DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 19624.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Dandelion Wish Sweater

Prjónuð oversized / stór peysa úr 1 þræði DROPS Air og 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í perluprjóni með háu hálsmáli. Stærð XS - XXL.

DROPS 243-16
DROPS Design: Mynstur ai-460
Garnflokkur C + A + A eða E
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS – S - M - L - XL - XXL

GARN:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-300-350-400-400-450 g litur 33, bleikur sandur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-225-250-275-300-325 g litur 40, perlubleikur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 40 cm og 80 cm.

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 19 umferðir á hæð með perluprjóni (A.1) með 1 þræði DROPS Air og 2 þráðum DROPS Kid-Silk = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 19624.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

KANTLYKKJA:
Prjónuð er 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki. Kantlykkjur eru prjónaðar slétt frá réttu og slétt frá röngu (garðaprjón).

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Aukið út innan við 1 lykkju í garðaprjóni.
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næst umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykki, bakstykki og ermar er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp, hvert fyrir sig. Frágangur á stykki er útskýrður í uppskrift. Í lokin er prjónaður kantur í hálsmáli í hring.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 74-78-86-92-96-104 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði DROPS Air og 2 þráðum DROPS Kid-Silk (3 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 KANTLYKKJA – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju.
Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 12-12-14-14-14-16 lykkjur jafnt yfir = 62-66-72-78-82-88 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 8.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm, fellið af 2-2-4-4-6-6 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 58-62-64-70-70-76 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í hvorri hlið.
Prjónið þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Nú á að fella af fyrir hálsmáli og lykkjur eru settar á þráð fyrir skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. Þetta er gert samtímis, lestu því báða kaflana áður en þú prjónar áfram.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fellið af miðju 16-16-16-18-18-18 lykkjur fyrir hálsmáli (fellið af 8-8-8-9-9-9 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) og prjónið hvora öxl til loka fyrir sig.
Haldið áfram með A.1 eins og áður. Setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl í byrjun á umferð frá hlið eins og útskýrt er að neðan og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli.

SKÁHALLANDI ÖXL:
Setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig (til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjur áður en þær eru settar á þráðinn): Setjið 6-6-6-7-7-8 lykkjur 2 sinnum og síðan 7-9-10-10-10-11 lykkjur 1 sinni.
Þegar allar lykkjur hafa verið settar á þráðinn og felldar af fyrir hálsmáli eru 19-21-22-24-24-27 lykkjur á þræði. Setjið til baka þessar lykkjur á hringprjón 8, prjónið 1 umferð sléttprjón, en til að sleppa við göt í hverri skiptingu þar sem lykkjur voru settar á þráð, sækið þráðinn í bili á undan næstu lykkju á vinstri prjón upp og setjið snúið á vinstri prjón. Síðan er lykkjan prjónuð saman með næstu lykkju á vinstri prjóni. Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt. Stykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm, mælt frá uppfitjunarkanti að hæsta punkti á öxl við hálsmál.

FRAMSTYKKI.
Fitjið upp jafnmargar lykkjur og á bakstykki og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 50-52-54-55-57-59 cm.
Nú á að fella af fyrir hálsmáli og lykkjur settar á þráð fyrir skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. Þetta er gert samtímis, lestu því báða kaflana áður en þú prjónar áfram.

HÁLSMÁL:
Setjið miðju 8-8-8-10-10-10 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og prjónið hvor öxl til loka fyrir sig.
Haldið áfram með A.1 eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig:
Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 4 sinnum.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl í byrjun á hverri umferð frá hlið á sama hátt og á bakstykki.
Þegar allar lykkjur hafa verið settar á þráð og felldar af fyrir hálsmáli eru 19-21-22-24-24-27 lykkjur á þræði. Prjónið 1 umferð sléttprjón á sama hátt og á bakstykki og fellið síðan af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. Stykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm, mælt frá uppfitjunarkanti að hæsta punkti á öxl inn að hálsmáli.

ERMI:
Fitjið upp 46-46-48-50-52-52 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði DROPS Air og 2 þráðum DROPS Kid-Silk (3 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 10-10-10-12-12-12 lykkjur jafnt yfir = 36-36-38-38-40-40 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 8.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju. Haldið áfram með þetta mynstur.
Þegar stykkið mælist 10 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 10-8-7-5½-5½-4 cm millibili alls 4-5-5-6-6-7 sinnum í hvorri hlið = 44-46-48-50-52-54 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 43-44-42-40-40-38 cm, setjið 1 prjónamerki í hvora hlið.
Prjónið þar til stykkið mælist 45-46-46-44-45-43 cm. Fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn.
Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju.
Saumið ermasauma innan við 1 kantlykkju – byrjið neðst og saumið upp að prjónamerkjum = klauf ca 2-2-4-4-5-5 cm efst á ermi.
Saumið ermakúpu við handveg innan við 1 kantlykkju. Saumið klauf efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu.

HÁR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp frá réttu ca 68 til 80 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 6 með 1 þræði DROPS Air og 2 þráðum DROPS Kid-Silk (3 þræðir).
Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) – stillið stroffið af þannig að prjónaðar séu brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur og sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur af þræði mitt að framan.
Þegar kantur í hálsmáli mælist ca 11-11-12-12-13-13 cm, fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, eða fellið af með ítalskri affellingu.
Ef óskað er eftir að hafa tvöfaldan kant í hálsmáli er hægt að brjóta stroffið niður að innanverðu á stykki á festa með nokkrum sporum við hvern axlasaum.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = saumið a við A og b við B
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 243-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Lene Knudsen wrote:

Venligst oplys størrelsesmål i centimeter, da jeres størrelsesangivelse i XS-XXL er meget upræcis. På forhånd tak.

