. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 36-37-38-39-40-41 cm frá uppfitjunarkanti. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið sléttprjón að réttu máli. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 0-4-0-4-0-4 lykkjur jafnt yfir = 168-180-192-212-232-252 lykkjur. Nú er settur 1 merkiþráður mitt að framan og 1 merkiþráður mitt að aftan, að auki er sett 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki – þetta er gert þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, teljið 42-45-48-53-58-63 lykkjur, setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju (mitt að framan), teljið 42-45-48-53-58-63 lykkjur, setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 42-45-48-53-58-63 lykkjur, setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju (mitt að aftan). Það eru 42-45-48-53-58-63 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merkiþræði. Prjónið A.4 þannig: Teljið út frá tákni sem merkir miðju í mynsturteikningu og merkiþræði mitt að framan hvar mynstrið eigi að byrja í hlið, prjónið A.4 eins langt og hægt er að prjónamerki í hlið (merkiþráður mitt að framan á að passa við tákn fyrir miðju í A.4), síðan byrjar A.4 uppá nýtt á sama hátt og í byrjun á umferð og A.4 er prjónað eins langt og hægt er fram að prjónamerki í byrjun á umferð (merkiþráður mitt að aftan á að passa við tákn fyrir miðju í A.4). Haldið svona áfram með mynstur og fellið af fyrir handvegi eins og útskýrt er að neðan. HANDVEGUR: Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm, fellið af fyrir handveg þannig: Byrjið 3-2-5-6-7-8 lykkjum á undan prjónamerki í byrjun á umferð, fellið af 6-4-10-12-14-16 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður þar til eftir eru 3-2-5-6-7-8 lykkjur á undan prjónamerki í hinni hliðinni, fellið af 6-4-10-12-14-16 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður út umferðina. Bakstykkið og framstykkið er prjónað til loka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 78-86-86-94-102-110 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram með A.4 með 1 lykkju GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – lesið útskýringu að ofan. Í síðustu umferð frá réttu er aukið út um 2 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 80-88-88-96-104-112 lykkjur. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.1 með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. A.1 er endurtekið á hæðina að loka máli. Síðan er lykkjum fækkað fyrir skáhallandi öxl og hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. Þetta er gert samtímis, lestu því báða kaflana áður en þú prjónar áfram. SKÁHALLANDI ÖXL: Þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm, setjið lykkjur á þráð í hvorri hlið fyrir skáhallandi öxl (til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjur áður en þær eru settar á þráðinn): Setjið lykkjur á þráð frá hlið þannig: 4-4-4-5-5-6 lykkjur 4 sinnum og síðan síðustu 9-11-11-11-13-13 lykkjur að hálsmáli. Þegar allar lykkjur hafa verið settar á þráð eru lykkjurnar settar til baka yfir á prjón 5. Prjónið 1 umferð sléttprjón (til að koma í veg fyrir göt í skiptingunum þar sem lykkjur voru settar á þráðinn, takið upp þráðinn á milli 2 lykkja og prjónið snúið saman með fyrstu lykkju á vinstri prjóni). Fellið af. HÁLSMÁL: Jafnframt þegar stykkið mælist 59-61-63-65-67-69 cm, fellið af miðju 24-28-28-28-32-32 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með A.1, haldið áfram að setja lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl og prjónið að auki ystu 3 lykkjur við hálsmál í sléttprjóni. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli – lesið ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum í hverri umferð frá réttu alls 2 sinnum. Þegar allar lykkjur hafa verið felldar af, mælist stykkið ca 62-64-66-68-70-72 cm frá hæsta punkti á öxl og niður. Endurtakið á hinni öxlinni. FRAMSTYKKI: = 78-86-86-94-102-110 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið mynstur á sama hátt og á bakstykki. Að auki er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli og skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 56-57-59-60-62-63 cm, setjið miðju 20-24-24-24-26-26 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með A.1, en ystu 3 lykkjur við hálsmál eru prjónaðar í sléttprjóni. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli – lesið ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 4-4-4-4-5-5 sinnum. SKÁHALLANDI ÖXL: Jafnframt þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm, setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl á sama hátt og á bakstykki, þ.e.a.s. setjið 4-4-4-5-5-6 lykkjur á þráð 4 sinnum og eftir það síðustu 9-11-11-11-13-13 lykkjur við hálsmál. Þegar allar lykkjur hafa verið settar á þráð er prjónuð 1 umferð sléttprjón eins og á bakstykki, áður en fellt er af. Endurtakið á hinni öxlinni. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. ERMI: Notið hringprjón 5 og DROPS Alaska eða DROPS Big Merino, prjónið upp frá réttu 36-37-39-41-43-44 lykkjur frá botni í handvegi og upp að öxl og 36-37-39-41-43-44 lykkjur frá öxl og niður að botni í handvegi í hinni hliðinni = 72-74-78-82-86-88 lykkjur meðfram handvegi. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – það á að mæla ermina frá þessu prjónamerki og prjónamerkið er notað þegar telja á út hvar mynstrið eigi að byrja. Byrjið frá röngu og prjónið A.5 þannig: Teljið út frá tákni sem merkir miðju í mynsturteikningu og prjónamerki á ermi hvar mynstrið eigi að byrja og prjónið A.5 fram og til baka með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar ermin mælist 1-1-2-3-4-4 cm frá þar sem prjónamerkið var sett, setjið stykkið saman á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5 – afgangur af ermi er prjónaður í hring. Setjið 1 merkiþráð í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Byrjið umferð mitt undir ermi og haldið áfram með mynstur hringinn (tákn í miðju í mynsturteikningu á enn að passa við prjónamerki mitt ofan á ermi – mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp undir ermi). Þegar ermin mælist 5-3-4-5-6-8 cm frá þar sem prjónamerki var sett mitt á ermi, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – lesið ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 3.-3.-3.-2½.-2½.-2½. cm millibili alls 14-15-15-17-17-18 sinnum = 44-44-48-48-52-52 lykkjur. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.1 hringinn. Prjónið þar til ermin mælist 52-50-51-50-49-48 cm frá prjónamerki. Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8 lykkjur jafnt yfir = 52-52-56-56-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 57-55-56-55-54-53 cm frá prjónamerki mitt ofan á ermi. Prjónið hina ermina á sama hátt. Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra öxlina, notið stuttan hringprjón 3,5 og prjónið upp ca 80-96-96-104-112-112 lykkjur í kringum hálsmál innan við 1 lykkju (ásamt lykkjum á þræði). Prjónið stroffprjón hringinn (4 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið – stillið stroffið af þannig að það koma 4 lykkjur brugðið eða 4 lykkjur slétt mitt að framan). Setjið 1 prjónamerki í umferð þegar stroffið mælist 4 cm, prjónamerkið er notað til að mæla frá. Síðan eru prjónaðar 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið yfir allar lykkjur. Þegar stroffið mælist 9 cm frá prjónamerki, skiptið yfir í stuttan hringprjón 5. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið stroffið niður (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) að innanverðu á stykki. Saumið það niður þannig að það verði tvöfaldur kantur í hálsmáli ca 4 cm. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #linesinthesandsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 246-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.