Sabine Stieler skrifaði:
Ändert sich am Ende des Rückenteils (nach den Zunehmen) das Muster von A2 auf A1
14.10.2023 - 12:04DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Stieler, es wird A.1 und A.2 genauso vom Anfang bis zur Ende gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
16.10.2023 - 09:00
NWhilton skrifaði:
Toast
05.08.2023 - 13:01
Isabel skrifaði:
Peppered in Pink
03.08.2023 - 16:22
Frosted Confetti#frostedconfettisweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca Bouclé og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður, í sléttprjóni með köðlum, skáhallandi öxl / evrópskri öxl og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 245-22 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU: Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI / 3 lykkjur: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU: Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI / 3 lykkjur: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Efsti hlutinn á bakstykki er prjónaður fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður að handvegi. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hvorri öxl, aukið er út fyrir hálsmáli og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður að handvegi. Framstykkið og bakstykkið er sett saman. Fram- og bakstykkið er prjónað fram í hring á hringprjón og skiptist upp fyrir klauf í hvorri hlið. Lykkjur eru prjónaðar upp í kringum hvorn handveginn. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í hring. BAKSTYKKI: Fitjið upp 30-30-32-34-34-34 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði DROPS Alpaca Bouclé og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Setjið 1 prjónamerki innan við ystu 7 lykkjur í hvorri hlið. Prjónamerkin eiga að sitja innan við 7 lykkjur í hverri umferð. Nú er prjónað þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1, aukið út 1 lykkju á eftir prjónamerki, sléttprjón þar til 7 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju á undan prjónamerki, prjónið A.2 og 1 kantlykkju í garðaprjóni – lesið ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Í næstu umferð (ranga) er aukið út á sama hátt – lesið ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU. Haldið svona áfram og aukið alveg eins út bæði frá réttu og frá röngu alls 18-20-22-22-24-28 sinnum. Eftir síðustu útaukningu eru 66-70-76-78-82-90 lykkjur í umferð. Haldið áfram með 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1, sléttprjón þar til 7 lykkjur eru eftir, A.1 og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir án útaukningar, setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á stykki. Héðan er nú stykkið mælt! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram þar til stykkið mælist 14-15-15-16-17-17 cm, mælt frá prjónamerki yst meðfram handvegi. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið framstykkið eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: Byrjið með vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð). Prjónið upp 18-20-22-22-24-28 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki, byrjið við hálsmál og prjónið upp lykkjur niður að prjónamerki á bakstykki (þ.e.a.s. prjónið upp ca 1 lykkju í hverri umferð frá kanti efst á bakstykki). Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 7 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í byrjun á hverri umferð frá réttu, aukið er út á eftir 3 lykkjur – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út um 1 lykkju alls 4 sinnum = 22-24-26-26-28-32 lykkjur. Geymið stykkið þegar síðasta umferð hefur verið prjónuð frá röngu. Prjónið síðan hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. Prjónið upp 18-20-22-22-24-28 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram hægri öxl á bakstykki, byrjið við prjónamerki á bakstykki og prjónið upp lykkjur upp að hálsmáli (þ.e.e.a.s. prjónið upp ca 1 lykkju í hverja umferð frá kanti efst á bakstykki). Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 7 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í lok hverrar umferðar frá réttu, aukið út á undan 3 lykkjum – munið eftir ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út 1 lykkju alls 4 sinnum = 22-24-26-26-28-32 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu er prjónað til baka frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið sléttprjón yfir 22-24-26-26-28-32 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 18-18-20-22-22-22 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið sléttprjón eins og áður yfir 22-24-26-26-28-32 lykkjur frá vinstra framstykki = 62-66-72-74-78-86 lykkjur. ATH! Það eru 4 lykkjur fleiri á bakstykki en á framstykki, þar sem kaðlarnir dragast aðeins saman. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 24-25-27-28-29-31 cm, mælt yst meðfram handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 62-66-72-74-78-86 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 4-4-4-8-12-12 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (í hlið), prjónið sléttprjón og mynstur yfir 66-70-76-78-82-90 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 4-4-4-8-12-12 nýjar lykkjur í lok umferðar = 136-144-156-168-184-200 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar lykkjur, prjónamerkin eru notuð þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf. Prjónið sléttprjón og haldið áfram með A.1 og A.2 eins og áður þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki. Nú skiptist framstykkið og bakstykkið, þannig að það myndast klauf í hliðum. Setjið 70-74-80-86-94-102 lykkjur frá bakstykki á þráð eða á hjálparprjón og prjónið síðan einungis yfir lykkjur frá framstykki. FRAMSTYKKI: 66-70-76-82-90-98 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 8-8-6-8-8-12 lykkjur jafnt yfir = 74-78-82-90-98-110 lykkjur. Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Fellið af. BAKSTYKKI: Setjið lykkjur af þræði á hringprjón 6 = 66-70-76-82-90-98 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 8-8-6-8-8-12 lykkjur jafnt yfir = 74-78-82-90-98-110 lykkjur. Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm, mælt frá efsta punkti á öxl. VINSTRI ERMI: Notið hringprjón 7, prjónið upp frá réttu 32-34-36-38-40-40 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram framstykki) og 18-18-18-20-20-22 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram bakstykki) = 50-52-54-58-60-62 lykkjur meðfram handvegi. Setjið 1 prjónamerki mitt í lykkjurnar sem prjónaðar voru upp. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpuna, þetta er gert til að fá betra form og flíkin passi betur. Umferð 1 (ranga): Prjónið 12 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið. Umferð 2 (rétta): Prjónið 12 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið. Umferð 3 (ranga): Prjónið 14 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið. Umferð 4 (rétta): Prjónið 14 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið. Umferð 5 (ranga): Prjónið 18 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið. Umferð 6 (rétta): Prjónið 18 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið. Umferð 7 (ranga): Prjónið að byrjun umferðar. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til ermin mælist 6-6-6-7-9-9 cm, mælt frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp (öll mál á lengdina eru gerð mitt ofan á ermakúpu) . Nú er stykkið sett saman á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 7 – afgangur af ermi er prjónaður í hring. Setjið 1 merkiþráð í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 8-8-8-8-9-11 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 10-10-10-7-7-6 cm millibili alls 4-4-4-5-5-5 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 42-42-42-41-40-38 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir ermi. Það eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-4-6-4-6-4 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 48-48-48-47-46-44 cm. HÆGRI ERMI: Prjónið á sama hátt og vinstri ermi, en prjónið upp lykkjur í gagnstæðri hlið, þ.e.a.s. prjónaðar eru upp 18-18-18-20-20-22 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram bakstykki) og 32-34-36-38-40-40 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram framstykki). Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra axlalínuna og prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju ca 72 til 96 lykkjur á stuttan hringprjón 6. Prjónið stroffprjón hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið laust af. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #frostedconfettisweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 245-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.