14.04.2024 - 13:32

DROPS Design answered:

Hei Lena. Men om du ser på hele oppskriften og da spesielt på målskissen (nederst på oppskriften) vil du finne alle cm mål i alle størrelser plagget er skrevet i. mvh DROPS Design

15.04.2024 - 14:20

country flag Stefanie Raase wrote:

Wie ist das mit dem Halsausschnitt und der Schulterschrägung gemeint: Ich lege zuerst 6 Maschen still, stricke dann normal weiter bis ich zum Halsauschnitt gekommen bin. Kette den Halsauschnitt ab, stricke wieder normal bis zum Ende weiter. Wende die Arbeit, lege wieder 6 Maschen für die andere Schulterseite still und dann wieder wenden und die nächsten 6 Maschen stilllegen?

20.03.2024 - 15:19

DROPS Design answered:

Liebe Frau Raase, ja genau, die Maschen am Anfang der Reihe vom Armauschnitt werden zuerst gestrickt, dann stillgelegt, Reihe wird bis zur Ende gestrickt, nach Wenden wird die nächste Reihe wie zuvor gestrickt, und diese 2 Reihen bis alle Maschen stillgelegt sind. Viel Spaß beim STricken!

20.03.2024 - 15:39

country flag Philippa Miller wrote:

I really like the dandelion wish jumper but would prefer using one strand of wool. Which wools would you recommend? With thanks Philippa

01.02.2024 - 10:43

DROPS Design answered:

Dear Mrs Miller, you can then use 1 strand yarn group E, read more here. Happy knitting!

01.02.2024 - 15:44

country flag Steffi wrote:

Beim Ärmel steht: Bei einer Länge von 10 cm je 1 Masche beidseitig zunehmend. Bezieht sich die 10 cm aus der gestrickten Gesamtlänge (also mit Bündchen Rippenmustee) oder auf das Perlmuster A1? Was bedeutet beidseitig? Hinrunde und Rückrunde zunehmen oder je eine linke Masche und eine rechte Masche?

25.01.2024 - 00:19

DROPS Design answered:

Liebe Steffi, messen Sie diese 10 cm ab der Anschlagskante, dh mit Bündchen. Beidseitig zunehmen bedeutet: 1 Masche am Anfang + 1 Masche am Ende der Reihe zunehmen (2 Zunahmen bei jeder Zunahmenreihe) - siehe ZUNAHMETIPP: am Anfang der Anleitung. Viel Spaß beim stricken!

25.01.2024 - 09:21

country flag Eliane wrote:

Pourquoi je ne peux plus accéder à mes favoris il me dise adressé mail invalide

07.11.2023 - 14:44

DROPS Design answered:

Bonjour Eliane, avez-vous vérifié qu'il n'y avait pas de faute de frappe dans l'adresse mail tapée? Ou bien peut-être que vous n'aviez pas utilisé cette adresse depuis longtemps?

08.11.2023 - 08:06

country flag FIEYRE Sylvette wrote:

Sujet : quantité de laine nécessaire pour le modèle DROP 243-16 en changeant 1 laine. Pour ce modèle, il est conseillé 450gr DROPS AIR (XXL) + 325 gr KID SILK . Si je préfère utiliser FLORA à la place de AIR, la quantité de laine requise sera un peu moins importante ? Merci de me confirmer la quantité de FLORA nécessaire. Merci d'avance!

05.10.2023 - 12:00

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Fieyre, vous pouvez utiliser 2 fils Flora pour remplacer 1 fil DROPS Air, utilisez notre convertisseur pour avoir la quantité requise correspondant à votre taille et tricotez ainsi avec 2 fils Flora + 2 fils Kid-Silk. Bon tricot!

06.10.2023 - 08:41

country flag Barbara wrote:

Buongiorno. Io non uso i ferri circolari ma quelli lineari. È possibile seguire le vostre istruzioni per i maglioni con i ferri lineari? Grazie.

14.09.2023 - 16:34

DROPS Design answered:

Buonasera Barbara, alcuni modelli sono lavorati in piano con i ferri circolari, per cui può usare anche i ferri normali. Questo modello ad esempio è lavorato in parti separate in piano fino al collo, che viene lavorato in tondo. Buon lavoro!

14.09.2023 - 20:08

country flag Claudia wrote:

Hallo So wie ich lese kann man diesen Pullover auch mit Wolle der Garngruppe E stricken..Beispiel Andes oder Snow Liebe Grüße Claudia

12.09.2023 - 09:58

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, benutzen Sie den Garnumrechner, und wählen Sie "Air", dann das Gewicht z.B. 300 g und "2 Fäden" (da 1 Faden C = 2 Fäden A), so bekommen Sie die neue Garnmenge mit 1 Faden der Garngruppe E (und andere Alternative). Viel Spaß beim stricken!

13.09.2023 - 08:18

country flag Iris wrote:

Sieht sehr gemütlich aus

06.08.2023 - 14:14

country flag Blumstein wrote:

Serait il possible d'avoir les explications de ce modèle svp merci

06.08.2023 - 10:47