Ginger Dream#gingerdreamsweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og háum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 244-22 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir A.2. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráður situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst er prjónaður hár kantur í hálsmáli í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Síðan er prjónað hálsmál með stuttum umferðum fram og til baka á hringprjóna. Þegar hálsmál hefur verið prjónað til loka, prjónið afgang af berustykki í hring á hringprjóna frá miðju að aftan. Berustykkið skiptis fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. HÁR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 96-100-104-112-116-124 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með DROPS Alaska. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið nú stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 9-9-10-10-11-11 cm. ATH: Ef óskað er eftir að hafa tvöfaldan kant í hálsmáli er hægt að brjóta stroffið niður inn að innanverðu á stykki og festa með nokkrum sporum í hvora hlið. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 11-13-13-15-17-19 lykkjur og fækkið jafnframt um 2-2-3-3-3-4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (hálft bakstykki), prjónið A.1 (A.1 á að passa yfir 1 lykkju brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið frá stroffi – setjið 1 prjónamerki í sléttu lykkjuna = 1. prjónamerki), prjónið sléttprjón yfir næstu 19 lykkjur og fækkið jafnframt um 4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (ermi), prjónið A.1 (setjið 2. prjónamerki í sléttu lykkjuna), prjónið sléttprjón yfir næstu 23-25-27-31-33-37 lykkjur og fækkið jafnframt um 4-4-6-6-6-8 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (framstykki), prjónið A.1 (setjið 3. prjónamerki í sléttu lykkjuna), prjónið sléttprjón yfir næstu 19 lykkjur og fækkið jafnframt um 4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (ermi), prjónið A.1 (setjið 4. prjónamerki í sléttu lykkjuna), prjónið sléttprjón yfir síðustu 12-12-14-16-16-18 lykkjur og fækkið jafnframt um 2-2-3-3-3-4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (hálft bakstykki) = 88-92-92-100-104-108 lykkjur (23-25-25-29-31-33 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í á framstykki/bakstykki og 19 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í hvorri ermi). A.1 er staðsett í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma og merkir byrjun á laskalínu. Klippið þráðinn. HÁLSMÁL: Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt að aftan). Þetta prjónamerki verður að hafa annan lit en prjónamerki í laskalínu, til að það sé auðveldara að sjá miðju að aftan. Nú er prjónað hálsmál með stuttum umferðum JAFNFRAMT því sem lykkjur eru auknar út fyrir laskalínu eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA. UMFERÐ 1 (rétta): Byrjið 2 lykkjum á undan A.1 með 3. prjónamerki í (þ.e.a.s. í vinstri hlið í hálsmáli að framan, séð þegar flíkin er mátuð). Prjónið sléttprjón, síðustu umferð í A.1 og aukið jafnframt út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við A.1 í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma – lesið útskýringu að ofan, þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá laskalínulykkju með 2. prjónamerki (hægri hlið í hálsmáli að framan = 8 lykkjur fleiri fyrir laskalínu). Snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið sléttprjón, prjónið A.2 yfir lykkjur í A.1 (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn) og aukið út fyrir lasalínu á undan/eftir A.2 einungis á framstykki og bakstykki, þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem stuttar umferðir byrjuðu við 3. prjónamerki (þ.e.a.s. ekki er aukið út á ermum = 4 lykkjur fleiri). Snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttprjón og A.2 og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við A.2 bæði á framstykki/bakstykki og ermum, þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við 2. prjónamerki (8 lykkjur fleiri). Snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á undan/eftir A.2 einungis á framstykki og bakstykki, þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í síðasta skipti við 3. prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri). Snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við A.2 bæði á framstykki/bakstykki og ermum, þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í síðasta skipti við 2. prjónamerki (8 lykkjur fleiri). Snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 6 (ranga): Prjónið eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á undan/eftir A.2 einungis á framstykki og bakstykki, þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í síðasta skipti við 3. prjónamerki. Klippið þráðinn Stuttar umferðir hafa nú verið prjónaðar til loka og aukið hefur verið út 6 sinnum fyrir laskalínu á framstykki/bakstykki og 2 sinnum fyrir laskalínu á ermum = 124-128-128-136-140-144 lykkjur. Síðan er berustykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Byrjið aftur við miðju að aftan og haldið áfram hringinn í sléttprjóni og A.2. JAFNFRAMT heldur útaukning áfram fyrir laskalínu eins og útskýrt er að neðan: STÆRÐ S, M og L: Aukið út fyrir laskalínu á framstykki/bakstykki og ermum, þ.e.a.s. hvoru megin við A.2, í annarri hverri umferð alls 5-5-9 sinnum = 164-168-200 lykkjur. Síðan heldur útaukning áfram fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki/bakstykki. Þ.e.a.s. aukið er út á framstykki/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð (aukið er út til skiptis 4 og 8 lykkjur). Aukið svona út 12-14-12 sinnum á framstykki/bakstykki og 6-7-6 sinnum á ermum = 236-252-272 lykkjur. Útaukningu fyrir ermar er nú lokið. Haldið áfram með útaukningu á framstykki/bakstykki 1 sinni til viðbótar í öllum stærðum = 240-256-276 lykkjur. Útaukningu fyrir framstykki/bakstykki er nú lokið. STÆRÐ XL, XXL og XXXL: Aukið út fyrir laskalínu í hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, aukið einungis út á framstykki/bakstykki. Þ.e.a.s. aukið út á framstykki/bakstykki í hverri umferð og á ermum í annarri hverri umferð (aukið er út til skiptis 4 og 8 lykkjur). Aukið svona út 2-4-8 sinnum á framstykki/bakstykki og 1-2-4 sinnum á ermum = 148-164-192 lykkjur. Nú er aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð bæði á framstykki/bakstykki og ermum, þ.e.a.s. hvoru megin við A.2 (8 lykkjur fleiri). Aukið svona út alls 13-9-7 sinnum = 252-236-248 lykkjur. Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki/bakstykki. Þ.e.a.s. aukið er út á framstykki/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð (aukið er út til skiptis 4 og 8 lykkjur). Aukið svona út 9-13-15 sinnum á framstykki/bakstykki og 4-6-7 sinnum á ermum = 304-312-336 lykkjur. Útaukningu fyrir framstykki/bakstykki er nú lokið. Haldið áfram með útaukningu fyrir ermar í 4. hverri umferð 0-1-1 sinnum til viðbótar = 304-316-340 lykkjur. Útaukningu fyrir ermar er nú lokið. ALLAR STÆRÐIR: = 240-256-276-304-316-340 lykkjur. Prjónið sléttprjón og A.2 eins og áður án útaukningar, þar til stykkið mælist 22-24-25-26-28-30 cm, mælt eftir stroffi mitt að aftan. Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 36-40-41-45-49-54 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki), setjið 47-49-55-61-61-63 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 73-79-83-91-97-107 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 47-49-55-61-61-63 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 37-39-42-46-48-53 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 162-174-186-202-218-242 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í aðra hlið á stykkinu – mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi. Prjónið fram að prjónamerki. Umferðin byrjar núna hér. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 28-28-29-30-30-30 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 32-32-34-38-40-46 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 194-206-220-240-258-288 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl. ERMI: Setjið 47-49-55-61-61-63 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5,5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 55-57-65-71-73-77 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4-4-4-4-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 8-7½-4½-3-3-2½ cm millibili alls 5-5-8-11-11-12 sinnum = 45-47-49-49-51-53 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 41-39-39-38-37-35 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 9 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – munið eftir ÚTAUKNING = 54-56-58-58-60-62 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroffprjón hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 45-43-43-42-41-39 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #gingerdreamsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 244-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.